laugardagur, maí 06, 2006

Slakur á kantinum...

Dagurinn í dag verður lengi í minnum hafður. Forsaga málsins er sú að klukkan 13:30 að staðartíma (danskur tími) þá áttum við í FC Ísland leik við Team Punanni, lið sem hafa nokkrum sinnum mæst áður á knattspyrnuvellinum í leikjum sem allir hafa verið harðir og spennandi. Í dag varð ákveðinn undantekning á þeirri reglu...

Nú halda kannski sumir að liðið í heild sinni hefði spilað illa og skíttapað en svo var alls ekki! Við vorum að spila okkar besta leik það sem af er tímabilinu og allir í liðinu að berjast eins og þetta væri þeirra síðasta og í hálfleik vorum við orðnir einum manni fleiri, þar sem einn í liði Punanni fékk rautt spjald, og þremur mörkum yfir. Í síðari hálfleik kem ég svo inn á vinstri kantinn, stöðu sem ég hef ekki spilað síðan ég veit ekki hvenær. Eftir um fimm mínútna leik þar kemur sending inn í teig Punanni, Oddur karfi (því hann brann heldur duglega í góða veðrinu) skallar boltann yfir markvörðinn og boltinn er á léttu skoppi fyrir framan opið markið. Það eina sem ég þurfti að gera var að reka höfuðið eða fótinn í boltann og skora einfalt mark...

Ég veit eiginlega ekki hvað gerðist. Kannski var þetta of einfalt færi, kannski hafði ég of mikinn tíma, kannski blindaðist ég af sólinni (var að vísu með hana í bakið á þessu augnabliki) eða kannski er ég bara ekki nógu sterkur skallamaður. Allavega þá tókst mér ekki þetta annars einfalda verk að setja boltann í netið! Boltinn skoppaði nokkrum sinnum fyrir framan mig og þegar ég mundaði höfuðið þá hitti ég boltann illa og í staðinn fyrir að sjá boltann liggja í netinu þá rann hann eiginlega af enninu á mér og framhjá markinu! Þið getið rétt ímyndað ykkur hlátrasköllin sem ómuðu í eyrunum á mér frá hliðarlínunni! Að vísu heyrði ég þau ekki sjálfur því ég hló svo mikið sjálfur að eigin aulaskap!!!

Eftir leikinn (sem við unnum að lokum sannfærandi 7-3) þá var kosinn maður leiksins og þar lenti ég í öðru sæti á eftir Karfanum sem vann þennan titil verðskuldað enda skoraði kvikindið fjögur mörk í leiknum. En það sem er samt mest svekkjandi er ekki það að hafa ekki skorað heldur að hafa næstum verið kosinn maður leiksins fyrir það eitt að klúðra dauðafærinu. Ætti kannski ekkert að kvarta, ef ég hefði skorað hefði ég sennilega ekki fengið eitt einasta atkvæði í kosningunni... ;)

fimmtudagur, maí 04, 2006

Vah! Denuone Latine loquebar? Me ineptum. Interdum modo elabitur...

Var dálítið seint á ferðinni í morgun og af góðu tilefni! Við Jonni höfðum fengið fregnir af því að það ætti að opna nýja Apple verslun í Magasin klukkan tíu í morgun og þar sem við erum miklir áhugamenn um allt sem tengist Apple þá ákváðum við að sjálfsögðu að mæta á svæðið og kanna nýju verslunina. Ég mætti á Kongens Nytorv ca. fimm mínútum fyrir tíu og var eiginlega hálf gáttaður á því hversu fátt fólk stóð fyrir utan að bíða. Við nánari athugun kom í ljós að biðröðin var öll við einn hliðarinnganginn og náði næstum alla hliðina á þessu annars stóra húsi! Það má nú alltaf treysta því að það mæti múgur og margmenni þegar Apple opnar nýjar verslanir. Að vísu ætluðum við ekki að kaupa neitt en við getum hinsvegar sagt núna að við höfum verið viðstaddir opnun á tveimur Apple verslunum í Danmörku. Top that!

