sunnudagur, júní 17, 2007

Kaffimúrinn er rofinn...

Loksins, loksins, lokins tókst mér að koma niður heilu drykkjaríláti af kaffi! Og ekki nóg með að það hafi verið eitt, heldur eru þau orðin tvö í þessum skrifuðu orðum. En áður en tengdó fer að fagna um of þá ber að geta þess að hér var ekki um 'hreinræktað' kaffi að ræða (kaffibolli með optional mjólk og/eða sykri) heldur þurfti swiss mocha til að brjóta múrinn og ég sit núna með Café Latte með tiramisu bragðefni úti sem Þórunn sótti (á fáknum sínum) á Baresso. Já, það verður víst að vera eitthvað í þessu helvíti til að drepa óbragðið af kaffinu því annars kem ég þessum viðbjóði með engu móti niður. Þannig að nú vitið þið það, ef þið ætlið að bjóða mér uppá kaffi, þá þarf það að vera með annaðhvort MJÖG miklu sýrópi eða í hlutföllunum 2:1 kakó vs. kaffi... ;)

Spilaði í fyrsta skipti póker uppá peninga í gær. Aðeins öðruvísi stemmari en þegar ekkert er lagt undir, miklu meiri 'spenna' í spilunum einhvern veginn. Auk mín og Odds 'Unabomber' (sem var gestgjafinn í gærkvöldi) voru mættir Ingvi 'Buyin', Jonni 'River card', Siggi 'Fourth Street' og Arnar 'Highroller'. Eftir næstum því sex tíma setu þá vorum við Arnar einir eftir og ákváðum að slútta þessu með stórmeistarajafntefli og deildum 400 + klink DKK pottinum á milli okkar. Ég fór því heim með meiri pening en ég kom með á staðinn sem verður víst alltaf að teljast jákvætt, sérstaklega í ljósi þess hvað ég er ömurlegur í póker... :D

Í gær fór svo loksins að rigna. Og það var líka engin smá demba heldur úrhelli af allra bestu gerð. Verður víst að teljast hefðbundið í ljósi þess að Íslendingar hér í Kaupmannahöfn héldu Lýðveldisdaginn hátíðlegan í gær, afskaplega þjóðlegt veður í allastaði. Eiginlega var þetta úrhelli miklu meira en kærkomið eftir hitann og svækjuna hérna undanfarnar tvær vikur því núna hefur hitinn snarlækkað og sólin rétt nær að gægjast fram endrum og eins. Veit ekki hvort að það sé eitthvað að mér (sem verður að teljast afar líklegt) en ég er mun meira fyrir 'íslenskt' veðurfar með tilheyrandi rigningu, roki og sólarleysi heldur en þessa Mæjorkastemmningu sem maður hefur mátt þola undanfarið. Tala nú ekki um þegar maður er jafn hvítur og ég, þá þýðir ekkert að ætla að leggjast út í sólina og work-a base tan-ið. Sunblock 30 or burn...

3 Comments:

At 6:22 e.h., Blogger Oddur og Kristín í København said...

Klapp klapp klapp. Nú langar mig í kaffi!!! Best að hella upp á!

 
At 8:16 e.h., Blogger Jonni said...

Kjéllinn hefði nú sennilega verið þarna í top tveim ef maður hefði keypt mig inn í spilið aftur jafn oft og þú og Ingvi hahahaha :)

 
At 8:49 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

NEeeEEEIIIIIIIII!!!!
ég vissi það!
ég vissi það!
Einmitt þegar ég fer að fara að koma út þá versnar veðrið!
Hvað hafa veðurguðirnir á móti mér spyr ég nú bara ?!

 

Skrifa ummæli

<< Home