laugardagur, mars 18, 2006

Dagur fyrir laugar

Úff! Ekki gekk þessi æfingarleikur eins og til var ætlast. Honum lauk með leiðinlegu 4-1 tapi fyrir frískum Baununum. Samt var alveg ótrúlegt hvað við klúðruðum mörgum dauðafærum í þessum leik. Held að þeir hafi þrisvar sinnum bjargað á línu og við klúðrar fjórum eða fimm öðrum dauðafærum. Í þokkabót fengu þeir ekki nema þrjú alvöru færi en skoruðu samt fjögur mörk. Eiginlega alveg magnað. En ef við lítum á björtu hliðarnar þá örlaði á góðu spili svona inn á milli...

Eins og sönnum Íslendingi sæmir hef ég tekið saman góðan 'afsökunarlista' fyrir tapinu (annað væri lélegt):
  • Völlurinn var slæmur
  • Léleg birtuskilyrði
  • Boltinn loftlaus
  • Við slakir og í lélegu formi
  • Dómarinn blindur
  • Hitastigið

Ef listinn er skoðaður sést að það er nánast allt þarna sem hafði líka áhrif hitt liðið þannig að það eina sem stendur eftir er að við vorum slakir og í lélegu formi. Við verðum því bara að girða okkur í brók og reyna að laga það sem úrskeiðis fór fyrir fyrsta leik sem er eftir um þrjár vikur. Fall (eða tap) er fararheill!

Haukur handboltaþjálfari hafði svo samband í gær og plataði mig til að keppa í handbolta á eftir sem ég ætla að sjálfsögðu að gera. Svo erum við boðin í mat til Stefáns og Sóleyjar (og Margrétar Nætur/Nóttar). Ætla víst að kokka upp indverskan fyrir okkur hjónin (já, og Sigríði líka, það þarf víst að koma fram). Stefnir í góðan dag, sjáum til eftir handboltaleikinn samt... ;)

föstudagur, mars 17, 2006

Flösudagur

Mikið getur maður stundum verið vitlaus! Og þegar ég segi 'maður' þá meina ég auðvitað ég og Þórunn... ;)

Eins og ég hef margítrekað þá hefur verið ansi kalt og hráslagalegt hérna undanfarið og fyrir vikið höfum við þurft að blússkynda í kofanum. En af einhverri ástæðu var alltaf jafn kalt við skrifborðið hennar Þórunnar! Vorum helst á því að það væri að tapast svona mikill hiti í gegnum gluggana (eru stórir við skrifborðið) því fremri hluti herbergisins er í fínu hitastigi (þar er að vísu ofninn). En þessi bakhluti hefur verið til stökustu vandræða frá því það fór að kólna svona hressilega.

En í gær kom semsagt skýring á þessum stöðuga og viðvarandi kulda (sem hefur aldeilis ekki hjálpað til við lesturinn hjá Þórunni). Á einum glugganum er efst svona lítill 'gaur' sem maður getur opnað og lokað til að hleypa inn smá lofti. Er afskaplega lítill og ómerkilegur. Í raun svo ómerkilegur að ég vissi ekki einu sinni af honum! Og að sjálfsögðu hefur þessi 'loftræstigaur' verið opinn frá því við fluttum inn (sennilega) og skýrir að öllu leyti kuldann í herberginu. Lokuðum honum og viti menn, loksins líft að sitja við blessað skrifborðið. Já, svona er maður stundum í ruglinu... :P

Í dag er dýrlingsdagur heilags Patreks og munu án efa margir Írarnir (og Framsóknarmenn) skála hressilega fyrir kauða í Guinness í allan dag með græna loðhúfu á haus. Skál fyrir Patta!

Annars er ég að gera mig kláran í fyrsta 'alvöru' fótboltaleik ársins (hjá mér þ.e.). IF Guðrún mun mæta De Grønne Bude í æfingaleik núna í kvöld klukkan 19:30 á gervigrasinu í Ryparken. Áhugasamir eru hvattir til að mæta, aldrei að vita nema það verði gleði á Dubliners á Strikinu eftir leik með Guinness í annarri og pølse í hinni. Það er víst viðeigandi þegar mótherjinn er eins 'grænn' og nafnið gefur til kynna...

fimmtudagur, mars 16, 2006

Fimmti dagur vikunnar (en samt næst síðasti...)

Við hjónin erum orðin afskaplega gömul og þreytt. Þetta sést best á því að við erum venjulega komin upp í rúm um tíuleytið og aldrei seinna en ellefu (nema einstaka sinnum um helgar). Yfirleitt þá horfum við á eitthvað saman uppi í rúmi, Friends, Wonder Years eða nýjasta æðið, American Idol. Erum eiginlega hrikalega sorgleg, allavega nokkuð ljóst að ef menn eru að leita að stuðboltum, þá er Bremensgade 17, 2. hæð til vinstri allra síðasti staðurinn sem leitað verður á...

