föstudagur, september 30, 2005

Klukk-ed in the head!

Dauði og djöfull! Eitthvað klukk æði hefur víst gripið landann og ég fæ að sjálfsögðu að finna fyrir því. Jonni félagi hefur víst 'klukkað' mig og það þýðir þá að ég þarf að smella inn einni færslu þar sem ég tel upp fimm hluti um sjálfan mig. Algjör anus því að sjálfsögðu dettur mér ekkert í hug þegar ég þarf á því að halda. En að góðra skáta sið þá tekur maður auðvitað þátt í leiknum og gerir sitt besta.

  1. Ég er einn af þeim sem er alltaf að tengja allt við tölur og reyna að búa til mynstur út úr öllu. T.d. tel ég alltaf stafina í undirtextanum (subtitles þ.e.) í sjónvarpinu og reyni að raða þeim saman í jafn stóra hópa eða búa til einhver önnur mynstur (freaky, I know)...

  2. Þegar ég er að keyra þá þarf hljóðstyrkurinn (volume þ.e.) á útvarpinu alltaf að vera stilltur á prímtölu (2, 3, 5, 7 o.s.frv.) eða á tölu sem er heilt margfeldi af 3 (3, 6, 9, 12 o.s.frv.)...

  3. Ég les alltaf á klósettinu þegar ég er að gera eitthvað meira en númer eitt, alltaf! Stundum tek ég meira að segja tölvuna með til að horfa á eitthvað á meðan...

  4. Ég hef séð Ford Fairlane allavega svona skrilljón sinnum (verður betri við hvert nýtt áhorf)...

  5. Mér hefur tekist, á einhvern óskiljanlegan hátt, að slá golfkúlu í eigin auga...


Það er víst hluti af þessum 'klukk' leik að 'klukka' áfram og því ætla ég að nýta tækifærið og 'klukka' mágkonur mínar, þær Sólveigu (sá að vísu að hún er búin, fær bara að gera þetta aftur) og Sigríði (hún fær þá tækifæri til að byrja að blogga, segir sjálf að henni leiðist og vanti eitthvað að gera), og að sjálfsögðu sleppur B-Man ekki við þetta heldur!

fimmtudagur, september 29, 2005

Sænskar kjötbollur...

Það er eitthvað við Svía sem fer alveg rosalega í taugarnar á mér. Ég er að sjálfsögðu ekki að tala um alla Svía því ég ætla ekki að falla í þá gryfju að fara að alhæfa um þessa annars ágætu þjóð. Ég er að tala um það sem ég vil kalla samnefnarann fyrir hinn dæmigerða Svía.

Svíar eru alveg ótrúlega stoltir af sér og sínum og vilja meina (rétt eins og við Íslendingar þó) að þeir séu hreinlega bestir í öllu. Þeir eru auðvitað langbesta þjóðin í öllum íþróttum og eru fljótir að benda á alls konar obscure hluti (rétt eins og við Íslendingar) þegar þeir vinna ekki í einhverri íþróttagrein sem afsökun fyrir slökum árangri (of blautt gras, dómarinn gamall kommi). Svíar verða líka alltaf jafn gáttaðir þegar lagið þeirra vinnur ekki Eurovision því að þeir eru sannfærðir um að lag hvers árs sé besta lag í heimi (og þeir spila það líka linnulaust það sem eftir líður af árinu). Að sjálfsögðu segja þeir líka aðeins frá 'sínum mönnum' í fréttaflutningi þar sem fjallað er um einhverjar keppnir sem þeir taka þátt. "Heimsmeistaramótið í innanhúss hackysack fór fram í gær, sænska liðið hafnaði í 13. sæti." Fréttin búin og maður er engu nær um það hver vann eða neitt annað en það sem viðkemur sænska liðinu. Það er bara ef það vinnur sem maður fær að vita eitthvað meira og þá einungis hverjir voru lagðir að velli...

Tungumálið er nú sér kapítuli út af fyrir sig. Fyrir mér hljómar þetta alltaf eins og væl, krakki að suða í mömmu sinni um nammi eða eitthvað álíka. Norðmenn hafa allavega vit á því að syngja sitt leiðinlega tungumál til að fríska upp á það en Svíar þurfa nánast að skæla með til að ná þessum eina sanna sænska framburði. Fyrir vikið hljóma allir Svíar eins og þeir séu voðalega leiðir eða (ef maður er að reyna að tala við þá á skandínavísku) eins og maður sé voðalega vondur við þá. Ferlega pirrandi til lengdar.

Sænskir karlmenn eru svo eitt fyrirbærið. Ég held að það sé ekki nokkur þjóð í heimi sem hefur jafn marga metrosexual karlmenn og Svíar. Eins og Jonni félagi orðaði svo skemmtilega í morgun: "Sænskir karlmenn eru alveg svakalega plebbalegir!" Það er þetta plebba element sem stingur í augun. Dæmigerður sænskur karlmaður lítur nokkurn veginn svona út: Hár, frekar grannur, ljóshærður, með sítt að aftan (eða bara sítt hár almennt), skegglaus með öllu (taðskegglingar upp til hópa) með (bláa, auðvitað) peysu um axlirnar og hárgelið lekandi niður á enni. Sannir 'karlmenn' þar á ferð ;)

Sænskar konur eru nú samt alls ekki slæmar. Yfirleitt ljóshærðar sem er oftast nær jákvætt og margar hverjar bara helvíti flottar. Eiginlega hef ég ekkert slæmt um þær að segja í rauninni annað en að þær eru sænskar...

