föstudagur, mars 02, 2007

Med det samme, ja tak!

Gerði merkilega uppgötvun í gær! Það kemur semsagt í ljós að það er ekki bara tengdamamma sem les þetta röfl mitt því að Oddur var að gera grín að því að samkvæmt blogginu mínu (þar til núna þ.e.) er ég ennþá snjóaður inni í Kaupmannahöfn. Get nú róað spennta lesendur mína með því að tilkynna þeim að mér tókst einmitt að moka mig út úr húsi í gærkvöldi í fyrsta skipti í heila viku... ;)

Ekki það að það sé eitthvað sérlega glæsilegt um að litast úti á götum Kaupmannahafnar hvort eð er (spurning um að moka sig aftur inni bara) þegar að brjáluð ungmenni ryðjast um göturnar og kveikja elda og kasta grjóti hægri vinstri. Þegar það þarf að grípa í táragasið þá er greinilega fjör á ferðinni en lögreglan vann vinnuna sína vel og hafði sæmilega góða stjórn á hlutunum. Gott að sjá þessi ungmenni berjast 'málefnalega' fyrir málstaði sínum og vekja þannig samúð fyrir honum meðal almennings, tjah, eða bara algjörlega að missa samúðina með hálfvitalegum aðgerðum á borð við þær sem sáust í gær. Greinilegt samt að óhófleg neysla ólöglegra efna hefur áhrif á heilastarfsemi enda er hún greinilega ekki mikil hjá þessum blessuðu mótmælendum...

Við Jonni erum svo loksins komnir með nýja skrifstofu sem er stödd á bókstaflega besta stað í bænum, rétt hjá Ráðhústorginu í götu samsíða Strikinu. Höldum þangað á mánudag með allt okkar hafurtask og verðum þar vonandi til frambúðar.

Og að lokum. Fyrir þá sem muna tímana tvenna og horfðu á barnaefni á sínum yngri árum, hér er eitthvað fyrir ykkur... :D

2 Comments:

At 12:15 e.h., Blogger Oddur og Kristín í København said...

heyr, heyr

 
At 10:32 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þórhallur! Mamma er ekki ánægð með blogg-afköstin!
Heldurðu að þó þú sér hættur að vera heimavinnandi húsmóðir þá sé það e.k. afsökun fyrir bloggmetnaðarleysi! Foj.

 

Skrifa ummæli

<< Home