mánudagur, febrúar 25, 2008

Fluttur...

...á laddi.wordpress.com!!! Þetta verður áfram í gangi uppá að tenglarnir virki og svoleiðis en nýjar færslur verða allar á nýja staðnum. Cheerio!

fimmtudagur, febrúar 21, 2008

Að kemba hórurnar?!?

(Myndin hér til hægri tengist færslunni ekki á nokkurn hátt, er bara hér ykkur til yndisauka...)

Verð að viðurkenna það að ég hef ekki verið neitt svakalega duglegur að fara niður á Vestergade eftir að Jonni flutti heim og Runi sagði upp sínu plássi. En ég er hinsvegar mættur hingað í dag og það er eiginlega bara stórfínt! Ekki það að ég sé feginn að losna við félagana, síður en svo, en það er hinsvegar ágætis tilbreyting frá stofuborðinu á Bremensgade, betri stóll hérna auk þess sem 20" skjárinn spillir ekki fyrir, hvað þá nýja Apple lyklaborðið sem Jonni gaf mér, it's all good! Verð kannski bara að fara að koma oftar... ;)

Annars hefur þetta bara verið ósköp venjuleg vika það sem af er. Hef að vísu verið helvíti duglegur að fara í ræktina, búinn að fara núna síðustu þrjá daga og hlaupið í öll skiptin og lyft í tvö, stefnan að verða helköttaður fyrir páska, massaður í rusl og tanaður í drasl. Spurning samt um að sleppa tönuninni, er víst ekkert sérlega hættulítið að fara í ljós hérna í Kaupmannahöfn þessa dagana... :O

Talandi um smáauglýsingar, af hverju sér maður aldrei svona smáauglýsingar í íslensku blöðunum?!? Þessar auglýsingar eru víst í boði sama þjóðfélagsins og færir okkur svona fréttir, hefðum alveg mátt hafa þetta í huga um daginn í handboltanum þegar helv.... kvendómarinn dæmdi okkur allt í óhag (að okkar mati).

Gimmi benti mér svo á nokkrar klippur af YouTube af þvílíkum gítarsnillingum að það hálfa væri nóg, hér er t.d. einn að taka Pink Floyd lagið Money á sérlega skemmtilegan máta. Svo er hann Naudo líka helvíti nettur og tekur hérna Angie, Total Eclipse of the Heart og Another Brick in the Wall. Spurning hvort þessir tveir kappar hafi orðið svona góðir af því að spila Guitar Hero...??? ;)

Og svona rétt í lokin, fyrir þá sem nenna ekki að vinna/læra, þá er hægt að skemmta sér stórvel í þessum leik... :D

miðvikudagur, febrúar 13, 2008

I drank what?!?

4. janúar?!? Scheisse, hvað maður er slappur í þessu!! Tengdó er sennilega að blóta mér í sand og ösku yfir slappleikanum (hef einmitt verið mikið að hiksta undanfarið, tilviljun?!?). Heppilega þá gerir þessi fjarvera það að verkum að ég hef frá ótrúlega miklu að segja. Allir vinna! :D

Jonni og Erla fluttu heim um daginn með stuttum fyrirvara. Áttum svosem alveg von á því en kannski ekki alveg svona snögglega. Að sjálfsögðu hjálpuðum við þeim eins og við gátum við flutningana og var ég með harðsperrur í nokkra daga eftir allan burðinn niður úr íbúðinni þeirra, sérstaklega tók sófinn á þríhöfðann. Auk brotthvarfs Jonna af Vestergade er dvöl Runa lokið þar líka þannig að núna er ég bara einn eftir, frekar einmanalegt eiginlega. En ég var svosem einn líka áður en þeir fluttu út þannig að ég ætti að vera vanur...