Annars var þetta frekar tíðindalítill dagur eftir það, bara vinna og svo æfing um sexleytið. Að vísu var þvílíka rjómablíðan í allan dag, komið sannkallað sumarveður hérna í Köben. Spurning hvort við Jonni hendum okkur ekki bara á ís í hádeginu á morgun ef fram heldur sem horfir (eins og veðurspáin gefur til kynna). Um að gera að kæla sig niður með einum vænum ís þegar hitinn er sem mestur! ;)

...og ég sem kann ekki einu sinni latínu!

miðvikudagur, maí 03, 2006

Sentio aliquos togatos contra me conspirare!

Hjólaði í vinnuna í morgun sem væri ekki í frásögur færandi nema fyrir það að ég komst að því að það skiptir greinilega ekki máli hvort maður hjólar hratt eða hægt, maður er nokkurn veginn alltaf jafn fljótur. Ekki það að ef maður myndi taka race hraðann á þetta þá myndi maður nú sennilega græða einhverjar mínútur en eins og öll ljós eru stillt hérna í Kaupmannahöfn þá eru þau akkúrat þannig að maður þarf að hjóla endalaust hratt eða endalaust hægt til að ná á milli þeirra. Nú og þar sem ég get ekki hjólað endalaust hratt þá tek ég bara skjaldbökuna á þetta í staðinn...

Sit annars ennþá við tölvuna þar sem ég er að vakta á mér bakið. Allavega bað einhver mig um að vera á 'bakvakt' á meðan einhver kynning væri í gangi á Íslandi á milli fimm og sjö í dag. Bæði bakið og kynningin ganga nokkuð vel, allavega hefur hvorki heyrst hósta né stuna frá öðru hvoru þeirra síðan ég byrjaði vaktina...

Svo var líka fyrsti almennilegi vor-/sumardagur ársins í dag! Hitinn fór upp í einar 18 gráður þegar best lét og fólk var ekki lengi að girða sig úr brók og smella sér í sumarklæðnaðinn, stuttbuxur og stuttermabolur voru föt du jour. Las einhvers staðar að það ætti að vera enn hlýrra á morgun, skemmtilegt að vinna inni á þessum heitu sólardögum (sérstaklega þegar Danirnir niðri á Vesterbrogade eru svona lítið hrifnir af því að opna glugga)...

I'm on to you!

þriðjudagur, maí 02, 2006

Sona si Latine loqueris!

Gleymdi algjörlega að minnast á það að um daginn komumst við að því að það er ekki bara einn góður ítalskur pizzustaður hérna í nágrenninu heldur eru þeir tveir! Og það sem meira er, þessi 'nýi' er nær heldur en hinn! Þannig að nú er staðan sú að ef við nennum ekki að elda og erum hungruð í ítalska pizzu þá er um tvo staði að velja sem báðir eru í innan við 400 metra radíus frá íbúðinni. Pretty sweet...

Annars þurfti ég að sitja heima í dag í staðinn fyrir að henda mér á Vesterbrogade með Jonna (sem var að vísu heima líka en það er önnur saga). Málið er að á föstudaginn þá ákvað nýi prentarinn okkar að hætta að virka. Þórunn, sem er tiltölulega prentsjúk, hafði semsagt náð að klára blekið í tveimur af sex blekhylkjum prentarans og fór og keypti ný. Eftir að hún hafði skipt um hylkin þá neitaði prentarinn alfarið að prenta nokkuð og ullaði bara á hana með tilheyrandi skæting og leiðindum. Eftir ítrekaðar tilraunir til að laga gripinn hafði hann betur og við neyddumst til að gefast upp og hringja í Hewlett Packard hér í Danmörku...