En við reynum þó að streitast á móti þessari elli og þreytu eins og við mögulega getum. Við fórum t.a.m. í ræktina í gær og lyftum eins og við ættum lífið að leysa. Vil nú eiginlega meina að öll þessi hreyfing sé að stuðla að þessari miklu kvöldþreytu okkar (allavega er það ágætis afsökun). Annars er nú undarlegt að vera að tala um elli, erum ekki einu sinni kominn á fertugsaldurinn ennþá (þó stutt sé í það þó). Kannski maður þurfi bara að fara að taka Rítalín, þá er allavega ljóst að maður hættir að vera svona þreyttur á kvöldin... ;)

Sigríður mágkona kíkti í kvöldmat til okkar í gær. Buðum henni upp á dæmigerðan 'heimamat', afganga af plokkfiski, grjónagraut og rúgbrauð með síld og eggjum. Afskaplega danskt og skemmtilegt (að vísu ekki plokkfiskurinn). Talandi um grjónagraut, síðasta vígið er fallið! Þórunn barði það í gegn að mega setja rúsínur í grautinn í gær (ég þoli ekki rúsínur í grjónagraut) og merkilegt nokk þá át ég það bara án þess að kvarta. Og því miður þá var það alls ekki eins slæmt og mig minnti að það væri (hef kannski aldrei borðað þetta áður, gæti verið). Þannig að nú er ekkert eftir nema ólífur, og þær ætla ég sko aldrei að éta...nema Þórunn plati mig til þess, að sjálfsögðu ;)

miðvikudagur, mars 15, 2006

Mið vika

Svei mér þá ef vorið er ekki bara á næstu grösum! Ég ætla meira að segja að vera svo bjartsýnn og fullyrða að það sé byrjað að vora hér í Kaupmannahöfn. Ég hef að sjálfsögðu engar sannanir fyrir þessari fullyrðingu minni aðrar en þær að rétt áðan hófst ofankoma (léttvæg að vísu) og í fyrsta skipti í langan tíma er þar á ferðinni regn en ekki snjór. Já, svei mér þá ef það er ekki bara vor í lofti! :D

Með vori og hækkandi sól verður allt miklu skemmtilegra og frískara. Var t.d. úti í búð áðan og SuperBrugsen eru farnir að selja aftur vatnsmelónur eftir langt og 'gott' vetrarhlé. Er alveg gríðarlega sólginn í vatnsmelónur þannig að þetta er sérlega mikill happafengur fyrir mig. Myrkrið kemur líka töluvert seinna orðið og í þessum skrifuðu orðum er ennþá ekki orðið aldimmt þó klukkan sé rétt að verða sjö. Svo verður klukkunni hnikað í lok mánaðarins þannig að það þýðir að það verður enn lengur bjart á daginn. Gleði, gleði, gleði um sumartíð!

Fór á fótboltaæfingu með strákunum í gær. Mikil gleði og húllumhæ og hopp og hí og tralala. Skiptum í lið þannig að þetta var (nokkurn veginn) United á móti Liverpool. Það ber þó að geta þess að fjöldi Liverpool aðdáenda er greinilega á hraðri niðurleið (er tegund í útrýmingarhættu sennilega) því þeir þurftu að fá lánsmenn frá Tottenham og Arsenal og meira að segja einn United mann til að byrja með. Úrslit leiksins varða hinsvegar við þjóðaröryggi og verða því ekki tíunduð hér. Í raun verður aldrei aftur minnst á þennan leik, punktur...

þriðjudagur, mars 14, 2006

Ekki hættur...

Það er afskaplega gaman að vita til þess að það er einhver þarna úti sem greinilega er að lesa þvæluna sem vellur upp úr mér. Allavega hafa mér núna borist tvær kvartanir yfir því að ég hafi núna látið líða fjóra daga án þess að henda inn færslu. Á því eru þó afar eðlilegar skýringar. Gulli félagi hefur nefnilega verið í heimsókn hérna síðan á föstudag og var að fara heim í gær...

Já, Gulli kallinn var semsagt hérna í heimsókn yfir helgina og það var bara svona líka fínt. Sérstaklega í ljósi þess að fyrir vikið var þetta helgi mikillar afslöppunar og skemmtilegheita. Við horfðum á fótbolta, spiluðum fótbolta, fórum í klifur (sem ég sökka í btw) og vorum að spóka okkur í bænum. Svo eyddum við líka dágóðum tíma í að gera bara ekki neitt, glápa á vídeó og slaka vel á. Semsagt, hin fullkomna uppskrift að góðri helgi!

Ekki spillti svo fyrir að United tók Newcastle í bakaríið á sunnudaginn og Liverpool tapaði fyrir Arsenal í kjölfarið. Menn eru jafnvel að tala um eina allra bestu viku síðustu ára. Verst að hún er núna að baki... :(