fimmtudagur, maí 24, 2007

Sætasta stelpan á ballinu...

When the winds of change are blowing, some people are building shelters, others are building windmills.
- Kínverskur málsháttur

Hefði betur farið varlega í að tala um tapara því nú þarf ég augljóslega að éta þessi orð ofan í mig. Solla stirða sýndi í verki að maður skyldi ætíð spyrja að leikslokum og tókst að gera 'sigurvegarann' Skalla-Steingrím að mesta taparanum af öllum vegna heimskulegra orða og gerða hans og sífelldum afleikjum. Frammararnir og Vinstri græn(ir) mættir í fjölmiðla til að rakka niður nýja ríkisstjórn, talandi um svik, pretti og undirferli. Geiri og Solla orðnir bestu vinir og greinilega 'sigruðu' Skalla-Steingrím, 'Græna'-Jón og Fiski-Gauja með klassísku hælbragði. Nonni 'græni' hrökklast úr formannsstólnum, gjörsamlega 'bensínlaus' og Guðni 'bóndi' grenjar (nánast) í beinni í Kastljósinu yfir því hvað DV var vont við vesalings flokkinn hans og hafði af þeim að lágmarki 8-10 þingsæti. Hver segir svo að það sé ekki gaman að pólitík?? Maður þyrfti meira að segja að hafa helvíti gott ímyndunarafl til að geta skáldað svona nokkuð! :D

Af okkur hjónunum er það að frétta að við fórum út úr bænum á miðvikudaginn í síðustu viku og vorum eina nótt í sumarhúsinu (annað af tveimur) sem pabbi hans Jonna á hérna á norður Sjálandi. Vorum þar í góðu yfirlæti með Jonna og Erlu, Runa og Heiðrúnu og skæruliðunum þremur (sem voru þó mjög prúðir). Jonni notaði tækifærið og bauð okkur í léttan afmæliskvöldverð og svo lágum við eða sátum fram á fimmtudagskvöld í afslöppun. Alveg klárt mál að þessi bústaður verður notaður meira áður en Jonni flytur aftur til Íslands...

Nú svo hefur veðrið hérna í Köben aldeilis tekið vð sér og í dag er annar dagurinn í röð þar sem ég hjóla í vinnuna í kvartbuxum og stuttermabol sökum hita sem satt best að segja er eiginlega of mikið af því góða fyrir minn smekk, allavega er nánast ólíft hérna á skrifstofunni á stundum. Við Jonni erum að vísu með viftu en það er eins og aðrir hérna á skrifstofunni séu miklir áhugamenn um saunu því að þeir vilja helst ekki opna glugga, hvað þá kveikja á sínum viftum. Spurning hvort hitinn hérna inni þurfi ekki að slaga hátt í 40 gráðurnar til þess að þeir fari að hugsa sér til hreyfings í þeim efnum...

Ætla svo að brjóta odd af oflæti mínu og hjóla (aldrei þessu vant) á æfingu á eftir héðan af Vestergade (og þá væntanlega heim aftur á eftir). Spurning hvort ég komist nokkuð framúr í fyrramálið eftir þau átök, get þá alltaf bara unnið með tölvuna í fanginu uppi í rúmi... ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home