föstudagur, maí 19, 2006

Júróvisjón

Jæja! Þá geta Íslendingar tekið til við að hneyklast enn eitt árið á þessu fyrirbæri er við Júróvisjón er kennt. Merkilegt hvað þessi þjóðbálkur sem býr á hjara veraldar virðist ekki læra að þegar stóru krakkarnir leika sér saman er ekkert pláss fyrir litla Ísland. Keppnin í ár snerist um það nákvæmlega sama og í fyrra. Ekki hver væri með besta lagið, besta söngin, bestu búningana (eða jafnvel klæðaminnstu) eða bestu sviðsframkomuna, heldur að eiga bestu nágrannana. Og hvaða nágranna á Ísland? Tjah, Færeyjar kannski...

En ég er hinsvegar gríðarlega stoltur af framlagi okkar til þessarar 'keppni' þetta árið. Viðundrið Sylvía Nótt stóð sig með stakri prýði (þó hefði ég viljað að hún léti F-orðið flakka) og gaf keppninni og öllum aðdáendum hennar ansi langt nef. Segja má að hún hafi hreinlega gefið skít í þessa keppni og flassað fingrinum í Evrópu með þessu fína innslagi sínu. Gullsturtan var alveg að gera sig! Svo vona ég að á næsta ári verði framlag okkar til þessarar vitleysu í stíl við framlag Ítala, þ.e. að taka bara ekki þátt og eyða skattfénu í eitthvað gáfulegra...

fimmtudagur, maí 18, 2006

Hjóladagurinn mikli!

Í gær var sko aldeilis hjólað! Byrjaði á því að hjóla í vinnuna, 4,9 km. Eftir vinnu þá hjólaði ég svo með Jonna heim til hans upp á Peter Bangs Vej, 3,8 km. Svo þegar ég hjólaði frá honum hjólaði ég alla leiðina heim, 8,6 km. Samtals gerir það 17,3 km sem ég hjólaði í gær. Og til að gefa nánari útlistun á öllu þessu hjólaríi þá tók það mig 25 mínútur að hjóla frá Jonna og heim sem þýðir að meðalhraðinn hjá mér hafi verið um 20 km/klst sem verður að teljast allgott miðað við aldur og fyrri störf... ;)

En hver var tilgangurinn með því að hjóla heim til Jonna? Jú, í gærkvöldi áttust við Barcelona og Arsenal í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Og þar sem við erum miklir áhugamenn um tuðruspark (og Jonni að auki mikill Arsenal-maður) þá ákváðum við að glápa á leikinn saman. Því miður þá var þetta ekki eins mikil skemmtun og við höfðum ímyndað okkur þar sem norskur dómari leiksins 'drap' hann eftir 20 mínútna leik með því að reka markmann Arsenal af velli. En leikurinn hélt áfram þrátt fyrir það og lauk svo með sigri Barcelona sem eru vel að þessum sigri komnir, sennnilega besta lið Evrópu ef ekki heimsins í dag...

Eftirá að hyggja er kannski bara hið besta mál að Arsenal vann ekki því þá hefur maður það ennþá á Arsenal menn að þeir geti varla talist til stórliðs þar sem þeir hafa aldrei hampað Evrópubikarnum. Að vísu er sömu segja um Chelsea, miðlungsklúbbar báðir tveir. Manchester United og Liverpool hinsvegar (fyrir utan Liverpool auðvitað), það eru alvöru stórlið! :D

skyr.is.dk

(Tek fram að þetta átti að fara inn í gær en þar sem það gekk ekki kemur þetta síðbúið í dag. Ég hendi svo inn nýrri færslu á eftir)

Náði að mæta fyrstur í vinnuna í morgun og fékk þar með þann heiður að slökkva á þjófavarnarkerfinu á skrifstofunni í fyrsta skipti. Heppilega mundi ég kóðann þannig að þetta gekk nokkuð áfallalaust. Tæpara mátti það þó varla vera því að rúmlega mínútu eftir að ég kom mætti fyrsti Daninn en ég hafði hann semsagt á sjónarmun... ;)

Fékk þær gleðifréttir í morgun að Thise Mejeri (sem er danskur mjólkurframleiðandi) sé byrjað að framleiða danskt skyr að íslenskri fyrirmynd og að í gær hafi verið kynning í Illum á góðgætinu þar sem gin-, hala- og klaufaráðherra Íslands hafi meira að segja stungið inn trýninu. Við Jonni vorum auðvitað fljótir til og fórum strax að gera áætlun um að henda okkur í Illum í hádeginu. Runi og Heiðrún höfðu svo samband og úr varð að þau hittu okkur á skrifstofunni og saman fórum við svo hjólandi niður í Illum. Og viti menn, ekkert skyr...

Nei, skyrið var semsagt ekki komið í sölu og fer víst ekki í sölu fyrr en í fyrsta lagi eftir helgina. Skyrkakan sem við hjónin vorum búin að ráðgera að 'baka' verður því víst að bíða í nokkra daga og boozt-ið verður áfram búið til úr jógúrt...

