föstudagur, nóvember 24, 2006

Svartur föstudagur

All generalizations are false, including this one.
Mark Twain

Nei, góðir hálsar, ég er ekki lagstur í þunglyndi því dagurinn í dag er einmitt kallaður þetta hjá Kananum, Black Friday. Þetta er semsagt sá dagur þar sem jólaverslunin hefst í Bandaríkjunum og þeir kalla hann svartan vegna þess að eftir daginn í dag þá er bókhaldið hjá búðunum ekki lengur í mínus (sem er táknað með rauðu) heldur í plús (sem er táknað með svörtu). Það sem meira er þá er þetta sögulega mesti verslunardagurinn í almanaksárinu þar vestra og því nokkuð ljóst að kreditkort verða straujuð grimmt og ógurlegt magn af seðlum mun skipta um hendur. Og þá vitið þið það... :D

Sólveig mætti hérna galvösk í gær eftir millilendingu í Osló, af öllum stöðum. Það fara ekki nema fjórar (eða kannski fimm) flugvélar á hverjum degi frá Keflavík til Kaupmannahafnar en samt sem áður var ekki pláss fyrir alla sem vildu komast þarna á milli í gær, magnað. Við hentum okkur út að borða og fengum okkur thailenskan mat á Sætu basil sem er staddur rétt við Kóngsins nýjatorg. Fínn matur og fljót og góð þjónusta. Gef staðnum hiklaust þrjár stjörnur...

Á morgun mæta svo Eiki og Lára í hús og þá verður rokkað feitt eins og þeim einum er lagið. Fyndið með þetta orð 'feitt' sem er farið að nota yfir eitthvað sem er 'magnað' eða 'stórgott'. Danir segja einmitt líka að eitthvað sé 'fedt' og eiga þá við nákvæmlega sama hlutinn. Báðar þjóðir (og sennilega fleiri) hafa gripið þetta úr ensku en vandamálið er að þar segja þeir ekki 'fat' heldur 'phat' sem einmitt þýðir 'frábært' en varð víst upphaflega til þegar verið var að lýsa kynæsandi og aðlaðandi konum (ekki endilega feitar semsagt). Ég ætla því að leggja til að framvegis segist fólk bara ætla að rokka vel og duglega eða kannski af mikilli hörku, þetta 'feitt' er allavega ekki að gera sig fyrir mig... ;)

fimmtudagur, nóvember 23, 2006

Þakkargjörð!

Women: Can't live with them, can't bury them in the back yard without the neighbours seeing.
Sean Williamson

Í dag er fjórði fimmtudagurinn í nóvember og það getur bara þýtt eitt, um allan heim þakka Bandaríkjamenn æðri máttarvöldum fyrir uppskeru sumarsins. Já, enn og aftur er Þakkargjörðarhátíðin gengin í garð! Í kvöld munu því Kanar heimsins troða í sig kalkúni með fyllingu, sætum kartöflum, trönuberjasósu, maís og í eftirrétt er svo graskerjabakan ómissandi. Öllu þessu sporðrenna þeir á meðan/eftir að þeir hafa horft á leiki dagsins í NFL sem venjulega eru spilaðir á sunnudögum en í tilefni dagsins eru þeir hafðir í dag. Sá um daginn að það er hægt að panta borð á Hard Rock hér í Köben í ekta amerískan þakkargjörðarkvöldverð en ég held að maður láti það vera, þessi graskerjabaka hljómar ekki alveg nógu spennandi... :P

Sá í fréttunum áðan að Margrét Danadrottning er víst hætt að reykja, opinberlega, en það fylgdi víst fréttinni að hún væri samt sem áður ekki hætt að reykja?!? Hvaða bull er þetta eiginlega??? Skiptir einhverju máli hvort hún reykir opinberlega eða ekki þegar allir vita að hún er hvort eð er ekki hætt að reykja? Ætlar hún þá að taka sér reykpásur á meðan hún sinnir opinberum störfum. "Fyrirgefðu, kanslari, ég ætla að bregða mér í stutta reykpásu en við ræðum ástandið í Mið-Austurlöndum þegar ég kem til baka..."

Sólveig, mágkona nr. 2 og systir nr. 3, er víst að koma til landsins í dag og verður hjá okkur í nótt (held ég). Hún fer svo áleiðis til Árósa (eða Álaborgar, same difference) á morgun og kemur aftur á sunnudag. Veit ekki hvort þetta þykir eitthvað fréttnæmt, fannst bara rétt að koma orðum að þessu... ;)

Svo á hann Grímur Jónsson víst afmæli í dag! Við bjóðum hann hér með velkominn í 29 klúbbinn! :D

miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Þetta er fyrirsögn...

