Átta dagar til jóla...
Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.
Þau ruku' upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti 'ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.
- Jóhannes úr Kötlum
Góðan daginn, hvað þetta var yndislegur dagur! Ekki nóg með að við í handboltaliðinu unnum frækinn sigur á FIF 38-31 á útivelli um hádegisbilið, í leik þar sem ég skoraði ekkert mark þrátt fyrir tvær marktilraunir, þá kórónaði Manchester United daginn með því að vinna Liverpool, einnig á útivelli, 0-1! Þar með höfum við, United aðdáendur, 'bragging rights' þangað til seinni leikur liðanna verður á Old Trafford á næsta ári, ekki amalegt það! :D
Annars er ekkert að frétta, bókstaflega... ;)

2 Comments:
Dómaraskandall. Ekkert meira um það að segja. Og kauptu svo eitthvað sniðugt handa mér á leiðinni heim.
Þú fékkst allavega 2 marktilraunir!!
Skrifa ummæli
<< Home