sunnudagur, janúar 07, 2007

Fyrsti í eftir-jólum...

Samkvæmt dagatalinu mínu (og sennilega fleiri) þá lauk jólunum formlega í gær með þrettándanum. Ég geri ráð fyrir að Íslendingar hafi af því tilefni kastað jólatrjám sínum á bálkesti víða um landið og jafnvel klárað síðustu kínverjana frá því um áramótin. Þetta þýðir auðvitað líka að allar afsakanir varðandi ofát og sælgætiskjamms eru núna ekki lengur 'leyfilegar' og því nokkuð ljóst að maður þarf að fara að taka sig á hvað það varðar...

Heppilega er að fara í gang keppni í vinnunni, Hlunkurinn 2007 sem miðar einmitt að því að koma sér í betra form (eða bara eitthvað form). Keppnin hefst formlega á morgun og stendur til 4. apríl og þurfa allir sem vilja taka þátt að skila inn mælingu á þyngd og fituprósentu fyrir þann tíma. 4. apríl þurfa svo allir þátttakendur að skila nýrri mælingu og breytingin er svo reiknuð og sá sem hefur staðið sig best vinnur svo keppnina. Skemmtilegt og einfalt (eða svona allavega í orði)...

Annars erum við hjónin komin út til Köben aftur og lífið að detta í fastar skorður á ný. Að vísu var okkur Jonna vísað á dyr á skrifstofunni á Vesterbrogade (löng saga sem ég nenni ekki að rekja) og því erum við á milli skrifstofuplássa í augnablikinu en það bjargast sennilega fljótlega. Við kíktum einmitt í heimsókn til Jonna og Erlu um daginn í mat og hittum þar fyrir Runa og Heiðrúnu með pjakkana. Skemmtum okkur vel þar langt fram á kvöld yfir hinum ýmsu gestaþrautum sem fólk átti miserfitt með að leysa (nefnum samt engin nöfn)... ;)

Svo höfum við líka haft það afskaplega rólegt og náðugt núna yfir helgina og sjaldan eða aldrei hefur letin verið meiri, höfum bókstaflega ekki nennt neinu en höfðum þó af að fara í göngutúr bæði í dag og í gær en það var bara gert til að koma í veg fyrir að við myndum gróa föst við rúmið og/eða sófann hérna heima. En á morgun er semsagt öll leti og saurlifnaður að baki og við tekur strangt prógram í bæði mat, drykk og líkamsrækt fram að páskum. Eða, það er allavega planið... :D

1 Comments:

At 9:44 e.h., Blogger Skaffen-Amtiskaw said...

Finnst þú verðir nú samt að testa alla eftirréttina í nýju bókinni þinni áður en þú ferð að fasta :)

 

Skrifa ummæli

<< Home