miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Frosið í helvíti...

Scheisse, hvað það er kalt hérna í Danmörku núna! Erum að tala um svona nístingskulda sem er nánast ómögulegt að klæða af sér. Fór í ullarnærföt í morgun áður en ég fór af stað á hjólinu og var samt drullukalt. Sá á hitamæli í gær að hitinn var -3 gráður á Celsius kvarða, miðað við rakann hérna (og höfðatölu, auðvitað) þá væri þetta svona svipað og -25 gráður á Íslandi....ish. Kuldinn líka hefur greinilega undarleg áhrif á Danina ef eitthvað er að marka þessa frétt, fundu þó allavega ágætis leið til að halda á sér hita...

Steingleymdi þegar ég var að tala um landsleikinn um daginn að henda inn þessari mynd sem Jonni fann á netinu (og er birt hér án nokkurs leyfis frá þeim er tók hana, skítt með það). Við erum semsagt þarna í næst fremstu röð, Runi er gaurinn með Rússahúfuna sem hafði meiri áhuga á að horfa á sætið sitt en leikinn. Og vitleysingurinn þarna fremst með KR fánann, þetta er hann Oddur rauðhaus...

Fór að keppa í handbolta í gær. Stóð mig skítsæmilega, skoraði ekkert, átti ekki skot á mark en var skráður fyrir stolnum bolta, sem satt best að segja var meira gert til að ég hefði eitthvað lagt af mörkum frekar en að ég hafi í rauninni stolið viðkomandi bolta. En allavega, það sem stóð uppúr (fyrir utan að við unnum 35-33) þá fór einn hjá okkur úr (og svo aftur í) axlarlið og einn náði að upphandleggsbrjóta sig! Hélt bara að það væri ekki hægt! Hann var allavega frekar morkinn, á mörkunum að fara í lost og gott ef beinið var ekki hálfpartinn á leið útúr höndinni í þokkabót. En honum var skutlað í snarhasti á Hilleröd spítala (þar sem Þórunn er að vinna á daginn) og tjaslað saman. Biðum eftir honum í rúmlega tvo tíma, höfðum það ekki í okkur að skilja hann eftir þarna úti í rassgati með höndina í fatla og enn í keppnisgallanum...

Horfði á Kastljós frá því síðasta föstudag. Rosalega fer fólk eins og Steinunn Valdís í taugarnar á mér. Það að hún misskilji merkingu orðs þýðir það ekki að það þýði það sem hún heldur að það þýði. Orðið 'herra' þýðir 'húsbóndi' eða 'yfirmaður'. Og þar sem konur geta bæði verið húsbændur og yfirmenn af hverju geta þær ekki líka verið herrar?!? Allavega eru þessar tillögur sem hún kom með skelfilegar? Ráður og ráða?!? Sendiráða Íslands í Langtíburtistan? Sendiráður Danmerkur í Lithaugalandi? Hljómar ótrúlega kjánalega. Hinsvegar var ég hrifinn af tillögunni frá Sverri Stormsker... ;)

2 Comments:

At 7:13 e.h., Blogger Oddur og Kristín í København said...

Það er óhætt að segja að það sé frostið í helvíti!! Tvær færslur á stuttum tíma! Ajauuuuu. Eigum við eitthvað að ræða þetta?

 
At 7:53 e.h., Blogger Unknown said...

bíddu? má ekki gera dónó í biðskýlum eða?! ó, þá hef ég verið að misskilja verulega mikið...

 

Skrifa ummæli

<< Home