Jólaáhorfið
Eins og ég lofaði í gær þá hef ég sett saman lista með kvikmyndum (og að vísu einum sjónvarpsþætti) sem nauðsynlegt er að horfa á fyrir hver einustu jól, sumar meira að segja oftar en einu sinni. Og það þýðir ekkert að svindla neitt, annað hvort allar eða enga (og þá farið þið að sjálfsögðu í jólaköttinn)!
Í stafrófsröð er listinn eftirfarandi:
- Bad Santa [2003]
Billy Bob Thornton er virkilega vondur og sídrukkinn jólasveinn sem er í þokkabót þjófur og illmenni. Kolsvartur húmor af bestu gerð, rétt eins og jólamyndir ættu að vera ;) - Blackadder's Christmas Carol [1988]
Eina 'kvikmyndin' á listanum sem er ekki kvikmynd. Rowan Atkinson fer á kostum (sem endranær) í hlutverki Ebenezer Blackadder sem lærir að það að vera vondur getur í raun verið gott. :) - Christmas Vacation [1989]
Þessi var gerð þegar Chevy Chase var enn fyndinn og skemmtilegur (í dag er hann mest pirrandi og sorglegur). Jólamyndin með stóru J-i og ákveðnum greini og gjörsamlega ómissandi fyrir hver jól. Ef þú ætlar bara að horfa á eina jólamynd fyrir þessi jól, þá ÞARF það að vera þessi! - Die Hard [1989]
Hvað er betra en að horfa á Bruce Willis slátra nokkrum þýskum glæpamönnum og bjarga þar með jólunum...? - Die Hard 2 [1990]
...tjah, nema kannski að sjá hann gera það aftur ári síðar á jafn dramatískan og spennandi hátt. Bruce Willis, konungur jólanna! - Home Alone [1990]
Jólin eru rétti tíminn til að endurnýja kynnin við barnastjörnurnar og því er tilvalið að horfa á Macaulay Culkin (meðan hann var lítill og sætur) lúskra á óprúttnum innbrotsþjófum með öllum ráðum og dáðum (efast nú samt að þeir myndu lifa þetta af í 'alvörunni')... - Hot Pursuit [1987]
Hefur nákvæmlega ekkert með jólin að gera (gerist að sumri til) en engu að síður ómissandi á öllum kvikmyndalistum. Mynd fyrir alla aldurshópa og árstíðir! - The Long Kiss Goodnight [1996]
Kannski er ég svona bilaður en mér finnst spennumyndir ómissandi hluti af jólastemmningunni. Hér ættu allir spennufíklar að finna eitthvað fyrir sig því Geena Davis og Samuel L. Jackson plaffa niður 'vondu kallana' hægri vinstri og klikkja út með smellnum one-liner á eftir. That's a duck, not a dick! - Love Actually [2003]
Ég varð bara að hafa þessa með enda snilldarmynd í alla staði, gleði, sorg, rómantík, jól. Fær hiklaust fimm vasaklúta af fjórum mögulegum. - The Nightmare Before Christmas [1993]
Þessi hefur allt, dans, söng, hrylling og leirbrúður. Jói beinagrind stelur jólunum með smá ívafi... - The Santa Clause [1994]
Er sennilega sá eini í heimi sem hefur gaman af þessari. Tim Allen verður jólasveinninn (með greini) eftir að hann óvart drepur fráfarandi sveinka (allt á smekklegan hátt, er PG mynd). Tilheyrandi ærsl og læti fylgja í kjölfarið... - Scrooged [1988]
Síðust en svo sannarlega ekki síst er svo nútíma útgáfa af þessu annars klassíska ævintýri Charles Dickens. Bill Murray er hér í hlutverki Scrooge (heitir að vísu Frank Cross í myndinni) sem er óttalegur durtur en þrír draugar koma fyrir hann vitinu og allir eru syngjandi glaðir að lokum.
Nú er bara að taka fram spólusafnið, grafa upp gersemarnar, hella jólaöli í könnu, taka fram loftkökurnar, hjúfra sig undir teppi og glápa á gleðina þar til augun ætla út úr höfðinu á manni. Ég er allavega farinn út í búð að kaupa loftkökurnar...

2 Comments:
2 down ... to many to go :)
Die Hard myndirnar eru alveg málið, get horft á þær aftur og aftur og aftur..
Skrifa ummæli
<< Home