Janúar fór annars að mestu í próflestur hjá Þórunni á meðan ég vann og stundaði íþróttir af miklu kappi. Var kominn í fjórar æfingar á viku í handbolta og fótbolta á tímabili sem skilaði sér svo í því að hnén gáfu sig og sér ekki enn fyrir endann á því. Þórunn fór svo í próf 24. janúar og gekk víst bara nokkuð vel að eigin sögn sem sannaðist svo í vikunni þegar í ljós kom að hún hafði náð með prýðis einkunn, vel gert! Strax eftir prófið var svo tekið til við að pakka í ferðatöskur því ferðinni var haldið til Ítalíu þar sem skíðabrekkurnar biðu okkar...

Fórum í flug 26. janúar áleiðis til Feneyja þaðan sem við tókum svo rútu upp í fjöllin með Canazei sem áfangastað. Með í för voru þau Gugga og Björgvin og var stefnan sett á að eyða einni viku í þessum stórskemmtilega skíðabæ við skíðaiðkun, át og drykkju. Að vísu fór ferðin ekkert allt of vel af stað því að fyrsta daginn komumst við ekkert í brekkur vegna hvassviðris en við náðum góðum fimm dögum samt sem áður. En sjón er víst sögu ríkari og því er kannski einfaldast að benda fólki bara á myndirnar sem við tókum í ferðinni...

Komum svo aftur heim á afmælisdaginn minn, 2. febrúar, sem var víst eitthvað endaslepptur að þessu sinni, fimm tíma rútuferð + tveggja tíma flug. Frekar slappur afmælisdagur eiginlega, fékk ekki einu sinni köku! LAAAAAME!

Þórunn er svo byrjuð aftur í skólanum og er að þessu sinni í bók- og verklegu í geðlækningum, afskaplega spennandi og skemmtilegt. Ég er bara að vinna sem endranær og bíð eftir að mér fari að batna í hnjánum svo ég komist aftur í fótbolta. Semsagt, same old, same old. Merkilegt hvað það gerist í raun lítið á einum mánuði...

föstudagur, janúar 04, 2008

Gleðilegt sítt hár!

Nú árið (2007) er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka, ekki nema tímatalið verði einhvern tímann núllað, þá er séns á því en það er að vísu afar ólíklegt. Þetta var ágætis ár og margt skemmtilegt sem á daga mína dreif. Helst skal auðvitað nefna ferðirnar til Ítalíu á skíði og til Kína. Einnig kemur upp í hugann veiðiferðin í sumar sem og brúðkaupið hjá Dóa. Allt afskaplega skemmtilegt semsagt, man hreinlega ekki eftir neinu leiðinlegu, allavega ekki það leiðinlegu að það þurfi að ræða sérstaklega...

Jólin voru annars bara helvíti fín, þó svo dvölin á Íslandi hefði mátt vera lengri. Fékk fínar jólagjafir, Þórunn braut odd af oflæti sínu og gaf mér PS3 sem hefur verið brúkuð óspart síðan, fór strax 27. og keypti mér Guitar Hero III og hef verið rokkandi síðan. Fékk líka nokkrar bækur, Næturvaktina á DVD, buff svo ég verði flottur á skíðunum í lok mánaðarins og svo fengum við saman glös, kælikönnu, eplaskífupönnu, tvo kökudiska í stellið okkar, gjafabréf í Smáralind og bjöllu eftir Koggu. Heimturnar semsagt mjög góðar þetta árið :D

Svo var auðvitað étið og drukkið óspart og þörfinni fyrir kjöt sennilega fullnægt að sinni. Hefði að vísu þegið meira af malti og appelsíni en það verður víst bara að bíða þar til næstu jól. Fjölskylduboðin voru líka sótt af gríð og erg, hjá Grími og Valgerði (föðurbróður mínum) á jóladag og svo hjá Badda og Jónu (móðurbróður hennar Þórunnar) á annan í jólum. Fórum svo á Jesús Krist ofurgoð 29. des. þar sem Eiki var hluti af kórnum. Hann svínnýtti sér aðstöðu sína og bauð okkur og Gimma og Svönu baksviðs í kampavín og kökur eftir sýninguna með öllum leikurunum og svo í bæinn á Dillon þar sem við sungum og dönsuðum með þeim langt fram á nótt. Ingvar E. Sigurðsson og Krummi biðja að heilsa... ;)

