mánudagur, maí 14, 2007

Taparar helgarinnar...

Það er víst óhætt að segja að síðasta helgi hafi að mestu snúist tapara því satt best að segja þá voru það ansi margir sem töpuðu um helgina. Ég er þó ekki að tala um menn eins og Jonna sem 'tapaði' sér gjörsamlega í ráfi um stræti Parísarborgar, nei, ég er að tala um alvöru tapara, þá sem vinna ekki...

Fyrst ber auðvitað að nefna þá sem teljast vera taparar í Alþingiskosningunum. Það er nú ekki erfitt að benda á t.d. Framsóknarmenn sem hafa ekki bara tapað áttum heldur sennilega öllum mannspilunum í leiðinni og hafa aldrei í sögu flokksins verið í jafn miklu rugli. Það er því kannski frekar gróft að fara að gera lítið úr þeim, svona eins og að sparka ítrekað í liggjandi mann, þannig að við klikkjum bara út með að segja að Framsókn sökki feitan...

En Frammararnir voru ekki þeir einu sem töpuðu í þessum kosningum því að klárlega er Solla stirða (og þá Samfylkingin í heild sinni) líka tapari ef maður á að vera alveg heiðarlegur. Eftir átta 'farsæl' ár í stjórnarandstöðu og m.a. tólf 'farsæl' ár (að eigin sögn) í stjórn Reykjavíkur þá virðist samt sem almenningur hafi ekki allt of mikla trú á þessum flokkakokteil því annars hefði hann nú varla farið að tapa fylgi frá því í síðustu kosningum og þar að auki tveimur þingmönnum. Að berja sér og brjóst og segja að úrslitin séu næstbesti árangur Samfylkingarinnar er hlægilegur í ljósi þess að þetta er aðeins í þriðja sinn sem hann er í framboði. Er þetta þá ekki líka næstversti árangurinn?!? ;)

Nú og að lokum er það hann Ómar 'rella' Ragnarson. Um það mál þarf ekki að segja neitt meira...

En það var ekki bara í Alþingiskosningunum sem menn töpuðu því ég held að samfélagið í heild sinni hafi tapað í baráttunni gegn vondri tónlist eftir að Júgravisjón keppninni lauk á laugardaginn. Það er nokkuð ljóst að góð tónlist á ekki lengur upp á pallborðið því glys, glamúr, rugl og falskir söngvarar er það sem koma skal. Spurning um að senda næst versta lagið úr undankeppninni, gæti allavega ekki gengið mikið verr. Myndi nú ekki spilla fyrir ef hægt væri að plata einhvern innflytjanda frá Austur-Evrópu til að syngja það, á móðurmáli sínu, væri skothelt dæmi! :D

Og ekki tókst okkur í IF Guðrúnu að losna við það að vera taparar heldur og fengum aldeilis að kenna á því um helgina í leik við núverandi meistara í Boldklubben Cito. Umfjöllun um leikinn má lesa hér. Held að ég taki undir orð Gunna (sem skrifaði um leikinn), þeir náðu þó allavega ekki tylftinni...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home