laugardagur, desember 01, 2007

Fyrsti í jólagleði!

Ákvað það fyrir þónokkru síðan að 1. des. yrði dagurinn þar sem ég myndi byrja í jólaskapi. Hef gert mitt allra besta til að hundsa allt sem heitir jól, hvort sem það eru skreytingar, jólalög eða jafnvel auglýsingar í sjónvarpinu. Vil nefnilega ekki lenda í því að 'brenna út' í jólaskapinu og ná hámarki of snemma, ekkert eins fúlt og að sitja við steikina á aðfangadag og vera kominn með nett ógeð á jólafílingnum. En ég henti nettri diffrun og svo heildun á þetta og komst að því að 1. des. væri dagurinn þar sem gleðin myndi byrja og stend við það...

En hvað kemur mér í jólaskap? Það er að vísu ansi margt en kannski er ekki úr vegi að búa til nettan 'to-do' lista yfir það sem er ómissandi (að mínu mati, auðvitað) í öllum tilburðum til að komast í jólaskap.
  • Hlusta á jólalög
    Er eiginlega svo basic að það þarf vart að taka þetta fram. Byrjaði einmitt daginn á að hlusta á Jól og blíðu með öðlingunum í Baggalúti og er þessa stundina að hlusta á listann sem ég bjó til í fyrra, gott stuff! En maður skyldi þó gæta hófs svo maður lendi ekki í því á Þorláksmessu að rjúka upp í útbrotum þegar maður heyrir "Ég hlakka svo til" í hundraðasta sinn...
  • Horfa á jólamyndir
    Mjög, mjög mikilvægt atriði, jafnvel mikilvægara en jólalögin (allavega hvað mig varðar). Sérstaklega ef maður getur í leiðinni étið nóg af mandarínum og drukkið helling af malti og appelsíni (sjá neðar). Bendi fólki á listann frá í fyrra ef því vantar hugmyndir að góðu jólaáhorfi, óþarfi að uppfæra þá snilld nokkuð...
  • Drekka malt og appelsín
    Þetta er sennilega það mikilvægasta af öllu. Og ég er ekki að tala um að drekka eitt glas, ó nei. Ég er að tala um að drekka svo mikið af þessum guðaveigum að maður fái í magann! Sérstakan jólabónus fá þeir sem henda sér í góðan 'Geysi' eftir stífa drykkjulotu. Mamma var einmitt svo góð að færa okkur tvær kippur af þessari snilld í morgun, SKÁL!
  • Baka (og borða) smákökur
    Til að fyrirbyggja allan misskilning þá ætla ég ekki að baka smákökur sjálfur, þó síður sé. Ekki það að ég geti ekki bakað, er sennilega vel nettur í bakstrinum. Nei, aðalatriðið er að einhver nenni að baka svo að ég geti svo borðað! Afskaplega einfalt þannig. Heppilega er tengdó nokkuð dugleg við þetta og ég geri hreinlega þá kröfu á hana (hér með) að það verði nóg til þegar við mætum 20. des. Vil taka fram að ekki er verra að sameina smákökuátið með malt+appelsín drykkjunni, eitrað combo!
  • Borða mandarínur
    Mandarínur hafa bara alltaf verið hluti af jólaundirbúningi Íslendinga enda fást þær helst ekki nema rétt fyrir jólin. Danirnir eru víst eins. Við hjónin erum þegar búin að éta ca. 18 kíló, ætli við náum ekki að fara hátt í 50 kílóin fyrir aðfangadag, allavega eitthvað sem maður getur stefnt að...
  • Skreyta
    Get meira að segja nánast merkt þetta sem klárað því ég sótti jólaskrautið niður í kjallara í gær og Þórunn (með smá hjálp frá mér) henti upp megninu af þessu. Það eina sem er eftir er serían á svalirnar (flottustu svalirnar í húsinu, btw) og þá er málið dautt...
  • Julefrokost
    Man varla eftir þeim jólum þar sem ég hef EKKI farið í danskt jólahlaðborð. Gamla liðið ól þetta upp í mér strax frá blautu barnsbeini og ég hef haldið mig við þetta síðan. Að sjálfsögðu kom því ekkert annað til greina en að panta borð á Gröften í Tívolí þar sem við förum með Runa og Heiðrúnu og Jonna og Erlu eftir nákvæmlega viku. Góðan daginn hvað við munum éta á okkur gat (en samt skilja eftir smá pláss fyrir eplaskífur í eftirrétt, basic)...
  • Kaupa jólagjafir
    Nei, að vísu ekki, leiðist þetta yfirleitt ferlega mikið, sérstaklega þegar ég veit ekki hvað á að kaupa. Er heppilega búinn að redda Þórunni og Palla bróður en enn á eftir að finna eitthvað handa pabba (sem kaupir sér yfirleitt allt sem hann langar í FYRIR jól, mjög tjónað) og mömmu (hef enga hugmynd hér). Og ef einhver er að forvitnast þá, já, mig langar í flatskjá og/eða PS3... ;)
  • Laugavegurinn á Þorláksmessu
    Hef upplifað þrenn jól (svo ég muni allavega) þar sem ég komst ekki á Laugaveginn á Þorláksmessu, sökkuðu öll, svo einfalt er það. Mannmergðin, jólastressið (í öðrum, lykilatriði að vera búinn að öllu áður semsagt), heitt kakó eða jólaglögg, kórsöngur, jafnvel létt snjókoma í þokkabót. Þarf að ræða þetta eitthvað frekar?!?