Only two things are infinite, the universe and human stupidity, and I'm not sure about the former.
Albert Einstein

Maður er eitthvað voðalega tuskulegur í dag. Ástæðan gæti verið sú að í gær eftirmiðdag fór í ræktina að lyfta og fór svo líka í fótbolta í gærkvöldi. Fyrir mann á mínum aldri er það sennilega of mikið. Önnur ástæða gæti líka verið almennur aumingjaskapur, ætli það sé ekki líklegri skýring...

Er svo að segja kominn með upp í kok af kalkúni þessa dagana enda vorum við að borða afganga frá því á sunnudag í annað sinn í gærkvöldi! Það er vísu mest mér sjálfum að kenna því ég hef greinilega erft það frá föður mínum að vilja alltaf hafa nóg af öllu þegar ég býð fólki í mat. En þegar maður eldar svo mikið að það er nóg í afganga í heila viku á eftir þá þarf sennilega eitthvað að staldra við og hugsa sinn gang. Heppilega var það lítið eftir af kalkúninum eftir kvöldmatinn í gær að við gátum með góðri samvisku hent restinni, en það er allavega á hreinu að það verður ekki kalkúni aftur í bráð á okkar heimili, o sei sei nei! ;)

Las svo í MetroXpress í morgun að Robert Altman er víst látinn, 81 árs að aldri. Kannski ég láti loksins verða af því að fara og kaupa M*A*S*H á DVD, eins og staðið hefur til í lengri tíma, honum til heiðurs...

mánudagur, nóvember 20, 2006

Glæpavettvangsrannsókn

I once wanted to become an atheist, but I gave up - they have no holidays.
- Henny Youngman

Af því að ég gleymdi nú degi íslenskrar tungu um daginn þá fór algjörlega framhjá mér þessi umræða um hvort þýða ætti titla á kvikmyndum í kvikmyndahúsum yfir á ástkæra ylhýra. Ég verð eiginlega að lýsa yfir ánægju minni með þessa umræðu því ég tel hana eiga fyllilega rétt á sér, ekki til þess að vernda íslenska tungu þó heldur vegna hinnar ómældu ánægju, gleði og kátínu sem þessar nafngiftir munu hafa í för með sér. Hver man t.d. ekki eftir 'Tveir á toppnum' (Lethal Weapon, allar fjórar) eða 'Pottormur í pabbaleit' (Look Who's Talking, allar þrjár)? Ég vil fá meira í þessum stíl, ekkert betra en að hlæja vel og innilega yfir 'góðri' þýðingu á erlendum titli. Það þarf bara að ganga lengra, þýða bara hvað sem er þannig að við getum horft á 'Líffærafræði Grás', 'Suðurgarðinn', 'Kvikmyndaver 60 á Sólsetursstræti' og 'Glæpavettvangsrannsókn' með smá íslensku ívafi. Held að þess háttar þróun myndi bara gera gott afþreyingarefni enn betra... ;)

Annars var helgin frekar róleg. Kíkti á Sheffield United vs. United heima hjá Gussa með þeim Oddi og Sigga á laugardeginum (United vann 2-1). Fórum svo í mat til Runa og Heiðrúnar um kvöldið og hittum þar fyrir Jonna og Erlu með púkann. Sátum þar langt fram á nótt við gott spjall um tilgang lífsins, jólagjafainnkaup og stöðu íslensku sauðkindarinnar. Vorum svo sniðug að fara til þeirra á hjóli þannig að við fengum líka rómantískan hjólreiðatúr heim aftur í kaupbæti!

Í gær henti ég mér svo með þeim B-Man og Johnny G á D3 Expo sem var haldinn um helgina. Þar var verið að sýna hin ýmsustu tól og tæki, sáum t.d. nýjustu afurðina frá Nintendo sem er stórsniðug leikjatölva sem setur notandann bókstaflega í bílstjórasætið því að leikirnir eru ekki spilaðir á hefðbundna mátann heldur notar maður fjarstýringuna sem sverð, spaða, kylfu, boxhanska eða hverju því sem við á hverju sinni. Stórskemmtileg nýjung og gaman að sjá að einhverjir eru til í að prófa eitthvað nýtt í þessu en festast ekki í sama gamla farinu. Vonbrigði sýningarinnar var samt Sony sem sáu sér ekki fært að mæta með nema mjög takmarkaðan fjölda af PS3 vélum og fyrir vikið var klukkutíma röð til þess eins að sjá gripinn. Við nenntum því að sjálfsögðu ekki, frekar lame hjá Sony að mínu mati...

Í gærkvöldi komu svo Hanna Gunna og Ómar með skvísuna í heimsókn og fékk mágkonan að fljóta með líka. Elduðum handa þeim turkey á la Lára Eika sem rann vel ofan í mannskapinn. Þórunn hafði svo búið til skyrtertu í eftirrétt. Óhætt að segja að það fór enginn svangur í bælið það kvöldið... :D