miðvikudagur, desember 05, 2007

Fimmti í jólagleði...

Það getur svo sannarlega 'tekið það úr manni' að spila fótbolta seint um kvöld, hvað þá þegar slíkt er iðkað tvö kvöld í röð. Var semsagt á fótboltaæfingu í gær á þeim yndislega tíma klukkan 22:00 - 23:00, svona koma þeir sem úthluta tímum hjá Kaupmannahafnarborg fram við okkur Íslendingana. Samsæri? Ég held það hreinlega. En merkilegt nokk þá nenna menn actually að mæta því við vorum 15 í gær sem verður að teljast harla gott. En allavega, var semsagt líka í fótbolta á mánudagskvöld á sama tíma, 22:00 - 23:00. Þetta væri ekki svo slæmt ef ekki væri fyrir það að þegar ég kem svo heim þá er ég í nákvæmlega engu stuði til að fara að sofa og ligg svo andvaka í að ganga eitt. Þetta skilar sér svo í því að ég er alveg gjörsamlega ónýtur á morgnana, eins og raunin var í morgun...

En þá að fréttum. Forseti Súdan ákvað að grípa inní ruglið með þennan vesalings breska kennara og ákvað að náða hana, bara sisvona, þegar hann sá framá að málið gæti leitt til milliríkjadeilu. Ákvað semsagt að trúarleg mál skildu að þessu sinni víkja fyrir þeim veraldlegu. En fólk ætti semsagt að láta sér þetta að kenningu verða, helst bara aldrei að nefna orðið Múhammeð. Undarlegir þessir trúarnöttarar...

Og fyrst við erum að tala um trúarnöttara þá eru þeir víst ansi margir í Bandaríkjunum ef eitthvað er að marka þessa frétt. 82% þjóðarinnar segist semsagt trúa á Guð, 79% á að kraftaverk geti gerst og 70% sögðust trúa á himnaríki og engla. Svo sögðust 42% 'trúa' á þróunarkenninguna. Veit ekki alveg með ykkur en er hægt að 'trúa' á vísindakenningu? Næstum jafn margir hafna hinsvegar þróunarkenningunni og trúa á 'vitsmunalega hönnun'. Það kemur ekki á óvart þegar haft er í huga að þriðjungur þjóðarinnar trúir svo á fljúgandi furðuhluti, nornir (wtf?!?) og stjörnuspeki. Þannig að niðurstaðan er þessi: Þriðjungur bandarísku þjóðarinnar eru úti á túni og 70% trúir á verur sem hafa ekki sést síðan á dögum Sesars (og fyrir því er engin sönnun önnur en trúarleg 'heimild'). USA best í heimi? Varla...

Talandi um heimska Bandaríkjamenn. Þessi gaur er klárlega einn af þeim fyrst hann heldur að til sé eitthvað sem heitir 'snjómaðurinn ógurlegi' og hvað þá að þessi steinhella sé fótspor eftir hann. Í besta falli væri þetta steingervingur sem myndi þýða að þessi 'snjómaður' hafi verið uppi fyrir MJÖG löngu síðan og kvikindið því LÖNGU dautt. En auðvitað dæmigert að líta aldrei á líklegustu skýringuna, að þessi steinhella sé bara, fyrir einskæra tilviljun, í laginu eins og risastór fótur, það selur ekki...

Og fyrst við erum að tala um þá sem eru að reyna að selja eitthvað. Hef heyrt að það sé mikil og góð starfsemi í kringum þá sem selja hómópatíu'lausnir' á Íslandi (og annars staðar í heiminum auðvitað). Hómópatía er sennilega mesta bull sem ég hef heyrt um og hef ég þó heyrt ansi margt bullið á minni sæmilega löngu ævi. Fyrir þá sem vita ekki alveg úum hvað málið snýst þá er kannski ágætt að lesa þessa með/á móti grein sem ég rakst á um daginn. Allavega á hreinu að það að selja vatn getur margborgað sig, en bara ef þú býrð til nógu heimskulega sögu á bak við uppruna þess... ;)

Lærði nýtt orð um daginn, Þórðargleði. Það er t.d. mikil Þórðargleði að horfa á þessa frétt. Ég veit að það er ljótt að hlæja að þessu, en samt, ef þér dettur í hug að láta setja sílíkon í rassinn á þér þá áttu skilið að láta hlæja að þér í kjölfarið, alveg óháð því hvort það gangi vel eða ekki. Orðið 'Þórðargleði' þýðir semsagt 'að gleðjast yfir óförum annarra', og þar hafið þið það... :)

Það er auðvitað líka hægt að hlæja að Ashley Young sem var tekinn með allt niðri um sig á dögunum og það rétt fyrir mikilvægan landsleik Englendinga á móti Rússum. Skemmtilegt! En vesalings ökukennaranum sem kom fram í Borat myndinni var víst ekki eins skemmt hvernig honum fannst Borat fara með sig (góð Þórðargleði þar líka) og hefur ákveðið að kæra framleiðendur myndarinnar. Bara ein spurning, hvernig er hægt að meta 'tjón' hans á 400.000 USD? Leiðinlegt þegar Þórðargleði eins verður að 'pay day' fyrir annan, only in America... ;)

Og svo að lokum, ef fólk er að vandræðast með að finna handa mér jólagjöf þá væri ég alveg til í svona klukku. Nörd-ish? Hell yeah!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home