fimmtudagur, júní 21, 2007

D-Day minus 1

Í dag er víst nokk lengsti dagur ársins. Ætla jafnvel bara að taka undir það, sérstaklega í ljósi þess að ég vaknaði klukkan hálf sjö og hef því verið vakandi núna í næstum 16 tíma, tómt rugl! Annars var þetta ekkert svo slæmur dagur, var mættur snemma í vinnuna og var bara á góðu róli þar til klukkan hálf sex. Fór þá á æfingu og sparkaði í tuðrur og aðra spilara í klukkutíma og þrjú kortér. Hjólaði svo heim, fékk mér að borða og hef verið að chill-a síðan. Eiginlega með hálfgert samviskubit yfir því, vitandi að Þórunn situr í næsta herbergi í óða önn að lesa fyrir próf, eins og hún hefur gert undanfarnar þrjár til fjórar vikur linnulaust...

En heppilega sér fyrir endann á því því að prófið er víst í fyrramálið! Já, ótrúlegt en satt þá tekur allt enda að lokum og klukkan rúmlega tvö er skvísan bara komin í sumarfrí fram í byrjun september. Sérlega heppilegt í ljósi þess að við erum svo að fara til Kína eftir 12 daga og til Íslands eftir 28 daga þannig að það er fullt að gerast. Auk þess er víst minni systirin komin hingað út þannig að systurnar munu án vafa skemmta sér vel næstu daga. Ég fer svo í frí í lok næstu viku og verð í fríi fram yfir Verslunarmannahelgi, djöfull verður það sweet...

Annars er gaman að fylgjast með KR-ingum þessa dagana. Og þegar ég segi fylgjast, þá meina ég auðvitað að hlæja duglega að. Það væri þó aldrei að KR myndi bara falla um deild í fyrsta skipti í sögu félagsins (eða er það ekki annars rétt hjá mér). Að hugsa sér að sú staða gæti komið upp að KR væri að spila í 1. deild en Þróttur í úrvalsdeild. Ef einhver hefði nefnt það við mig fyrir þetta tímabil hefði ég sennilega hrist hausinn og kallað viðkomandi vitleysing...

Og að lokum er við hæfi að benda á eitthvað skemmtilegt af Veraldarvefnum. Þessi tvö stóðu sig allavega það vel að mér fannst við hæfi að leyfa fleirum að njóta hæfileika þeirra. Svo stóð Lögreglan í Reykjavík sig líka 'vel' á dögunum, bölvaðir apahausar þessar löggur...

3 Comments:

At 10:41 e.h., Blogger Jonni said...

Linkarnir vísa á sömu síðuna dúllan mín. En svona getur maður verið utan við sig eftir að hafa vakað í 16 heila tíma!!

 
At 10:55 e.h., Blogger Grímur Jónsson said...

Í þessu tilviki hefði kaldhæðnismerkið komið sér vel, komst greinilega ekki til skila ;)

 
At 11:19 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Eru, skv. þessum lögum, ekki framin lögbrot tvisvar í viku hjá Getspá? Get alla vega ekki séð hvernig Lottó passar þarna inn. Og hvað þá Lengjan! Sendum lögguna á Bjössa (ef ekki út af þessu þá bara út af hinu og þessu ;))

 

Skrifa ummæli

<< Home