laugardagur, mars 25, 2006

Best er að vera einn í biðröð...

Þeir sem þekkja mig vel vita að ég þoli ekki að standa í biðröð. Alveg sama hvar eða af hvaða tilefni, biðraðir eru satan í mínum augum. Því var það frekar hjákátlegt að ég skyldi bruna af stað rétt fyrir tíu í morgun til þess einmitt að standa í biðröð! Að vísu var ærið tilefni, klukkan tíu átti að byrja að selja miða á Radiohead tónleika sem verða í KB Hallen 6. og 7. maí. Ég var mættur rétt eftir tíu og sá strax að röðin var minni en ég hafði gert ráð fyrir. Ég bjóst því bara við að þetta myndi ganga eins og smurt, how wrong I was...

Hafði talað um það við Jonna daginn áður að við myndum gera þetta þannig að hann reyndi að kaupa miða á netinu (sem við gerðum ráð fyrir að myndi klikka) en ég færi á staðinn þar sem það væri meira 'pottþétt'. Klukkan 10:15 (ca.) byrjaði hann að reyna að kaupa miða. Þegar hér var komið sögu hafði ekki einn einasti í röðinni í FONA í Amager Center (þar sem miðasalan var) ennþá keypt miða. Tuttugu og fimm mínútum síðar (ca.) hringir Jonni og segir mér að hann sé búinn að fá tvo miða og að á netinu standi að það sé orðið uppselt. Enn var ekki búið að selja einum einasta manni í röðinni sem ég var miða. Stuttu síðar kemur svo búðarstjórinn og tilkynnir að uppselt sé á tónleikana en hægt sé að skrá sig á biðlista...

Ég semsagt dreif mig af stað til að standa í biðröð! Ekki var það allavega til að kaupa miða því þeir voru greinilega ekki að gera það í FONA í morgun því að ekki einn einasti maður í röðinni þar fékk miða (leiðinlegt að vera fremstur þar). FONA kenndi tölvukerfinu um, tölvukerfinu sem seldi samt 20þ miða á þessum næstum klukkutíma sem ég beið þarna. Góð þjónusta? You bet...

Annars fórum við Jonni í helvíti gott partý í gær hjá Baldvin (sem varð þrítugur) og Elínu (kærustunni hans). Nóg af bjór (fyrir hina, gos fyrir mig), pylsum, karaóki, Singstar og fótboltaspil. Skemmst er frá því að segja að Jonni skipulagði mót í fótboltaspilinu með átta liðum og tveimur riðlum. Við félagarnir (liðið okkar hét Pinball Wizards (löng saga sem ég segi kannski frá seinna)) rústuðum okkar riðli og fórum því í undanúrslit þar sem við unnum Kjúklingana 10-1! Úrslitaleikurinn var svo æsispennandi en að lokum höfðum við sigur á Eika bikar og Prummanum 10-8. Til að kóróna þetta allt saman vann ég svo Jonna í Singstar þar sem við breimuðum Wake Me Up (Before you Go-Go) með Wham! með tilheyrandi hávaðamengun. Gæðin voru kannski ekki mikil en sigur er alltaf sigur! ;)

Við hjónin fórum annars í smá bæjarferð áðan að eyða pening. Það gekk stórvel...

fimmtudagur, mars 23, 2006

Og enn er ekkert að gerast...

Miðvikudagur (í gær semsagt). Vaknaði, fór á fætur, vann, át, fór aftur að sofa. Dagur búinn
Fimmtudagur. Vaknaði, fór á fætur, er að byrja að vinna...

Sjáið þið eitthvað mynstur í þessu? Ef ekki væri fyrir fótboltann og handboltann þá væri sennilega hægt að setja lýsingu á minni aumu ævi í eina línu. Hversu sorglegt er það nú?!? Heppilega er ég ekki sá eini og í sumum tilvikum má jafnvel segja að ég lifi spennandi og fjölbreyttu lífi samanborið við aðra. En samt sem áður, ekkert allt of spennandi. Þess vegna er það afskaplega heppilegt að í dag/kvöld skuli vera æfing í bæði fótboltanum og handboltanum! :D

Ég er einn af þeim sem fær æði fyrir ákveðnum hlutum í x langan tíma. Í dag eru það appelsínur, fæ bara ekki nóg af appelsínum! Er búinn að borða þau í kílóavís undanfarna daga. Kaupum 6-10 stykki og það klárast yfirleitt á 24-36 tímum, jafnvel fyrr (Þórunni til mikillar armæðu). Spurning hvað verður svo næsta æði hjá mér, get allavega lofað því að það verða ekki sveppir, hnetur, rúsínur eða ólífur... ;)

Annað sem ég er svakalega hrifinn af (og gerir mig töluvert gay fyrir vikið) er Extreme Makeover: Home Edition! Er eiginlega 'my secret hobby' að horfa á þennan þátt (ekki kannski voðalegt leyndarmál lengur samt). Eitthvað við þetta sem heillar mig. Kannski það að þau (fólkið sem eru með þáttinn) ná alltaf að byggja geðveikt flott hús á ótrúlega skömmum tíma (7 dögum) eða það að alltaf skuli þau finna fólk sem þarf virkilega á því að halda. Ég er kannski bara svona mikill sucker fyrir drama og gráti (sem er nóg af í þessum þáttum (og gerir mig jafnvel enn meira gay fyrir vikið))... :D

