...og meira af sænskum kjötbollum!
Mér finnst sænskar kjötbollur alveg svakalega góðar! Sérstaklega finnst mér góðar sænsku kjötbollurnar sem maður getur fengið í 'mötuneytinu' í IKEA. Eini gallinn er að þá þarf maður actually að fara í IKEA...
Jonni félagi hafði einhvern tímann á orði að maður eyddi sennilega 20% af ævinni í IKEA. Miðað við eigin reynslu þá held ég að þetta sé nokkuð nærri lagi, ef ekki bara vanáætlað. Ferð í IKEA er alltaf allur dagurinn og jafnvel meira ef maður fær ekki allt sem maður ætlar að kaupa...
Við hjónin fórum semsagt í IKEA í gær því okkur vantaði, aðallega, hillur í geymsluna sem var orðin svo stútfull af drasli að það var ekki hægt að komast þangað inn lengur (er 1,86 m2 og 4,65 m3 (svona gróflega áætlað) þannig að plássið var ekki mikið fyrir) og svo eitthvað annað smálegt (skiptir í raun engu máli). Það sem gerist svo alltaf er að þetta tekur bara endalausan tíma! Við vorum að fara að kaupa afskaplega fáa hluti og hefðum þá (eðlilega) átt að vera snögg að þessu, but NO!!! Fyrir það fyrsta eru búðirnar endalaust stórar og maður neyðist (nánast) til að labba í gegnum allt (í gegnum mannþröng nota bene) bara til að komast í það sem maður ætlar að skoða/kaupa. Í annan stað er mjög lítið af starfsfólki til að aðstoða mann ef maður þarf hjálp og ef maður slysast til að fá hjálp þá er hún af ákaflega skornum skammti (þeir græða nefnilega á því að láta kúnnan gera allt sjálfan). Í þriðja lagi er svo yfirleitt það sem þú ætlar svo að kaupa (og ert búinn að finna eftir langa mæðu) yfirleitt uppselt þegar þú ferð í 'Sæktu-það-sjálfur' hluta verslurinnar! Og svo til að toppa það eru auðvitað endalaust langar raðir því að það eru fáir mjög kassar og mjög margir kúnnar (framboð og eftirspurn einhver?!?).
Semsagt, þessi ferð í IKEA 'kostaði' okkur rúmlega sex tíma af okkar lífi, tími sem mér finnst IKEA skulda mér að hluta. Heppilega fyrir þá er dótið sem maður kaupir hjá þeim ódýrt...