Þannig að nú er planið það að reyna að komast yfir sem mest af þessu fyrir aðfangadag svo að jólastemmarinn verði nákvæmlega í hámarki þá og ekki sekúndunni fyrr né síðar. Held að við séum að tala um skothelt plan! :D

Og í lokin er kannski ágætt að komast í smá gleði með því að hlæja að Kelly Pickler sem er sennilega jafn gáfuð og hjólhýsið sem hún bjó í (ef eitthvað er að marka þetta allavega). "Ég hélt að Evrópa væri land?!? Er Frakkland land?!?". Priceless...

föstudagur, nóvember 30, 2007

Flösudagur...

There are 10 kinds of people in the world, those that understand binary and those that don't.

Pabbi fékk að gista hjá okkur aðfararnótt fimmtudags. Fór svo strax morguninn eftir áfram til Noregs þar sem hann er á leiðinni á fund. Þetta er svosem ekki í frásögur færandi...

Hef mikið verið að lesa fréttir undanfarna daga og flestar miður gáfulegar. Til dæmis sönnuðu heittrúaðir múslimar það endanlega fyrir mér að þeir eru klikk eftir þetta útspil. Ég spyr nú bara eins og fávís maður, ætti þá ekki líka að refsa öllum þeim sem skíra börnin sín Múhameð? Eða kannski frekar að refsa krökkunum sem kusu nafnið (og hýða duglega þann sem stakk uppá því)? Nei, að sjálfsögðu ekki, það væri fáránlegt, ekki satt? Sennilega álíka fáránlegt og þurfa að dúsa í fangelsi í 15 daga af því að bangsi var skírður í höfuðið á 80% múslimskra karlmanna... ;)

Að sjálfsögðu voru feminasistarnir (eða trukkalessurnar eins og þær eru kallaðar í dag (Jonni notar annað orð sem rímar við hlussur en það er auðvitað frekar ljótt þannig að við notum það ekki hér)) líka í fréttunum. Ein þeirra mætti meira að segja í Kastljósið til að væla yfir því hvað það væru fáar konur í Silfri Egils og neitaði svo sjálf að mæta þangað og gerði hvað með því? Tjah, kannski bara það að þar voru fyrir vikið færri konur, mjög skemmtilegt allt saman. Einhverjir feminasistarnir kvörtuðu yfir nýjasta útspili Hagkaupa (já, orðið er fleirtöluorð, Hagkaups er bara bull), datt víst ekki í hug að það væru til kvenmenn sem hefðu kannski líka gagn og gaman af þessu. Botninum náði nú samt Kolbrún Halldórs með þessari fyrirspurn á Alþingi. Hvað ætli hún fari fram á næst? Kynlausa æxlun?!? Fínt að hafa svona hirðfífl á þingi, þá hefur maður alltaf einhvern til að hlæja að... :D

Og að lokum er svo rétt að hlæja líka aðeins að þessu, það er víst viðeigandi...

miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Frosið í helvíti...

Scheisse, hvað það er kalt hérna í Danmörku núna! Erum að tala um svona nístingskulda sem er nánast ómögulegt að klæða af sér. Fór í ullarnærföt í morgun áður en ég fór af stað á hjólinu og var samt drullukalt. Sá á hitamæli í gær að hitinn var -3 gráður á Celsius kvarða, miðað við rakann hérna (og höfðatölu, auðvitað) þá væri þetta svona svipað og -25 gráður á Íslandi....ish. Kuldinn líka hefur greinilega undarleg áhrif á Danina ef eitthvað er að marka þessa frétt, fundu þó allavega ágætis leið til að halda á sér hita...

Steingleymdi þegar ég var að tala um landsleikinn um daginn að henda inn þessari mynd sem Jonni fann á netinu (og er birt hér án nokkurs leyfis frá þeim er tók hana, skítt með það). Við erum semsagt þarna í næst fremstu röð, Runi er gaurinn með Rússahúfuna sem hafði meiri áhuga á að horfa á sætið sitt en leikinn. Og vitleysingurinn þarna fremst með KR fánann, þetta er hann Oddur rauðhaus...

