Bloggið er dautt, lengi lifi bloggið!
Móðirsystir hennar Þórunnar kom í kaffi hingað á laugardaginn. Sem væri kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að hún kvartaði sáran yfir því að ég væri hættur að blogga! Ákvað að kanna málið og athuga hvað það væri orðið langt síðan síðast, og viti menn, það eru minna en tveir mánuðir!! Skil ekki hvað fólk er að tala um, er nánast nýbúinn með skylduna! ;)
Fór á landsleikinn um daginn á Parken. Úrslit leiksins eru svosem öllum kunn en það sem fæstir vita er að þó svo íslenska landsliðið hafi tapað orrustunni á vellinum þá vil ég meina að við, stuðningsmennirnir (eða kannski frekar við Íslendingarnir sem mættum, telst nú seint mikill 'aðdáandi' svosem), höfum unnið orrustuna í stúkunni. Er ekki frá því að hærra hafi heyrst í okkur heldur en Dönunum. Það er að vísu ekki skrýtið í ljósi þess að sjaldan eða aldrei hafa færri áhorfendur mætt á Parken. Lélegt orðið þegar Íslendingar hafa meiri áhuga á leiknum en Danir, sérstaklega þegar Ísland hafði að ENGU að keppa...
Fór líka á tónleika með Bubba á dögunum. Eða kannski frekar, fór í tímavél aftur um tvö ár og fór aftur á sömu tónleika og ég fór á með Bubba á sama stað fyrir tveimur árum. Held, svei mér þá, að hann hafi meira að segja spilað nákvæmlega sömu lögin í sömu röð! Og í uppklappinu tók hann líka sömu lögin og síðast, frekar lame. Tók tvö eða þrjú af þessum gömlu 'góðu' og svo bara mestmegnis eitthvað drasl. Eitt samt skemmtilegt við að fara á Bubba, um leið og hann opnar munninn og byrjar að tala (þ.e. ekki að syngja) þá fyllist maður nýjum þrótti og sjálfstraustið rýkur í botn, því þá, á nákvæmlega því augnabliki, veit maður að maður er ekki heimskasti maðurinn í húsinu...
Keppti í handbolta síðasta fimmtudag og stóð mig bara nokkuð vel, skoraði þrjú mörk! Þurfti að vísu sex tilraunir til en í ljósi þess að ég er langt frá því að teljast einhver kempa í þessum leik þá tel ég það bara nokkuð gott. Allavega skárra en í leiknum sem ég spilaði þar á undan. Kom inná, fór strax inn úr horninu, skaut í hliðarnetið (semsagt ekki mark), hitt liðið brunaði í sókn, ég missti af mínum manni framfyrir mig, ætlaði að ná honum en það vildi ekki betur til en svo að ég braut allsvakalega af mér og var rekinn útaf í tvær mínútur. Þetta tók mig ca. 30 sekúndur og það var spilatíminn sem ég afrekaði þann leikinn (skil þjálfarann vel að hleypa ekki svona vitleysing inná aftur)...
Annars erum við bara í góðum gír, Þórunn er kominn á orthopaed deild á Hilleröd spítala og er þar á fullu að brjóta bein og brjósk í gríð og erg, sannkölluð Callie O'Malley. Ég er bara ennþá á Vestergade með Jonna fyrir utan það að nýr Íslendingur hefur bæst í hópinn og það er enginn annar en stórmennið Runólfur Þór Ástþórsson. Getið rétt ímyndað ykkur að það sé kátt á hjalla hjá okkur félögunum á daginn... :)
Þangað til næst, veriði hress, ekkert stress, fress!

3 Comments:
Ef ég heyri þig tala svona illa um Bubba aftur ... þá slæ ég þig. And that's from the heart!
Ef þú þarft að vera að nöldra fyrir þessum tónleikum þá skaltu tala um þetta Icelandair pakk sem tók frá öll bestu sætin fyrir eyðsluglatt fólk úr Klakaboxinu. Getur þetta lið ekki verið heima hjá sér að horfa á Bubba??
hann lifir, hann lifir, hann lifir enb! klapp, klapp.
bubbi er kónguinn! B-O-B-A
Skrifa ummæli
<< Home