sunnudagur, mars 25, 2007

Hjartaáfall!

Ég má teljast heppinn að vera enn ungur og heilsuhraustur því ég er ekki viss um að eldri og 'óhressari' menn hefðu sennilega geispað golunni við sömu aðstæður og ég lenti í rétt í þessu! Ég sat semsagt í makindum mínum að horfa á MH vs. MK í undanúrslitum Gettu betur frá því síðasta föstudag. Þar sem Þórunn situr inni að læra þá var ég með heyrnartól á mér til að trufla hana ekki því ég er afskaplega tillitsamur ungur maður. Rétt í því sem MK er að byrja að svara hraðaspurningunum þá sé ég útundan mér eitthvað fyrirbæri og þegar ég lít upp sé ég að þetta er stærsta býfluga í heimi!!! Og það sem meira er, hún stefndi beint á mig á ofsahraða!!! Ég rauk því upp, fleygði frá mér heyrnartólunum og flúði eins og fætur toguðu út úr stofunni til að koma mér í var frá þessu 'fljúgandi virki' sem nú var sveimandi um stofuna. Heppilega þá ákvað afstyrmið að stofan okkar (og þ.a.l. íbúðin okkar) var víst ekki ýkja merkilegur pappír og yfirgaf tilveru okkar eftir stutta dvöl aftur út um svaladyrnar sem ég núna búinn að loka aftur. En eitt er víst, sumarið er (held ég) að bresta á hérna í Danmörku...

Allavega er það víst tilfellið að talað er um að sumarið sé byrjað þegar sumartíminn tekur gildi sem gerðist nákvæmlega klukkan tvö í nótt þegar klukkan sló tvö en sló í raun þrjú og þar með er ég aftur á sléttu hvað tímatap/tíma'sigur' varðar. Þannig að núna er tímamunurinn á milli Íslands og Danmerkur aftur orðinn tveir tímar sem þýðir að þeir sem vilja hringja í okkur hingað út þurfa að hafa í huga að eftir klukkan átta að íslenskum tíma þá er klukkan orðin tíu að dönskum tíma og þá er orðið of seint að hringja í hús, allavega var það eitt af því sem mér var kennt þegar ég var lítill og pattaralegri... ;)

Auk þess gefur veðrið þessa stundina sterklega til kynna að hægt sé að pakka saman vetrarfötunum og grípa í kvartbuxurnar og sandalana. Að vísu er ennþá dálítið kalt en það hefur nú aldrei stoppað nokkurn mann, sérstaklega ekki Íslendinga sem rjúka alltaf út í sólbað í hvert sinn sem sólin fer að skína... :)

Annars er íslenska fyndið tungumál sem gaman er að velta fyrir sér. Sérstaklega er skemmtilegt þegar orð hafa fleiri en eina merkingu því að það getur verið stórfyndið að taka orðasambönd og orðatiltæki tengd einni merkingunni og yfirfæra á aðra. Dæmi um svoleiðis skemmtilegheit er t.d. orðið 'stíll' eins og í ritstíll eða jafnvel fatastíll. Orðið 'stíll' er einmitt líka notað yfir annan allsendis óskyldan hlut sem er í daglegu tali nefndur 'endaþarmsstíll'. Nú getum við aldeilis farið að leika okkur með orðin og dettur mér þá fyrst í hug orðið 'stílhreinn' sem svo sannarlega getur átt við báðar merkingarnar. Nú 'stílbrot' að sama skapi þó svo það sé kannski ekkert voðalega smekklegt. Stundum er talað um að 'það sé stíll yfir honum' sem er eiginlega bara frekar undarlegt. En það sem passar sennilega best miðað við báðar merkingarnar er 'að færa í stílinn'...

4 Comments:

At 11:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert ennþá pattaralegur ;)

 
At 6:19 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þessi helvítis Gettu betur keppni var RUGL! og ekkert annað.

 
At 8:07 e.h., Blogger Oddur og Kristín í København said...

DJöfull eru menn aktívir í þessu, maður hefur varla undan að lesa færslur frá þér!!

 
At 3:24 e.h., Blogger Unknown said...

þú ert vægast sagt ömurlegur bloggari! hananú

 

Skrifa ummæli

<< Home