fimmtudagur, júní 07, 2007

7:18

Þetta er semsagt klukkan hérna uppi í hægra horninu á skjánum hjá mér á nákvæmlega þessu augnabliki. Það sem meira er, ég er búinn að hjóla niður á Vestergade og sit hérna aleinn á skrifstofunni! Veit ekki nákvæmlega hvað gerðist í morgun en ég allavega vaknaði af sjálfdáðum vel fyrir sex og var alltaf að bíða eftir að klukkan hringdi. Dottaði svo aðeins og þegar ég vaknaði aftur var ég handviss um að ég hafði sofið yfir mig. Nei, nei, ekki nálægt því! Nennti þá ekki þessu hangsi lengur, henti mér á fætur, í föt, tók einn snúning á tannburstanum og fór af stað á fáknum. Gefur ekki morgunstund annars gull í mund...? ;)

Það var að vísu fátt um gullstundirnar á fótboltasviðinu í gær. Við áttum leik á móti Græna búðingnum og það verður að segjast eins og er að aðra eins hörmung hef ég sjaldan upplifað. Þegar uppi var staðið (eða setið kannski, miðað við árangurinn) þá höfðum við náðarsamlegast leyft þeim að koma tuðrunni fimm sinnum í netið okkar megin án þess að okkur tækist að gera það þó ekki væri nema einu sinni hinu megin. Meira að segja dómarinn var farinn að hlæja að okkur undir það síðasta, o svei!

Getum huggað okkur við það að þetta var greinilega ekki dagur íslenskrar knattspyrnu því eftir leikinn fórum við nokkrir og horfðum á íslenska landsliðið etja kappi við sænsku metróstrumpana í því sænska. Svíarnir unnu leikinn á öllum sviðum, bæði hvað varðar knattspyrnuhæfni og hárstrípur enda ekki einn einasti leikmaður þeirra sem hafði sleppt því að fá sér 'highlights' fyrir leik. Ætli dómarinn í leiknum hafi ekki líka verið farinn að hlæja duglega að sveitastrákunum frá Íslandi því að þeir leyfðu Svíunum líka að skora fimm mörk án þess að Svíarnir gæfu Íslendingum nokkuð færi á að setja svo mikið sem eitt, o svei!

1 Comments:

At 12:02 f.h., Blogger Gudrun Lilja said...

"We are the champions my friend"
Det var helt klart att Sverige skulle vinna den matchen, men att det skulle bli en sån avgörande seger. LOL
Svona er lífið frændi og hættu svo að gera grín af svíum. Spáðu ef þú hefðir búið þarna í öll þessi ár í staðinn fyrir mig, þá hefði kannski eiithvað orðið úr þínum fótbolltaferli ;o)
Puss och kram til ykkar c",)

 

Skrifa ummæli

<< Home