þriðjudagur, desember 12, 2006

Ah, Danir...

Það skyldi enginn halda því fram að Danir séu leiðandi þegar kemur að tækniframförum. Jafnvel einfaldir hlutir eins og Visakort eru þeim gjörsamlega ofviða, allavega ef eitthvað er að marka samskipti konunnar við ekki bara einn, heldur tvo banka fyrr í dag. Forsaga málsins er sú að hún ætlaði að borga skíðaferðina góðu með kreditkorti til að fá fría ferðatryggingu, en þar sem ferðaskrifstofan er í Vejle (sem er á Jótlandi = úti í sveit) og veit aukinheldur ekki hvað símgreiðsla með korti er þá var brugðið á það ráð að fara í banka til að taka út pening af kortinu og millifæra svo á ferðaskrifstofuna. En enn og aftur þá koma Danir á óvart og gullmolar eins og "Við getum ekki vitað hvort það sé innistæða á kortinu" fengu að fjúka úr vörum afskaplega 'hjálpsamra' starfsmanna bankans. Síðan hvenær er til eitthvað sem heitir innistæða á kreditkorti? Og í öðru lagi, kæmi þá ekki bara synjun á kortið þegar bankinn myndi reyna að strauja það??? Og í þokkabót varð starfsmaður bankans bara hinn versti þegar Þórunn kallaði bankakerfið þeirra gamaldags og lélegt, verð nú að gefa henni extra prik fyrir að láta þá allavega heyra það fyrst þetta gekk ekki betur en þetta... ;)

Fattaði að ég gleymdi jólalagINU á listann minn um daginn og bið ég Bing Crosby innilega afsökunar á því og lofa honum að ég læt mig dreyma um hvít jól með hann í eyranu á hverjum degi fram að jólum til að reyna að bæta honum þetta upp. Einnig gleymdi ég einni stórgóðri jólamynd í þokkabót sem hefði sómt sér vel á listanum (og hefði auk þess komið fjölda mynda í hina skemmtilegu tölu 13). Sérstaklega er þetta pínlegt í ljósi þess að ég talaði nú inná þessa mynd á sínum tíma (eða, hefði allavega getað það (sópran dauðans)) og ég verð því líka að biðja Gizmo vin minn um að fyrirgefa mér og lofa honum að ég líti á hann fyrir þessi jól (og öll jól hér eftir)...

Talandi um tölur, í dag eru 7 dagar þangað til við komum til Íslands, 12 dagar til jóla, 20 dagar í áramót, 46 dagar í skíðaferðina, 52 dagar í afmælið mitt, 171 dagur í afmælið hennar Þórunnar og ekki nema 34.353 dagar í næstu aldamót. Nóg að hlakka til!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home