Jólasveinaleiðangur 2006
Það getur komið fyrir að Þórunn fái góðar hugmyndir. Sú var einmitt raunin í gær (að vísu kom hugmyndin fyrst upp fyrr) þegar við leigðum okkur bíl hjá Leigðu-brak til að keyra út pakka og þess háttar til þeirra sem við þekkjum hérna í Kaupmannahöfn og ætla að dvelja hér yfir jólin. Við höfðum ákveðið að þar sem ég er svoddan bakari að útbúa gjafakörfur með heimabakaðri kæfu og nýbökuðu rúgbrauði og færa liðinu (þeim vonandi til mikillar ánægju). Og þar sem við þurftum einnig að koma út fleiru (t.d. heilum kassa af malti + appelsíni) þá sáum við framá að við gætum sennilega aldrei komist með þetta allt í strætó/metró/lest nema í nokkrum ferðum og það var eitthvað sem við nenntum auðvitað engan veginn...
Við sóttum brakið í gær um hálf fimm og brakið reyndist bara vera hinn ágætasti kaggi, meira að segja með geislaspilara. Við sömdum við Leigðu-brak um að borga þeim 228 danskar krónur gegn því að þau létu okkur fá bílinn með 50 kílómetra innifalda og að við skiluðum honum aftur klukkan 7:30 í morgun. Við héldum svo af stað með viðkomu hjá Jonna og Erlu, Hönnu Gunnu og Ómari, Runa og Heiðrúnu (sem voru svo góð að bjóða okkur í kvöldmat líka, afskaplega vel þegið) og að lokum hjá Ragnhildi og Bruno. Allir voru mjög ánægðir með innlitið og glaðninginn og spurning hvort við gerum þetta ekki bara að árlegum viðburði ef vel heppnast (vitum það auðvitað ekki fyrr en eftirá, tökum samt ekki við neinum kvörtunum!). Við skiluðum svo bílnum aftur í morgun á umsömdum tíma, fullum af bensíni, eftir 47 kílómetra leiðangur um Kaupmannahöfn. Vel heppnuð ferð í alla staði!
Í kvöld verður svo haldið út á Kastrup til að húkka far með Icelandair til Íslands klukkan 20:20, áætluð lending í Keflavík klukkan 22:10 með flugi FI-213 (in case að einhver hafi áhuga á að vita það)...

1 Comments:
Takk fyrir innlitið í gær!!!
Við ákveðum hér með að þetta verður árlegt !!!!
Kveðja
Solbakken fjölskyldan
Skrifa ummæli
<< Home