It lives!
Já, gott fólk, Laddi er svo sannarlega ekki enn dauður (þó svo að 'fjarveran' hafi gefið annað til kynna)! Ákvað bara að á meðan ég var á Íslandi þá væri 'rausið' í sumarfríi en þar sem sumarfríið er búið (sem þýðir væntanlega að ég er ekki lengur á Íslandi) þá eru engar afsakanir lengur og eins gott að ég fari að taka á því aftur í bloggheimum...
En þá þarf auðvitað að hafa netta upprifjun (eða frásögn fyrir þá sem vita ekki hvað hefur á daga mína drifið síðan síðast). Fórum til Íslands 19. júlí og strax daginn eftir var Palli bróðir steggjaður. Það var hin fínasta skemmtun, sérstaklega þegar við fórum með hann í slutty cowgirl búning í röðina fyrir Harry Potter and The Deathly Hallows fyrir utan Nexus þar sem voru (að sögn mbl.is) ekki færri en 200 manns að bíða. Mental note, næst þegar þið ætlið að komast fram fyrir í röð þá klæðið þið bróðir minn í kvenmannsgalla, hefur ekki klikkað enn... ;)
Strax mánudaginn á eftir (steggjavitleysan var á föstudegi) þá fórum við af stað (við Þórunn semsagt) með Palla, Kaju, Melkorku og Rebekku í veiði austur í rassgati, nánar tiltekið í Miðfjarðará við Miðfjörð í Bakkaflóa (fyrir þá sem eru slakir í landafræði þá er þetta nokkurn veginn mitt á milli Þórshafnar og Vopnafjarðar. Tókum okkur tvo daga í að komast á staðinn og gistum á leiðinni í Varmahlíð og Ásbyrgi. Eyddum svo fimm dögum í góðu yfirlæti í veiðikofanum þar sem við mestmegnis slöppuðum af, kíktum af og til í hylina og létum okkur aðallega líða vel. Veiddum (þrátt fyrir letina) þrettán laxa, ég fékk fjóra, Palli fjóra, Þórunn þrjá, Melkorka einn og Eiki (en hann og Lára kíktu í heimsókn síðustu dagana) einn. Þórunn lét mig lofa að það kæmi skýrt fram að hún veiddi stærsta laxinn (15 pund, sem var sá stærsti það sem af var sumri) og ég ákvað að taka þetta aðeins lengra og henda bara inn mynd af henni með kvikindinu líka þannig að ekkert færi á milli mála! Kannski allt í lagi að koma því að samt að ég fékk tvo þrettán punda, en það er víst lame samt miðað við tröllið hennar... :P11. ágúst var svo loksins komið að því sem beðið hafði verið með mikilli eftirvæntingu eftir í fleiri, fleiri ár (aðallega amma Guðrún samt) en þá, gott fólk, gengu Palli bróðir og Karitas loksins í hjónaband. Það var hið fínasta partý og það meira að segja þrátt fyrir að ég sæi um veislustjórn. Reyndi eins og ég gat að klúðra því en partýið var líklega of gott og skemmtilegt til þess, hefði kannski átt að sleppa því að undirbúa mig, man það bara næst. Við bræðurnir eigum semsagt núna brúðkaupsafmæli með tveggja daga millibili hér eftir, gaman af því...
Annars var bara tíminn á Íslandi notaður í afslöppun og skemmtilegheit. Þórunn prjónaði eins og vitleysingur á meðan ég vann og spilaði fótbolta með old boys í Þrótti. Fór nánast ekkert í golf og er þess vegna orðinn enn lélegri en ég var (þarf að fara að taka mig verulega á hvað það varðar). Þetta var eiginlega bara mjög rólegt og þægilegt sumar ef út í það er farið, allavega er maður vel úthvíldur og afslappaður. Og já, meðan ég man, keypti mér ný gleraugu áður en við fórum út (sjá mynd), totally awesome!Þangað til næst, smoke 'em if you got 'em...

2 Comments:
it hardly lives!
Jæja snúlli. Á ekkert að fara að bæta við þetta ? Maður bíður spenntur eftir meiri fréttum af ykkur í Danaveldi.
Gömlu farin til Kína og svona. Bað pabba um að skilja boxhandskana eftir c",).
Annars voða lítið að frétta. Ömurlegt veður og allur pakkinn.
Knúsar og kossar til ykkar beggja.
Í von um að fá meiri lesefni í bráð,
Guðrún Lilja
Skrifa ummæli
<< Home