laugardagur, maí 13, 2006

Laugardagur til vinnu :(

Það er víst það mikið að gera í vinnunni hjá mér þessa dagana að ég neyðist til að vinna alla helgina, afskaplega skemmtilegt. Svona er þetta þegar maður fær of lítinn tíma til að gera eitthvað sem er of stórt í sniðum fyrir einn mann. En þar sem Þórunn er hvort eð er límd við bækurnar þá kemur þetta kannski ekki svo mikið að sök, við reynum bara að gera eitthvað skemmtilegt seinnipartinn í dag í staðinn...

Í gær var 'Stóri bænadagurinn' hérna í Danmörku og því allt lokað og fólki gefið frí frá vinnu svo það geti farið heim að tilbiðja hvern þann guð (eða guði) sem það tilbiður. Það stoppaði okkur Jonna að vísu ekki neitt í því að mæta á Vesterbrogade eins og venjulega þar sem þetta er víst ekki íslenskur frídagur og við víst ekkert sérlega trúaðir í þokkabót. Afskaplega þægilegt að vera svona einn (eða tveir semsagt) á skrifstofunni. Fór í því sambandi að velta fyrir mér orðinu 'aleinn'. Í fleirtölu er talað um 'aleinir' eða 'alein' en ætti það ekki frekar að vera (í okkar tilfelli a.m.k.) 'altveir'? Og ef við hefðum verið þrír 'alþrír'?!? Það er þetta 'einir' sem ég er ekki sáttur við því við vorum tveir en ekki einn...

Eftir vinnu í gær þá hentum við hjónin okkur upp í Frederiksberg Have og tókum þar spásstúr með Sigríði litlu. Röltuðum í gegnum garðinn og héldum svo göngunni áfram alla leið niður á Amager torv og fengum okkur svo að borða á Mama Rosa. Sátum þar til rúmlega tíu og héldum svo heim, mett af mexíkóskum og gönguþreytt...

Á eftir er víst úrslitaleikurinn í ensku bikarkeppninni en þar sem mitt lið er ekki að keppa þá er mér svosem slétt sama. Og þó! Liverpool náði víst að slysa sér í úrslit og að sjálfsögðu get ég ekki þolað aðdáendum þeirra að þeir taki þessa dollu þannig að mín lokaorð í dag verða: "Áfram West Ham!"

miðvikudagur, maí 10, 2006

Í sól og sumaryl...

Það er víst ekkert lát á þessari dæmalausu blíðu sem nú ríður yfir Sjáland og þar með Kaupmannahöfn. Hitinn síðustu daga hefur verið um eða yfir 20 gráðurnar og þessi blíða á víst að vara fram á næstu helgi. Þórunn var einmitt að benda á eitt ansi merkilegt í þessu sambandi, það að Íslendingar eru með það fast í sér að þegar það kemur gott veður þá verði maður hreinlega að nýta það eins vel og mögulegt er þar sem það kemur nú ekki svo oft á Klakanum. En hérna úti á meginlandinu þá býr maður auðvitað við töluvert stöðugra veðurfar og verður þá væntanlega líka að aðlaga sig að því og reyna að sitja á rjúka ekki alltaf til og rembast við að reyna að sleikja hvern einasta sólargeisla sem skín á mann... :)

Fékk annars nett sjokk í gær þegar ég hélt að iPod-inn minn væri dauður. Sá hreinlega fram á opinbera útför á tímabili því að hann bara dó og neitaði alfarið að 'lifna' við aftur. Það var því ótrúlegur léttir þegar mér tókst að blása í hann nýju lífi eftir miklar tilfæringar í morgun. Magnað hvað maður verður háður því að nota þetta dót, allavega er töluvert skemmtilegra að hjóla heim úr vinnunni með eitthvað skemmtilegt í eyrunum... ;)

þriðjudagur, maí 09, 2006

Hiti og sviti

Sökum mikillar blíðu með tilheyrandi sól og hita þá ákváðum við Þórunn að hittast í Amager Center eftir vinnu hjá mér í gær til að kaupa fleiri 'sumarföt'. Keypti mér tvennar 3/4 buxur og einar stuttbuxur og að auki tvo boli í H&M. Góð kaup í ljósi þess að ég átti bara einar stuttar buxur fyrir sem voru verulega farnar að láta á sjá. En núna getur klæðaskápurinn semsagt boðið mér upp á ágætis úrval þannig að ég þarf ekki að vera í sömu buxunum alla daga... ;)

