Ég fékk jólagjöf...
...og líka afmælisgjöf í gær! Fékk símtal í gemsann minn rétt fyrir þrjú frá Þórunni þar sem hún tjáði mér að hún væri stödd fyrir utan skrifstofuna og ég ætti að taka saman mitt hafurtask og hitta hana þar. Þar sem ég er hlýðinn og góður eiginmaður þá gerði ég auðvitað eins og hún bað, smellti draslinu mínu í tösku og henti mér niður að hitta hana. Þar tjáði hún mér að hún ætlaði að ræna mér úr vinnunni, fara með mig í Jupiter og kaupa handa mér afmælis- og jólagjöf! Ég gat auðvitað ekkert annað sagt en já og takk og ég er því þessa stundina stoltur eigandi fáksins sem hægr er að sjá á myndinni hér til hægri (mitt er að vísu grænt)! :DÉg var því mættur eldsnemma á skrifstofuna í morgun því að auðvitað varð ég að prófa hvernig fákurinn reyndist við að koma mér í vinnuna. Verð að segja að hann stóð sig með stakri prýði enda er þetta afahjól (bedstefarcykel) af bestu gerð (þar sem maður situr nánast upprættur) auk þess að vera með keðjuhlíf (sem er algjört must), bögglabera (fæ körfu (að aftan, að framan er gay) fljótlega), sjö gírum (svo ég geti farið eins hratt og hægt og ég vil) og innbyggð ljós þar sem framljósið er meira að segja með nýjustu útgáfu af dínamó sem er innbyggð í framhjólið og veitir ekkert viðnám (eitthvað break-through technology). Algjör snilld í alla staði og verður án efa mikið brúkað næstu dagana, vikurnar, mánuðina og árin!
"Eitthvað sem gaman er og gott að fá..."

2 Comments:
TIl hamingju með nýja hjólið afi.
Stutt í 30 árin!!!!
Kannski færðu líka einn lítinn pakka undir jólatréð ef þú verður þægur og góður í desember :o) Vantar þig ekki hjálm?!.....bara grín (sko ekki með pakkann samt :)
Skrifa ummæli
<< Home