Fimmti dagur vikunnar (en samt næst síðasti...)
Við hjónin erum orðin afskaplega gömul og þreytt. Þetta sést best á því að við erum venjulega komin upp í rúm um tíuleytið og aldrei seinna en ellefu (nema einstaka sinnum um helgar). Yfirleitt þá horfum við á eitthvað saman uppi í rúmi, Friends, Wonder Years eða nýjasta æðið, American Idol. Erum eiginlega hrikalega sorgleg, allavega nokkuð ljóst að ef menn eru að leita að stuðboltum, þá er Bremensgade 17, 2. hæð til vinstri allra síðasti staðurinn sem leitað verður á...
En við reynum þó að streitast á móti þessari elli og þreytu eins og við mögulega getum. Við fórum t.a.m. í ræktina í gær og lyftum eins og við ættum lífið að leysa. Vil nú eiginlega meina að öll þessi hreyfing sé að stuðla að þessari miklu kvöldþreytu okkar (allavega er það ágætis afsökun). Annars er nú undarlegt að vera að tala um elli, erum ekki einu sinni kominn á fertugsaldurinn ennþá (þó stutt sé í það þó). Kannski maður þurfi bara að fara að taka Rítalín, þá er allavega ljóst að maður hættir að vera svona þreyttur á kvöldin... ;)
Sigríður mágkona kíkti í kvöldmat til okkar í gær. Buðum henni upp á dæmigerðan 'heimamat', afganga af plokkfiski, grjónagraut og rúgbrauð með síld og eggjum. Afskaplega danskt og skemmtilegt (að vísu ekki plokkfiskurinn). Talandi um grjónagraut, síðasta vígið er fallið! Þórunn barði það í gegn að mega setja rúsínur í grautinn í gær (ég þoli ekki rúsínur í grjónagraut) og merkilegt nokk þá át ég það bara án þess að kvarta. Og því miður þá var það alls ekki eins slæmt og mig minnti að það væri (hef kannski aldrei borðað þetta áður, gæti verið). Þannig að nú er ekkert eftir nema ólífur, og þær ætla ég sko aldrei að éta...nema Þórunn plati mig til þess, að sjálfsögðu ;)

5 Comments:
Haha! Ég veit hvað ég gef þér næst þegar þú kemur í mat!! hohoh. *hóst*
Ohhh... þið eruð svo mikil hjón. sætt
Laddi! spurning---> Veistu til hvers myndavélar eru?? og svona myndasíður sem að maður á á netinu?
Sólveig, give it up. Þetta er lost cause með myndasíðuna. Ég hef ekki séð laddmund handleika myndavél síðan hann kom frá Afríku!
1. Hnetur
2. Snickers (með hnetum auðvitað)
3. Sveppir (á pizzu líka)
4. Rúsínur í grjónagrautinn
Þá er ekki mikið eftir sem hægt væri að berja ofan í þig ;)
Skrifa ummæli
<< Home