Einn dagur enn...
...og svo byrjar sumarfríið! Helvíti verður þetta ljúft! Byrjum á því að henda okkur til Kína í tvær vikur, svo til Íslands og beint í veiði í viku og svo bara chill framyfir Verslunarmannahelgi, gæti vart verið betra! En ég þarf víst að klára nokkra hluti í vinnunni áður en ég fer, annars þarf Palli bróðir að gera þá (sem er kannski bara hið besta mál). Kannski ég byrji bara í fríi í dag og dump-i bara öllu á hann, djöfull væri það sweet... :D
Þórunn var rétt áðan að fylgja Sólveigu út á Kastrup. Hún var rosalega 'heppin' með veður á meðan hún var hérna hjá okkur í Köben, held að það hafi verið slegið eitthvað met í úrkomu, allavega met í einhverju. Þær hafa (og Sigríður líka) verið í þvílíku chill-i hérna síðan á föstudag, farið í bæinn, til Svíþjóðar og slakað vel á, eiga það skilið, þessar elskur. Ég hef á meðan verið að rembast við að koma verkefninu sem ég er að vinna í á koppinn, á víst að vera tilbúið á mánudag þannig að ég hef mátt engan tíma missa, líka ágætt að sleppa við að fara til Svíþjóðar að heimsækja metró gaurana... ;)
Á mánudaginn var síðasti leikurinn fyrir sumarfrí í fótboltanum. Stórskemmtilegur leikur sem við unnum 4-1 eftir að hafa lent manni og marki undir um miðjan seinni hálfleik. Markið kveikti greinilega í okkur og við sölluðum inn mörkum, hefðum meira að segja getað skorað fleiri. Að vísu verður víst að koma fram að maður leiksins var Einar markmaður sem varði ótrúlega, þar af fjórum eða fimm sinnum einn á móti manni. En þetta var gott veganesti fyrir fríið, erum allavega ekki lengur í fallsæti... ;)
Svo er víst búið að sleppa Paris Hilton úr fangelsi! Hún segist hafa lært margt af þessari dvöl sinni (yeah, right) og að hún muni breyta um lífsstíl. Allavega reyndi hún að ljúga því að Larry King í viðtali við hann á dögunum. Held að það sé álíka líklegt að Paris fari að vera 'góð stelpa' og að ég verði keyptur af Manchester United sem striker! Bíðið aðeins, umboðsmaðurinn minn er að hringja...
Og að lokum smá 'gleði'. iPhone kemur víst út á morgun og þeir sem ætla að næla sér í stykki (kemur að vísu bara út fyrir Bandaríkjamarkað) geta glaðst yfir þessum fréttum. Nú, þeir sem eru áhugasamir um skrýtin fyrirbæri geta skemmt sér yfir þessu. Annars er svo líka alltaf hægt að hlæja að vitleysingum...

1 Comments:
HEI!!! More of the working, less of the dumping :D
--Guess who
Skrifa ummæli
<< Home