Annars var einhver leti í okkur hjónum í gær því við ákváðum að slaufa dansinum fram á næsta vetur, bæði af því að það fer að styttast í próf hjá Þórunni og líka bara til að fá smá pásu. En við munum að sjálfsögðu halda okkur við reglulega og stíga léttan dans í hvert sinn sem einhver hendir salsa tónlist á fóninn. Í staðinn fórum við í fínan göngutúr niður á strönd og kíktum á hvernig miðar með nýju baðströndina á austanverðri Amager eyju. Allavega nokkuð ljóst að þangað verður mikið sótt þegar tækifæri gefst, sannkölluð Mallorca stemmning... :D

Jonathan Gerlach Pedersen ákvað svo að eiga afmæli í dag og að sjálfsögðu óska ég honum innilega til hamingju með þann stórskemmtilega árangur. Nú er hann víst orðinn jafn mikið gamalmenni og ég og gott ef ég sá ekki örla á nokkrum gráum hárum á kollinum á honum þegar hann mætti í morgun. Allavega er orðið tímabært að panta fyrir hann vist á elliheimili, betra að vera tímanlegu í þessu...

mánudagur, maí 08, 2006

Af stórafmælum og Útvarpshöfði...

Viðburðarrík og þrælskemmtileg helgi að baki sem innihélt sorg (klúðrið mikla í fótboltaleiknum), gleði (Radiohead tónleikar) og mikið át (stórafmæli á Solbakken). Það er greinilega komið sumar hérna í Köben því ekki nóg með að hitinn hafi stigið upp úr öllu valdi þá er dagskráin sífellt að verða þéttari og skemmtilegri. Engar fleiri innisetur, nei takk!

Við byrjum að sjálfsögðu á afmælisveislunni á Solbakken. En áður en ég segi frá því þá kemur hér eitt lítið og létt reikningsdæmi (mest fyrir Sólveigu svo hún geti æft sig):

Þrír ungir menn halda sameiginlega afmælisveislu. Þessir þrír ungu menn heita Jonathan, Kristján Daði og Guðjón Ingi. Samanlagur aldur þeirra er 32 ár. Kristján Daði er yngri en Guðjón Ingi. Aldur Jonathans er 90,625% af samanlögðum aldri þeirra. Hvað er hver þeirra gamall?


Áhugasamir geta reiknað þetta út ef þeir vilja, allavega hef ég engan áhuga á að vita svarið þar sem ég veit það nú þegar... :D

En afmælisveislan var sneisafull af veitingum (enda ekki við öðru að búast þegar Heiðrún og Erla taka sig saman og baka) og spurning hvort maður þurfi ekki að henda sér í overtime í ræktinni eftir allt átið, svei mér þá...

Eftir afmælið þá héldum við frá Solbakken heim til Jonna og Erlu og hituðum okkur upp fyrir Radiohead tónleikana. Húsið opnaði klukkan sjö en þar sem við nenntum ekki að hanga í röð eins og búrar þá mættum við bara um hálf níu en fengum samt ágætis sæti ekki langt frá sviðinu. Um níuleytið byrjaði svo Radiohead að spila af mikilli áfergju og tóku rúmlega tveggja tíma langt session þar sem farið var í gegnum alla helstu slagarana auk þess sem nokkur ný lög voru tekin. KB Hallen (þar sem tónleikarnir voru haldnir) var sneisafull af fólki og ekki leið á löngu þar til hitinn í kofanum tók að rísa í saunu hæðir og ég get fullyrt að sjaldan eða aldrei hef ég verið jafn sveittur við það eitt að sitja á rassgatinu að hlusta á tónlist! Hljómsveitin var klöppuð upp tvívegis og lauk svo frábærum tónleikum á að taka Karma Police og tóku allir í húsinu þátt í söngnum. Gríðarleg skemmtun og gott ef Radiohead verður ekki bara með einokun í iTunes hjá mér næstu daga...

Eftir tónleikana héldum við aftur heim til Jonna og Erlu til að gíra okkur niður. Tókum létt session í nýju afmælisgjöfinni hans Jonna sem er sannkallaður 'stuð'leikur þar sem mest fjórir geta spilað í einu. Leikurinn gengur semsagt út á það að vera fyrstur (eða allavega ekki síðastur) í að ýta á hnapp eftir að hljóð + ljós á þar til gerðu tæki hættir. Ef maður álpast til að vera síðastur (tjah, eða ekki fyrstur ef maður tekur 'extreme' útgáfuna) þá er maður 'verðlaunaður' með því að fá létt rafstuð í handlegginn! Óendanleg uppspretta gleðistunda! Ah, good times...

Var svo kominn heim um eitt leytið og sofnaði afar vært eftir annasaman dag og helgi. Suðið í eyrunum eftir tónleikana hverfur svo vonandi þegar líður á daginn... ;)