mánudagur, janúar 22, 2007

Sigur og snjókoma!

Maður hefði kannski getað haldið að ef ég læti líða lengra á milli færslna að ég hefði þá bara frá meiru að segja í hvert sinn. Þetta reynist hinsvegar alls ekki vera rétt því ég á í jafn miklu basli með að finna 'umræðuefni' núna þó að vika sé liðinn frá síðustu færslu eins og þegar ég er að gera þetta daglega. Getur verið að líf mitt sé svona tilbreytingarlítið og óspennandi?!? Nei, fjandakornið, það getur bara ekki verið! :D

Allavega get ég sagt ykkur frá því að í gær unnum við okkar fyrsta leik í langan tíma í handboltanum. Og ekki bara unnum heldur unnum hann bara mjög sannfærandi í þokkabót! Og að auki voru andstæðingarnir ekki eitt af botnliðunum, nei, nei, þeir voru fyrir leikinn í 4-5 sæti deildarinnar á góðu róli og höfðu unnið okkur í fyrri umferðinni með einum átta mörkum. En íslenska 'mjaltavélin' átti stórleik í dag, átti engan slæman kafla og hélt haus allan leikinn, lokaði á skyttur USG (andstæðingurinn) og jók jafnt og þétt á forskotið allan leikinn. Lokatölurnar urðu 29-22 og hefði alveg eins getað orðið stærri. Nýliðinn Gummi formaður átti stórleik og var valinn maður leiksins auk þess sem annar nýliði, Óli markmaður, kom inná og lokaði hreinlega markinu í síðari hálfleik. Sjálfur átti ég ágætis spretti, skoraði eitt mark og fiskaði eitt víti. Frábær sigur í alla staði og sigurgangan því formlega hafin! ;)

Annars hefur veðrið kannski sett stærsta svipinn á síðustu viku því að mér er til efs að það hafi rignt eins mikið í Kaupmannahöfn í sögu veðurathugana eins og í síðustu viku. Það var bókstaflega alltaf rigning! Því var það sérstaklega ánægjulegt að sjá þegar ég dró frá gluggunum í morgun að ekki aðeins var hætt að rigna heldur farið að snjóa (sem er samt í rauninni líka rigning)! Já, gott fólk, snjórinn er kominn til Danaveldis í allri sinni dýrð og aðeins tímaspursmál hvenær skíðalyftan í Himmelbjerget verður opnuð. Gott ef það eru ekki krakkar hérna í garðinum að búa til snjókall, o sei sei já!

2 Comments:

At 12:23 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

já...studum hefur verið talað um "beginner luck" :)

 
At 7:39 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hvaða læti eru þetta, ef ég læti líða lengri tíma, einu sinni var þetta: "ef ég léti líða o.s.frv.". Svona álíka og kellingin sem stóð í dyrinni að bíða eftir læknirinum.

he he.

 

Skrifa ummæli

<< Home