mánudagur, mars 12, 2007

Naðran brúkuð!

Held að það sé loksins óhætt að segja að vorið sé komið hérna í Köben fyrst að ég gat tekið mig til, stigið á fákinn fráa og hjólað í vinnuna! Ef það er ekki merki um vorveður þá veit ég ekki hvað! Var eiginlega búinn að gleyma því hvað það er mikil snilld að geta hjólað í vinnuna og það spillir nú ekki fyrir að það er styttra að fara á nýja staðinn auk þess sem ég get núna hjólað í gegnum Christianshavn, yfir brúna, framhjá Kristjánsborg, inn á Amagertorv og þá leiðina hingað niður á Vestergade.

Annað skýrt merki um vorkomuna er að á laugardaginn fórum við í fótboltanum í fyrsta skipti í ár út að spila. Og það var ekkert verið að tvínóna við hlutina heldur skelltum við okkur beint í æfingarleik við Brøndby Strand IK. Að vísu var eitthvað léleg mæting hjá okkur þannig að við þurftum að fá lánaða menn hjá þeim en þetta var hin besta skemmtun þangað til einn vitleysingurinn hjá BSI ákvað að það væri þjóðráð að skalla Baldvin í andlitið eftir smá pústra þeirra á milli. Þá ákváðum við að gefast upp á þessu og dómarinn flautaði leikinn bara af. En við höfðum þó allavega sigur í leiknum 3-2...

Í gær var svo leikur í handboltanum þar sem við spiluðum við Gribben sem eru sætinu fyrir ofan okkur í deildinni. Ekta botnbaráttuleikur sem lauk á endanum með sigri Gribben 25-23 í hörkuleik sem réðist ekki fyrr en á síðustu mínútunum. Óli hafði það af að fá rautt og eftir það var heldur á brattann að sækja. Mér tókst þó að skora eitt mark í leiknum. Nú verðum við semsagt að treysta á úrslit í öðrum leikjum svo við föllum ekki um deild, en það kemur bara í ljós...

Eftir að heim var komið þá ætlaði ég bara að taka því rólega en þá vildi Þórunn endilega fara út að skokka og mér tókst að láta hana plata mig í það á einhvern óskiljanlegan hátt. Ég spennti á mig púlsmælinn góða, fór í hlaupaskóna og hélt af stað og þegar uppi var staðið hafði ég hlaupið í einar 50 mínútur! En það tók líka sinn toll því að ég gat varla staðið í fæturna í gærkvöldi og var sofnaður rétt eftir tíu, greinilegt að formið er ekki alveg eins og best verður á kosið þó að maður sé allur að koma til... ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home