þriðjudagur, maí 16, 2006

Þreyttur þriðjudagur (og mánudagur líka að vísu)...

Ferlega er ég þreyttur núna! Það gæti verið út af því að ég var að vinna alla helgina á fullur fram undir kvöld eða af því ég vaknaði klukkan sex í gærmorgun og vann linnulaust til klukkan að ganga níu eða kannski af því að ég vann sleitulaust í dag án þess að taka mér almennilega hádegispásu. Svo hjálpar nú sennilega ekki að áðan var æfing sem endaði svo í æfingaleik við dansk-skoska liðið Celtic. Allt hjálpar þetta sennilega til...

Í gærkvöldi var ég kominn upp í rúm klukkan hálf tíu, já, þið lásuð rétt, hálf tíu! Einhvern tímann hefði þetta þótt aumingjaskapur hinn mesti (og þykir sennilega líka núna) en mér til varnar þá fór ég ekki að sofa því við hjónin horfðum á nokkra þætti fyrir svefninn. Fyrstar riðu Hugstola húsmæður á vaðið (lesist Aðþrengdar eiginkonur) með einn þátt og í kjölfarið komu svo Kynóðar kerlingar (lesist Beðmál í borginni) með þrjá þætti í ofanálag...

Ég viðurkenni það fúslega að ofangreindir þættir eru bara fyrir kerlingar og/eða homma þannig að þið, lesendur góðir, megið bara ákveða í hvorn hópinn ég fell að þessu sinni. Sennilega á ég bara best heima í báðum, allavega bíða mín tveir glóðvolgir þættir af Læknalífi (lesist Grey's Anatomy) sem eru svo sannarlega ekki til þess fallnir að ýfa upp karlmennsku mína. En maður verður víst bara að sætta sig við það... ;)

mánudagur, maí 15, 2006

Snemmbúni fuglinn nær fyrsta orminum

Í gær var nú meiri dagurinn! Vaknaði eldsnemma og vann í eina tvo tíma áður en ég þurfti að halda af stað í leikinn við FC Jyden en fyrir þá sem ekki vita þá eru Jyder þeir sem koma frá Jótlandi. Það var mæting klukkan 10:30 og leikurinn byrjaði svo klukkan 11:45. Nokkrir voru frekar 'þreyttir' eftir átök laugardagsins en allir vel stemmdir, sérstaklega Liverpool menn sem mega vel við una að hafa náð enska bikarnum með stórglæsilegu jafntefli við West Ham. Magnað að 'vinna' bikar fyrir jafntefli, en svona er þetta víst bara. En aftur að leiknum...

FC Ísland stillti upp nánast óbreyttu liði frá því um síðustu helgi fyrir utan örlitlar breytingar þar sem það virðist aldrei hægt að hafa sama hópinn tvo leiki í röð. Vörnin var óbreytt og stóð sig með stakri prýði ef undan er skilið eina alvöru færi FC Jyden sem þeir nýttu afskaplega vel til að skora mark og komast yfir eftir um 15 mínútna leik. En FC Ísland gefst að sjálfsögðu aldrei upp og tókst að jafna um 3 mínútum síðar með skallamarki frá Jóni Auðunni þjálfara. Leikurinn var svo í járnum það sem eftir lifði fyrri hálfleiks þar sem FC Ísland lék undan sterkum vindi sem liðið átti erfitt með að hemja boltann í. Hálfleikstölur voru því 1-1 sem verður að teljast nokkuð sanngjarnt miðað við gang leiksins.

Mun betur gekk að hemja boltann í síðari hálfleik því það getur oft verið betra að sækja á móti vindi, þá neyðist liðið til að halda boltanum niðri og spila í fæturnar. En FC Jyden spiluðu fína vörn og eru sennilega með betri liðum sem FC Ísland hefur spilað við undanfarin ár. En að lokum rofaði til þegar Addi sendi hárnákvæma sendingu inn í teig eftir hornspyrnu beint á kollinn á Karfanum sem nýtti færið vel og kom FC Íslandi yfir 2-1. Eftir þetta lögðu FC Jyden allt kapp á að jafna en allt kom fyrir ekki og brutust út mikil fagnaðarlæti í herbúðum FC Ísland þegar dómarinn flautaði til leiksloka. 2-1 sigur á góðu liði FC Jyden staðreynd og FC Ísland loksins komið á beinu brautina í deildinni. Hauuuuuuuuuuuuu!

Eftir leikinn fór ég beint heim að vinna og vann linnulaust til að ganga ellefu þegar ég gafst upp. Vaknaði svo eldsnemma í morgun til að halda áfram og náði að klára það allra nauðsynlegasta í vinnunni áður en 'Ísland' fór á stjá. Ah, tímabelti, eases the pain...