Eiki og Lára buðu okkur svo í mat síðasta sunnudagskvöld í Beef Wellington sem var sérlega vel þegið, sérstaklega þar sem kjötátið dagana á undan hafði verið ákaflega lítið. Gamlárskvöldi var svo eytt hjá gamla settinu í Stafnaseli og pabbi sá að sjálfsögðu um að lýsa upp hverfið með nokkrum vel völdum tertum og rakettum sem Gulli seldi honum á spottprís. Nýársdagur fór svo bara í hefðbundna leti og svo var haldið aftur til Danmerkur á miðvikudag. Iceland Express 'leyfðu' okkur náðarsamlegast að borga næstum því 7000 ISK yfirvigt af 7 kílóum (slapp að vísu með skíðaskóna), afskaplega huggulegir í alla staði, höfum alltaf sloppið við yfirvigt fram að þessu en þetta er greinilega það sem maður fær fyrir að velja Iceland Express frekar en Icelandair... ;)

Daglega rútínan er svo bara komin aftur í gang og ég sit einmitt á Vestergade í þessum skrifuðu orðum. Þórunn er komin aftur með nefið ofan í bækurnar að búa sig undir próf í lok mánaðarins. 26. janúar verður svo haldið í skíðabrekkurnar á Ítalíu, spurning um að spýta í lófana í vinnu og lestri þangað til...

mánudagur, desember 24, 2007

Aðfangadagur!

Þrettándi var Kertasníkir,
- þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu, glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.


- Jóhannes úr Kötlum

Þá er aðfangadagur runninn upp, eina ferðina enn. Náði næstum því að tæma listann minn af must-do's fyrir daginn í dag að undanskildu því að við nenntum ekki að fara niður í bæ í gær. Verður bara að hafa það, letin vann sigur á jólafílingspakkanum þetta árið. Annars var Kertasníkir eitthvað að ruglast í nótt því að hann gleymdi að gefa mér í skóinn! Þetta er sérstaklega merkilegt í ljósi þess að hann mundi eftir að gefa Þórunni í hennar skó en hann hafði verið svo elskulegur að kaupa handa henni miða á Jesus Christ Superstar þann 29. des. næstkomandi. En hann gaf henni að vísu tvo miða þannig að ég fæ sennilega að fljóta með, samt fúlt að fá ekki neitt, hefði meira að segja sætt mig við skemmda kartöflu frekar en táfýlu og sokkaló...

En ég ætla allavega að óska lesendum mínum gleðilegra jóla og vona að þeir fái nú allir eitthvað fallegt og skemmtilegt í jólagjöf í kvöld. Passið ykkur samt á því að borða ekki of mikið því að það er ekkert eins leiðinlegt eins og að taka utan af pökkunum afvelta. Það getur að vísu reddast ef maður er með eitt stykki pakkasækjara/-lesara sem sér um að koma þeim til manns upp í sófa, þá þarf maður auðvitað ekkert að hreyfa sig. Ætli maður dobbli ekki tengdó bara í það hlutverk og borði massíft yfir sig af steikinni! :D

Gleðileg jól!

sunnudagur, desember 23, 2007

Messa er við Þorlák er kennd...

Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.


Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.


Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.


- Jóhannes úr Kötlum

Windowpeeper, Doorsniffer og Meathook, skrýtin nöfn á þessum jólasveinum. Annars er ekkert skrýtið við það að vera kominn til Íslands, eiginlega bara óttalega hversdagslegt. Fyrir utan auðvitað að þurfa að vera á bíl til að komast á milli staða, veðrið (auðvitað) og að hitta allt fólkið sem maður hefur ekki séð síðan í sumar. Og ég kvarta nú ekki heldur yfir snjófölinni sem er yfir öllu þessa stundina heldur, hleypir jólafílingnum í nýjar hæðir hreinlega!

