Innisnjóaður...
Hinn gríðarlegi 'snjóstormur' var víst á ferðinni aftur í nótt hérna í Danmörku með tilheyrandi móðursýki og röskun á öllu lífi Dana. Dönum er ráðlagt að vera sem minnst á ferðinni (sjá frétt í Politiken) og einhverjir skólar eru víst búnir að aflýsa kennslu. Strætó fór ekki af stað fyrr en að nálgast hádegi í gær, metró var sömuleiðis í einhverju rugli fram eftir morgni (sem er fyndið í ljósi þess að þetta er neðanjarðarlest) og heilu línurnar í S-toginu voru lagðar niður allan daginn. Magnað hvað 10-20 sentímetrar af snjó geta sett heila þjóð gjörsamlega úr skorðum...
Ég lenti einmitt í því í gær að þurfa að taka lest frá Herlev (sem er uppi í sveit btw) aftur niður í miðbæ og það tók sko aldeilis sinn tíma. Þegar komið var á lestarstöðina var ekki einu sinni tími á næstu lest og því engin leið að vita hvort eða hvenær hún kæmi. Þetta hafðist að vísu að lokum en þá voru örugglega liðnar góðar 20 mínútur frá því á stöðina var komið. Það var búið að ráðgera að halda fund á Kagsaa í kvöld útaf Icelandair Open en við Baldvin ákváðum snarlega að fresta því, nenni ekki að standa í rugli í tvo daga í röð með að komast frá Herlev...
Annars var ástæðan fyrir veru minni í Herlev í gær sú að við fórum þangað í handboltanum að spila æfingarleik við sama lið og við tókum æfingaleik fyrir tveimur vikum. Þetta var eiginlega stórfurðulegur leikur í alla staði. Við vorum ekki nema átta manns (einn varamaður semsagt) og báða þjálfarana vantaði í liðið auk nokkurra annarra sem eru vanalega í hópnum. Fyrir vikið þá vorum við skítlélegir í fyrri hálfleik, klúðruðum dauðafærum og einum þremur vítum og vorum undir, mjög verðskuldað, 15-8 þegar dómararnir flautuðu til hálfleiks. Við ákváðum í hálfleiknum að reyna bara að hafa gaman af þessu, taka á því í vörninni og reyna að saxa á forskotið eins og við gætum. Þetta tókst svona líka vel að andstæðingarnir skoruðu sitt fyrsta mark í seinni hálfleik ekki fyrr en eftir að tíu mínútur voru liðnar af hálfleiknum og í heildina ekki nema sjö mörk allan hálfleikinn. Við hinsvegar skoruðum á sama tíma 17 mörk og unnum að lokum leikinn 22-25 við gríðarlegan fögnuð. Já, það borgar sig greinilega að taka á í vörninni og skora í sókninni! :D

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home