þriðjudagur, mars 21, 2006

Enn um ekkert

Fékk glaðning í póstinum í gær! Alltaf gaman að fá glaðning en þessi var sérstaklega gleðilegur því þetta var svokallað ActivCard frá BG Bank (okkar banki) sem gerir mér loksins mögulegt að komast í netbankann á tölvunni minni. Hef hingað til þurft að nota gömlu beygluna hennar Þórunnar (sem er PC vél btw) með tilheyrandi pirringi og bið. Núna get ég semsagt loksins farið að millifæra hægri vinstri út um alla borg á minni eigin vél! Kominn tími til, segi ég... ;)

Við hjónin hentum okkur í samstarfsverkefnið 'Kvöldmatur' í gær með tilheyrandi góðum árangri. Verkefnið að þessu sinni fólst í því að breyta hráefnum í lasagna. Hráefnin voru ekki af verri endanum og í 'boði' SuperBrugsen. Vegna mikillar og góðrar framleiðslu verður ekkert samstarfsverkefni í kvöld því afrakstur gærkvöldsins nægir fyllilega auk þess sem við ætlum að fá Sigríði mágkonu til að hjálpa okkur að klára það sem eftir er...

Hef lengi verið að velta því fyrir mér hvað hljómsveitin Hjálmar heitir í raun og veru. Heitir hún Hjálmar (et.) eða heitir hún Hjálmar (ft.)?!? Ekki að þetta skipti einhverju máli en getur þó gert það ef þeir hyggja á landvinning erlendis. Þá myndi hún annað hvort heita Helmet eða Helmets á ensku en gæti heitið því fína nafni Helmut á þýsku sem væri stórskemmtilegt (læt fleirtöluna á þýsku eiga sig)...

Æfing á eftir (klukkan fjögur), tæklað við nára. Ef ekki a.m.k. einn fer á slysó þá tel ég þetta slappa æfingu...

mánudagur, mars 20, 2006

Platbrúðkaup?!?

Var að frétta það að brúðkaup okkar 'hjónanna' síðasta sumar hafi ekki átt sér stað í raun og veru. Allavega ekki ef miðað er við Ríkisskattstjóra og skattframtölin hans. Fór inn á framtalið mitt áðan og fékk upp að ég væri með fjölskyldumerkinguna 1+0+0 sem þýðir basically að ég sé einhleypur og barnlaus. Þó ég viðurkenni fúslega að ég sé barnlaus þá er bara nett rugl að ég sé einhleypur. En þeir segja þarna að þetta séu upplýsingar frá þjóðskrá frá því 1. desember 2005 og varla fara þeir nú að ljúga þessu... ;)

Ætlaði auðvitað að hringja og kvarta yfir þessari vitleysu blessaðs Ríkisskattstjóra og láta kallinn kippa þessu í liðinn fyrir mig en nei, nei, mátti dúsa í símanum í um tuttugu mínútur til þess eins að láta segja mér að hringja í annað númer. Og þegar ég var búinn að bíða í aðrar tuttugu mínútur þar þá gafst ég upp. Ríkisskattstjóri fær því smá gálgafrest í bili...

Eftir stendur semsagt að ég er einhleypur (og Þórunn þá væntanlega líka). Samt erum við með pappíra sem staðfesta ráðahaginn. Greinilegt að sá pappír er ekki mikils virði... :D

sunnudagur, mars 19, 2006

Sólardagur

Þá er helgin víst yfirstaðin (eða því sem næst) og ný vinnuvika tekur við í fyrramálið. Að vísu var ég bara nokkuð duglegur að vinna um helgina þannig að vonandi verður 'vinnuvikan' auðveldari fyrir vikið. En ef eitthvað er hægt að læra af reynslu fyrri vikna þá er það borin von...

Þetta var helvíti fín helgi í flesta staði, ef frá er skilinn æfingaleikurinn í fótboltanum á föstudagskvöld (sem ég ætla aldrei að minnast á aftur eftir þetta). Handboltaleikurinn í gær var stórskemmtilegur og endaði með mjög sannfærandi (en þó síst of stórum) sigri IF Guðrúnar, 32-22. Laddi hornamaður var með 50% nýtingu í skotum sínum og setti eitt kvikindi auk þess að fiska víti og láta reka sig útaf í tvær mínútur. Allt afskaplega skemmtilegt! :D

Fór eftir leikinn á Shamrock og hitti drengina í fótboltaliðinu og horfði með þeim á United vinna W.B.A. 1-2 í fínum leik. Eftir leikinn var haldið beint til Stefáns, Sóleyjar og Margrétar Nætur/Nóttar og étinn tandoori kjúklingur með heimagerðu nan brauði og svo súkkulaðikaka í eftirrétt, allt voða gott og girnilegt.

Við hjónin ákváðum svo að hætta snemma að læra/vinna í dag og fórum út að borða á litla ítalska staðnum 'okkar' og fórum svo í bíó að sjá Matthew "Mahogany" og Söruh Jessicu "Sex and the City" Parker í rómantísku gamanmyndinni Så flyt dog, eins og hún heitir á ástkæru ylhýru dönskunni. Engin stórmynd en ágætis afþreying, allavega alltaf jafn gaman af Mahogany-inu... ;)

Og til að kóróna alla gleðina um helgina þá vann Fulham 1-0 sigur á Chelsea fyrr í dag (Liverpool vann þó, en þeir geta samt ekki neitt). Ain't life grand?! :D