fimmtudagur, september 27, 2007

Í dauðaslitrunum...

OK, OK, OK, ég veit. Það er ótrúlega lame að lýsa því yfir að maður sé ekki dauður úr öllum æðum og bla bla bla og láta svo þrjár vikur líða á milli færslna og staðfesta þar með nánast að maður sé í ruglinu. En þetta er í raun allt fyrir ykkur gert, lesendur góðir, því ef það líður of stutt á milli þá hef ég bara frá engu að segja! Núna, hins vegar, er nefnilega nokkuð margt sem hægt er að segja frá, maður lifandi!

Fyrst skal auðvitað nefna hið árlega og gríðarlega skemmtilega Klakamót sem var haldið í 20. sinn (held það allavega). Að þessu sinni var það haldið í Horsens og það verður að segjast að Horsens menn stóðu sig ótrúlega vel og héldu prýðis mót. Við vorum dregnir í riðil með Kolding, Sönderborg, Árhús B og Odense B. Riðillinn var spilaður á laugardeginum (mótið stendur yfir eina helgi) og við unnum alla leikina okkar og enduðum efstir í riðlinum með markatöluna 22-4 (minnir mig) og menn því orðnir nokkuð bjartsýnir á að fara bara alla leið og vinna mótið! Sunnudagurinn rann upp með fögur fyrirheit um frábæran árangur á 'vígvellinum' og fengum við Odense A í átta liða úrslitum. Byrjuðum leikinn af krafti og leiddum í hálfleik 1-0. Byrjuðum svo seinni hálfleik á að bæta við marki og allt stefndi í öruggan sigur þegar, bókstaflega, batteríin kláruðust hjá mönnum. Þá kom semsagt í ljós að allur fótboltinn daginn áður sat svona rækilega í mönnum (160 mínútur af fótbolta er greinilega of mikið fyrir flesta) og Odense menn gengu á lagið, skoruðu þrjú mörk og unnu leikinn 3-2. Þar með var 'ævintýrinu' lokið og við gátum notið þess sem eftir lifði móts á hliðarlínunni. En á heildina litið var þetta hrikalega gaman og alveg klárt mál að við mætum fílefldir að ári og þá, vonandi, í betra úthaldi... ;)

Handboltinn er líka byrjaður á fullu aftur eftir langt hlé og spiluðum við okkar fyrsta leik síðasta fimmtudag. Þá var förinni heitið til Holbæk til að keppa við bændastrákanna þar í bikarkeppninni. Áttum von á erfiðum leik sem og var raunin en í leiknum sannaðist enn og aftur hið fornkveðna að maður skyldi aldrei vanmeta áralanga reynslu þrátt fyrir of mörg aukakíló. Pjakkarnir úr sveitinni (Holbæk semsagt) sem ætluðu sko aldeilis að sýna okkur sekkjunum í tvo heimana vissu vart í hvorn fótinn þeir ættu að stíga þegar við smátt og smátt náðum forystu í leiknum sem varð mest ein sjö mörk. Þeir reyndu að keyra upp hraðann og spila framliggjandi vörn en gamla seiglan stóð fyrir sínu og þegar uppi var staðið var sanngjarn 28-32 sigur staðreynd og IF Guðrún því með í næstu umferð bikarsins! :D

Annars er allt gott af okkur hjónunum að frétta, Þórunn bara í skólanum og ég að vinna (og að stunda íþróttirnar grimmt, greinilega). Erum líka byrjuð að fara í ræktina á fullu og tekst vonandi að halda dampi í því, veitir víst ekki af að reyna að styrkja sig aðeins. Allavega er maður fínn í hörðu sperrunum þessa stundina... ;)

Og að lokum fyrir þá sem fylgjast með How I Met Your Mother vil ég benda á þessa síðu. Ef þið hafið aldrei horft á þáttinn þá er ekki seinna vænna að byrja, you will not regret it... ;)

2 Comments:

At 8:50 f.h., Blogger Gudrun Lilja said...

Gaman að loksins sjá þig aftur, snúlli. MIKIÐ VAR !!!!!
Keep up the good work !

Kysstu Þórunni frá mér og börnunum :o)

 
At 11:16 f.h., Blogger Skaffen-Amtiskaw said...

Reikna þá með næsta bloggi eftir ca. 3 vikur þegar þú kemur með þá "frétt" að family guy sé fínn þáttur sem allir eigi að horfa á :D

 

Skrifa ummæli

<< Home