miðvikudagur, desember 13, 2006

Phobophobia?!?

Kláraði í gær að henda upp restinni af jólaskrautinu og þar með er húsið (íbúðin) formlega skreytt. Það sem var eftir var að henda greni + jólaseríu á svalirnar og var ég að bregða á það ráð að fara fyrr heim úr vinnunni í gær til að ná að gera þetta í björtu (ferlegt þegar það er komið myrkur um fjögurleytið). Það er því orðið afskaplega jólalegt hjá okkur þessa stundina, það eina sem vantar er að fá gott frost með tilheyrandi ofankomu til að fullkomna jólastemmarann með smá snjólufsu. Er nú ekki að biðja um mikið, bara smá föl (30-40 cm a.m.k.)... :D

Rakst á þetta í daglegri yfirferð minni yfir það nýjasta á netinu. Hræðsla við hræðslu (Phobophobia)??? Hræðsla við að ganga (Stasibasiphobia)??? Hræðsla við mat (Sitophobia (hvernig lifir maður með svoleiðis))??? Hræðsla við hluti hægra megin (Dextrophobia) eða vinstra megin (Levophobia) við sig??? Og svo toppurinn, hræðsla við löng orð (Hippopotomonstrosesquippedaliophobia (að sjálfsögðu er það þá MJÖG langt orð))??? Renndi í gegnum þetta og sá að ég hef ekkert af þessu, tjah, nema kannski smá vott af Ergophobia... ;)

Annað sem ég rakst á var þessi snilldar upptalning á 100 hlutum sem gera það að verkum að það er betra að vera karlmaður! Get nú ekki annað sagt en að ég sé sammála flestu ef ekki öllu, það er fínt að vita til þess að einn góðan veðurdag verð ég gamall perri (#86). Vil líka sérstaklega benda á #2, #4, #11, #87, #95, #100 og að sjálfsögðu #17. Ætli ég fái ekki svipaðan lista fyrir konur í hausinn á næstu dögum, bring it on!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home