Þar sem ég nennti ekki að kíkja á þetta almennilega fyrr en í gær þá þurfti ég að bíða þangað til í dag með að hringja og um leið og þeir opnuðu skiptiborðið hjá sér hringdi ég, semsagt hálf níu í morgun. Maðurinn sem ég talaði við var ákaflega viðkunnalegur en tjáði mér (eftir að ég sagði honum að ég væri með Mac-a) að hann þyrfti að taka niður númerið mitt og að hann myndi láta einhvern Mac-vanann hringja í mig um tíuleytið. Klukkan hálf eitt gafst ég loksins upp á að bíða og hringdi bara aftur. Talaði þá við sérlega skemmtilegan gaur sem eyddi rúmlega klukkutíma í að hjálpa mér með gripinn. Við reyndum ýmsar kúnstir og tilfæringar en að lokum komst hann að sömu niðurstöðu og ég, að prentararæksnið væri bara bilað. HP ætlar að senda okkur nýjan í næstu viku...

Honk! Honk!

mánudagur, maí 01, 2006

Fram þúsund menn í þjáðum löndum...

Hef svosem engan sérstakan áhuga á 1. maí sem slíkum nema auðvitað fyrir þær sakir að vegna hans hef ég getað legið í leti heima í allan dag. Mætti vera svona 1. maí fílingur í hverjum mánuði eða jafnvel bara einu sinni í viku. Kannski ég taki bara þátt í mótmælum verkalýðsins og heimti að vinnuvikan verði stytt í fjóra daga, hversu ljúft væri það?!? :D

Það er kannski ekki úr vegi að taka létt helgaryfirlit svona á mánudegi, til þess að þeir sem áhuga hafa (sem eru ekki ýkja margir að vísu) geti fylgst með því sem er að gerast hérna úti í Köben. Við Þórunn fórum allavega á laugardagskvöldið á Havana sem er kúbanskur veitinga- og dansstaður og hittum þar íslenska læknanema í Kaupmannahöfn. Þar var setið, drukkið, étið og dansað fram eftir kvöldi og fyrir þá sem þekkja ekki til salsasveiflunnar var létt kennsla í boði hússins. Ágætis staður, helst til dýr samt...

Í gær var svo vaknað snemma og haldið á Valby íþróttasvæðið til að mæta Fox United í þriðja leik tímabilsins. Greinilegt er að FC Ísland er farið að slípast betur saman sem lið því við höfðum verðskuldaðan sigur að lokum, 4-2, sem var síst til of stór. Siggi vinnuhestur opnaði markareikninginn og rauðhærði KR-ingurinn Oddur setti svo þrjú kvikindi (þarf væntanlega ekki að taka fram að hann sé rauðhærður þar sem allir KR-ingar eru rauðhærðir (enda er hann kominn í beinan kvenlegg af Bjarna Fel í báðar ættir)). Fyrsti sigur tímabilsins staðreynd og gleðin eftir því...

Í gærkvöldi var Þórunn svo búin að lofa að passa fyrir Stefán og Sóleyju þannig að við mættum til þeirra um klukkan sex í gærkvöldi til að líta eftir Margréti Nótt. Það var einstaklega auðvelt verk og létt, þurftum varla að hafa fyrir henni á nokkurn hátt. Eftir að hún var sofnuð þá lögðumst við bara fyrir framan sjónvarpið og horfðum á eina níu þætti af Beðmálum í borginni. Einstaklega ljúft og rólegt kvöld...

Svo hafa letin og rólegheitin bara verið viðvarandi í dag eins og áður kom fram. Að vísu er Þórunn búin að vera eitthvað slöpp undanfarið, með lumbru, eins og hún segir sjálf (ekki þó vegna þess að ég hafi verið að lumbra á henni, síður en svo). Vona bara að ég verði ekki orðinn svo latur í lok dags að ég geti vaknað í vinnu í fyrramálið, verð samt alveg að viðurkenna að nokkrir dagar í viðbót í þessum letiham væru alls ekki illa þ(v)egnir... ;)