mánudagur, janúar 01, 2007

Áramótaheitið

Það er víst til siðs við áramót að koma með heit um eitthvað sem maður ætlar að gera meira eða minna af á nýja árinu. Að þessu sinni ætla ég að hafa þetta einfalt:
Minna tuð, meira stuð

Hvorki meira né minna. Og þegar það er að baki þá er kannski spurning um að athuga hvernig gekk til við áramótaheitið sem ég gaf við síðasta áramót. Þegar glöggt er skoðað (og talið) þá kemur víst í ljós að ég setti inn hvorki fleiri né færri en 168 færslur á árinu sem var að líða sem gerir eina færslu á 2,17261904762 daga fresti sem verður eiginlega að teljast stórgott þegar miðað er við það að ég talaði um að ná allavega einni í hverjum mánuði... ;)

Annars hefur svosem lítið merkilegt gerst á þessu ári, allavega ekkert sem mér dettur í hug þessa stundina og fyrir vikið nenni ég ekki að búa til lista eins og fyrir nákvæmlega ári síðan. Ber þó kannski að nefna algjör viðsnúningur á gengi United á öllum vígstöðum sem er auðvitað alltaf skemmtilegt! :D

1 Comments:

At 12:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég myndi nú telja allar gæðastundirnar sem þú fékkst að upplifa í návist minni árið 2006 nú vera ansi merkilegar, og þess virði að nefna.
Ég er eiginlega bara móðguð.

 

Skrifa ummæli

<< Home