Fór að keppa í handbolta í gær. Stóð mig skítsæmilega, skoraði ekkert, átti ekki skot á mark en var skráður fyrir stolnum bolta, sem satt best að segja var meira gert til að ég hefði eitthvað lagt af mörkum frekar en að ég hafi í rauninni stolið viðkomandi bolta. En allavega, það sem stóð uppúr (fyrir utan að við unnum 35-33) þá fór einn hjá okkur úr (og svo aftur í) axlarlið og einn náði að upphandleggsbrjóta sig! Hélt bara að það væri ekki hægt! Hann var allavega frekar morkinn, á mörkunum að fara í lost og gott ef beinið var ekki hálfpartinn á leið útúr höndinni í þokkabót. En honum var skutlað í snarhasti á Hilleröd spítala (þar sem Þórunn er að vinna á daginn) og tjaslað saman. Biðum eftir honum í rúmlega tvo tíma, höfðum það ekki í okkur að skilja hann eftir þarna úti í rassgati með höndina í fatla og enn í keppnisgallanum...

Horfði á Kastljós frá því síðasta föstudag. Rosalega fer fólk eins og Steinunn Valdís í taugarnar á mér. Það að hún misskilji merkingu orðs þýðir það ekki að það þýði það sem hún heldur að það þýði. Orðið 'herra' þýðir 'húsbóndi' eða 'yfirmaður'. Og þar sem konur geta bæði verið húsbændur og yfirmenn af hverju geta þær ekki líka verið herrar?!? Allavega eru þessar tillögur sem hún kom með skelfilegar? Ráður og ráða?!? Sendiráða Íslands í Langtíburtistan? Sendiráður Danmerkur í Lithaugalandi? Hljómar ótrúlega kjánalega. Hinsvegar var ég hrifinn af tillögunni frá Sverri Stormsker... ;)

mánudagur, nóvember 26, 2007

Bloggið er dautt, lengi lifi bloggið!

Móðirsystir hennar Þórunnar kom í kaffi hingað á laugardaginn. Sem væri kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að hún kvartaði sáran yfir því að ég væri hættur að blogga! Ákvað að kanna málið og athuga hvað það væri orðið langt síðan síðast, og viti menn, það eru minna en tveir mánuðir!! Skil ekki hvað fólk er að tala um, er nánast nýbúinn með skylduna! ;)

Fór á landsleikinn um daginn á Parken. Úrslit leiksins eru svosem öllum kunn en það sem fæstir vita er að þó svo íslenska landsliðið hafi tapað orrustunni á vellinum þá vil ég meina að við, stuðningsmennirnir (eða kannski frekar við Íslendingarnir sem mættum, telst nú seint mikill 'aðdáandi' svosem), höfum unnið orrustuna í stúkunni. Er ekki frá því að hærra hafi heyrst í okkur heldur en Dönunum. Það er að vísu ekki skrýtið í ljósi þess að sjaldan eða aldrei hafa færri áhorfendur mætt á Parken. Lélegt orðið þegar Íslendingar hafa meiri áhuga á leiknum en Danir, sérstaklega þegar Ísland hafði að ENGU að keppa...

Fór líka á tónleika með Bubba á dögunum. Eða kannski frekar, fór í tímavél aftur um tvö ár og fór aftur á sömu tónleika og ég fór á með Bubba á sama stað fyrir tveimur árum. Held, svei mér þá, að hann hafi meira að segja spilað nákvæmlega sömu lögin í sömu röð! Og í uppklappinu tók hann líka sömu lögin og síðast, frekar lame. Tók tvö eða þrjú af þessum gömlu 'góðu' og svo bara mestmegnis eitthvað drasl. Eitt samt skemmtilegt við að fara á Bubba, um leið og hann opnar munninn og byrjar að tala (þ.e. ekki að syngja) þá fyllist maður nýjum þrótti og sjálfstraustið rýkur í botn, því þá, á nákvæmlega því augnabliki, veit maður að maður er ekki heimskasti maðurinn í húsinu...

Keppti í handbolta síðasta fimmtudag og stóð mig bara nokkuð vel, skoraði þrjú mörk! Þurfti að vísu sex tilraunir til en í ljósi þess að ég er langt frá því að teljast einhver kempa í þessum leik þá tel ég það bara nokkuð gott. Allavega skárra en í leiknum sem ég spilaði þar á undan. Kom inná, fór strax inn úr horninu, skaut í hliðarnetið (semsagt ekki mark), hitt liðið brunaði í sókn, ég missti af mínum manni framfyrir mig, ætlaði að ná honum en það vildi ekki betur til en svo að ég braut allsvakalega af mér og var rekinn útaf í tvær mínútur. Þetta tók mig ca. 30 sekúndur og það var spilatíminn sem ég afrekaði þann leikinn (skil þjálfarann vel að hleypa ekki svona vitleysing inná aftur)...

Annars erum við bara í góðum gír, Þórunn er kominn á orthopaed deild á Hilleröd spítala og er þar á fullu að brjóta bein og brjósk í gríð og erg, sannkölluð Callie O'Malley. Ég er bara ennþá á Vestergade með Jonna fyrir utan það að nýr Íslendingur hefur bæst í hópinn og það er enginn annar en stórmennið Runólfur Þór Ástþórsson. Getið rétt ímyndað ykkur að það sé kátt á hjalla hjá okkur félögunum á daginn... :)

Þangað til næst, veriði hress, ekkert stress, fress!