9 dagar til jóla...
Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.
Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.
Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.
- Jóhannes úr Kötlum
Fórum í afmæli hjá Ástþóri Inga Runólfssyni í gær (fimm ára) sem væri ekki í frásögur færandi ef ekki væri fyrir það að ég fattaði á leiðinni upp á Solbakken að ég hafði gleymt að henda inn bloggfærslu í gær og þ.a.l. er tvöfaldur skammtur af gleði og jólasveinavísu í dag. Vona að fólk fyrirgefi mér gleymskuna að þessu sinni. Reyni að láta þetta ekki koma fyrir aftur...
Myndin hér til hliðar er mjög dæmigerð fyrir síðustu daga, ég í eldhúsinu að brasa eitthvað (á myndinni stend ég í ströngu við kæfugerð. Glöggir sjá að fyrir aftan mig á eldhúsborðinu standa rúgbrauðsbitar í röðum sem ég tók einmitt út úr ofninum í gærmorgun. Stend semsagt í ströngu þessa dagana við allskyns bakstur og skemmtilegheit á meðan ég hlusta á jólalög og borða piparkökur. Erum að tala um kósíheit par exelans!
Þessi mynd hinsvegar er mjög dæmigerð mynd af Þórunni sem situr sveitt við lærdóm alla daga milli þess sem hún gerir að sárum og saumar þau saman á Hillerød spítala. En er þetta ekki bara það sem koma skal og femínistar hafa barist fyrir? Karlmennina í eldhúsið og konurnar séu fyrirvinnan? Held allavega að ég myndi skora feitt hjá þeim ef þær sæju til mín... ;)Baggalútsmenn standa sig svo sannarlega í stykkinu þessa dagana því í gær gáfu þeir út jólalagið 2007 sem heitir því skemmtilega nafni 'Jól á Kanarí'. Hvet fólk eindregið til að berja það eyrum. Arthúr var svo með skemmtilega strippu um 'mál málanna' síðustu daga (þ.e. Kirkjan vs. allir hinir). Og í framhaldi af því rakst ég svo á skemmilega grein þar sem bókinni/kvikmyndinni 'The Golden Compass' var stillt upp á móti Biblíunni. Talandi birnir eru auðvitað bara bull, en talandi snákar og asnar, það er auðvitað daglegt brauð... ;)
Og í lokin er rétt að benda á aðventustrippur Wulffmorgenthaler um albínóann Edmund sem gerir vaxlitateikningar af því sem á daga hans drífur. Sennilega eitt það allra súrasta sem ég hef séð. Japanir eru líka súrir og til marks um það bendi ég á þessa steik. Hvað dettur þeim eiginlega í hug næst?!? :D

1 Comments:
Hahahahaha, sjá þessa mynd af Tótu. Hélt fyrst að þetta væri Pat :D
Skrifa ummæli
<< Home