Er þessa stundina að hlusta á The Christmas Song með Nat King Cole. Hef verið að bíða með það þangað til einmitt í dag, ekki við hæfi að hlusta á þetta lag fyrr því þetta er jólalagIÐ með stórum greini. Á eftir ætlum við svo að kíkja á afana og ömmuna og kasta á þau jólakveðju í samfloti við Dóa og Kaju og svo er stefnan jafnvel sett á Laugaveginn seinna í kvöld, sjáum til hvernig viðrar og hvernig stemmningin verður. Annars verðum við bara heima í rólegheitum eins og lög gera ráð fyrir...

Til að hjálpa til við jólastemmninguna þá er þessi auglýsing alltaf killer... :)

fimmtudagur, desember 20, 2007

4 dagar til jóla

Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o'n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.


Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.


- Jóhannes úr Kötlum

Jæja! Í dag verður haldið á heimaslóðirnar, heim í heiðardalinn, heim á forna slóð. Við lendum klukkan 22:30 þannig að klukkan 23:00 geri ég ráð fyrir rauða dreglinum og móttökunefndinni fyrir utan komuhliðið á Leifsstöð. Að öðrum kosti verð ég mjög, mjög vonsvikinn... ;)

Hentum okkur í bæinn áðan til að kaupa síðustu jólagjafirnar og þeirri síðustu verður svo reddað úti á Kastrup á eftir, ágætt að þetta sé frá og það fyrir þorláksmessu, ákveðið afrek auðvitað. Það verður hinsvegar verra mál að koma þessu öllu til Íslands, sérstaklega í ljósi þess að við förum núna með Iceland Express sem eru MJÖG strangir á yfirviktinni. Ætli við 'svindlum' ekki bara á þeim og hendum öllu í handfarangur, stick it to the man!

Sá svo að Stebbi Steindórs stóð sig vel í jólakortunum þetta árið, hefur sennilega slegið í gegn hjá ættingjunum, ekkert sem segir 'gleðileg jól' eins og gott klám! Femínistarnir góðu hafa svo sett sitt mark á jólaundirbúninginn með sérstöku jóladagatali sem þessi gaur hér er ekki par sáttur við. Skil hann að vísu vel, kann því ákaflega illa að vera stimplaður fyrir það eitt að hafa 'rana'. Þær hljóta líka að vera mjög hrifnar af jólagjöfinni í ár sem svo sannarlega undirstrikar þeirra málstað. Hva, eru fullorðnir karlmenn ekki oftast kallaðir stór börn? Þá er þetta klárlega búð fyrir þá líka... ;)

Svo er víst dýrast að búa á Íslandi og þétt á hæla Íslands kemur svo Danmörk. Skemmtilegt. Gaman að vita til þess að manni tókst að flýja ofríkið til þess eins að fara þar sem það er þó minna, en samt ekki. Svona eins og að fara úr eldinum í öskuna, eitthvað þannig. En bjórinn er að vísu töluvert ódýrari hér þannig að þetta er klárlega ekki að marka (ekki það að það skipti mig nokkru máli)...

Hér er svo enn ein greinin um uppruna jólanna. Verst að Kalli biskup les ekki bloggið mitt, gæti lært eitthvað af þessu. Hann hefði auðvitað líka getað kennt litlu systur hennar Britney Spears sitthvað um blómin og býflugurnar því hún er víst ólétt, rétt orðin sextán ára gömul. Allavega greinilegt að kirkjan er góður hook-up staður. Og það er alveg á hreinu að stóra systir er ekki góð fyrirmynd fyrir þá yngri, ljótu steikurnar, báðar tvær. Álíka steikur eru svo þeir sem handtóku 10 ára stelpuna sem kom með 'hníf' í skólann í Flórída. Nei, vinan, mæta næst með forskorið nesti annars er það bara beint í jail-ið... :D

Og að lokum, þessi gaur hefur greinilega allt of mikinn frítíma...