föstudagur, júní 08, 2007

10:51

Það er ýmist í ökkla eða eyra, greinilega. Einhvern tímann hefði maður nú líka látið fólk heyra það ef það væri að skríða í vinnuna rétt undir hádegið. En ég hef hinsvegar mjög góða afsökun fyrir að koma svona seint (er að vísu enn á undan flestum á skrifstofunni á Íslandi). Ég var nefnilega lagður af stað að heiman klukkan 7:45 á leið á fáknum til Jonna. Ég hafði nefnilega samið við hann að rúnta með strákinn upp í Hellerup í kínverska sendiráðið til að ég gæti fengið vegabréfsáritanir fyrir okkur hjónin fyrir ferðina miklu. Þar opnaði á slaginu klukkan níu en þegar við mættum á staðinn klukkan nákvæmlega 9:03 þá var þegar kominn þvílík röð og ég endaði með að bíða í klukkutíma eftir einhverju sem tók nákvæmlega 30 sekúndur í framkvæmd, afhenda pappírana og vegabréfin og fá kvittun svo ég gæti sótt draslið aftur í næstu viku (með tilheyrandi bið, væntanlega)...

Annars er maður nett að kafna hérna í Köben þessa dagana. Það er nánast ólíft hérna á strifstofunni fyrir hita og allar viftur komnar á fullt. Held að 'botninum' hafi verið náð í gær þegar Danirnir hérna voru farnir að kvarta og þarf þá helvíti mikið til. Að sjálfsögðu reynir maður að vera eins léttklæddur og mögulegt er (væri reyndar mest til í að vera á naríunum einum fata þessa stundina) og kæla sig með einhverju svalandi að drekka. Manni líður ekkert ósvipað og þegar maður er í saunu, svitnar eins og svín og verður hálf sljór (sem var að vísu ekki á það bætandi). Kvartbuxurnar og stuttermaskyrturnar hafa allavega komið sér helvíti vel en verra er það með sandalana...

Málið er nefnilega að þó svo að ég sé, að mínu mati, með heimsins fallegustu kálfa (og þó víðar væri leitað) þá er ég með hrikalega ljótar tær. Þetta stafar nú að vísu ekki alfarið af erfðum heldur vill svo brenna við að þegar menn eru jafn gríðarlega miklir knattspyrnumenn og ég og jafn ótrúlega leiknir með knöttinn að andstæðingurinn gerir í því að hrella mann og m.a. stíga á tærnar á manni. Held að ég sé búinn að missa neglurnar á stórutánum tvisvar, bara á þessu ári einu, og þá er vel hægt að ímynda sér hvílíka hryggðarmynd er um að ræða. Fyrir vikið eru tærnar bara faldar ofaní skóm og munu sennilega bara halda sig þar, allavega á almannafæri. Vil ekki vera þekktur fyrir að vera gangandi sjónmengun... ;)

Og fyrir þá sem vilja sjá eitthvað fyndið, mæli ég með þessu hér...

2 Comments:

At 5:05 e.h., Blogger Oddur og Kristín í København said...

ég held að ég verð að setja smá spurningarmerki við þessa færslu!!! Síðan hvernar varst þú góður í fótbolta??

 
At 11:57 e.h., Blogger Gudrun Lilja said...

Hvað þýðir gangangi ? Er það nýtt orð sem þú þurftir að læra fyrir Kínaferðina ;o)
Puss på er

 

Skrifa ummæli

<< Home