Svíar eru líka með endemum latir. Ekki þannig latir heldur vinnulatir. Kannski kalla ég þá bara lata því að við Íslendingar erum vanir miklu lengri vinnuviku heldur en Svíar. Meðalvinnuvikan í Svíþjóð er 37 tímar. Það þýðir að klukkan eitt á föstudögum fara allir Svíar heim. Þeir taka samt alltaf klukkutíma í mat þannig að vikan er í raun búin klukkan tólf á hádegi á föstudögum. Þetta á auðvitað bara við þegar þeir mæta í vinnuna því Svíar eru heimsmeistarar í fjölda veikindadaga á ári á íbúa. Þeir taka að meðaltali 28 veikindadaga á ári sem gerir 2 1/3 veikindadag á mánuði. Það þýðir að viðvera þeirra er ekki nema um 88% af heildarviðveru samkvæmt starfssamningi. Ef Svíar væru tölvukerfi þá væri uppitíma þeirra talinn slappur...

Auðvitað er margt gott í Svíum líka, þeir eru (oftast nær) vingjarnlegir og gestrisnir og (þeir sem ég þekki allavega) mjög indælir á allan hátt. Það er samt eitthvað við þá sem bara hreinlega fer ekki saman við mína 'hagsmuni' sem manneskju. Tungumálið, plebbahátturinn, lélegu Eurovisionlögin, Faxi eða letin, allt spilar þetta inní. Hvað mig varðar er eitthvað verulega rotið í Svíaríki...

þriðjudagur, september 27, 2005

It's written in the stars...

Held að það sé fátt sem vekur jafn blendnar tilfinningar hjá mér og fólk sem trúir á stjörnu- og/eða talnaspeki. Mig langar allt í senn að gráta, hlæja, berja það, tala um fyrir því eða jafnvel bara að losa það undan þjáningum sínum í eitt skipti fyrir öll. Hvað er það sem veldur því að svona margir trúa jafn heitt á jafn mikið bull?!? Er það vegna þess að þegar allar aðrar skýringar bregðast er bara þægilegt að benda á eitthvað sem er yfirnáttúrulegt (fyrir þeim þ.e.)? Getur fólk virkilega trúað því að það sé hægt að segja til um það hver maður er og hvað maður sé að fara gera út frá jafn random hlut og því hvenær á árinu maður er fæddur?!??

Núna er ég fæddur 2. febrúar 1977 og ef við beitum nú 'reglunni' sem talnaspekingar nota þá gerir það 2 + 2 + 6 = 10 = 1 (líklega, þetta er svo fáránlegur algoriþmi að það er ekki fyrir hvítan mann að skilja þetta). Þ.a.l. er hægt að sjá að ég fell í flokk með einum ellefta af mannkyni (tölurnar sem eru í boði eru 1 upp í 9 og svo 11 og 22 (skil ekki alveg hvernig á að vera hægt að fá 11 og 22)) sem eru allir greinilega nákvæmlega eins hvað talnaspekina varðar. Að vísu eru þetta fullt af flottum og góðum eiginleikum sem ég greinilega bý yfir fyrir það eitt að vera fæddur þennan dag. Fyndið að bara það að vera fæddur daginn eftir gefur mér allt aðra eiginleika. Í raun er þetta þá bara mínútu eða jafnvel sekúndu spursmál. Gæti verið fæddur klukkan 23:59:59 þann 2. febrúar 1977. Vá, veit varla hvernig líf mitt hefði orðið hefði ég nú slysast til að fæðast svona eins og einni sekúndu síðar!!! Ég væri líklega bara róni eða götusópari...

Stjörnuspeki er á engan hátt skárri en talnaspeki, hún byggir á sömu vitleysunni. "Þú ert vatnsberi og þ.a.l. ertu bla bla bla bla bla...". Athyglisvert og það sem er líka merkilegt er að þetta passar við fjári marga. En af hverju ætli það sé? Er það vegna þess að fyrir einhverja óútskýranlega krafta reikistjarnanna og stöðu þeirra nákvæmlega daginn, klukkutímann og mínútuna sem þú fæddist að það sé hægt að segja til um það hver þú ert? Nei, þetta er nefnilega byggt á ofureinfaldri stærðfræði sem allt of fáir skilja (Jonni, þú veist að ég er líka að tala um þig!). Ég er að sjálfsögðu að tala um tölfræði og líkindareikning. Það sem stjörnuspekingar (og talnaspekingar líka auðvitað) gera er að taka mörg ólík persónueinkenni og skeyta við hvert einasta stjörnumerki (og þessar lífstölur líka) og halda að það sé einhver sönnun fyrir þeirra fræðum. Galdurinn er að þú velur bara nógu helvíti mörg einkenni til að tryggja að allavega ákveðinn hluti þeirra passi við nánast hvern sem er sem fellur innan hópsins. Og þeir (sem kunna ekki tölfræði og líkindareikning auðvitað) verða alveg gáttaðir á því hvað þetta er 'nákvæmt'!

Ég gæti auðvitað haldið áfram og farið að tala um miðla líka sem notfæra sér sömu vanþekkingu fólks til að hafa af því pening. Þetta er allt byggt á því sama, tölfræði og líkindareikningi. Heilu spilavítin eru starfrækt og blómstra vegna þess eins að fólk hreinlega skilur þessa fræði ekki. Spilafíkillinn heldur alltaf áfram því hann hreinlega fattar ekki að líkurnar eru alltaf honum í óhag, bara örlítið þó svo hann gefist ekki upp strax. Held að það væri ráð að fólk myndi eyða jafn miklum tíma í að reyna að skilja hvernig tölfræði og líkindareikningur virkar eins og það eyðir núna í þessi 'gervivísindi'...

mánudagur, september 26, 2005

Danmarks værste reality-show

OK, OK, ég verð nú víst að draga aðeins í land með álit mitt á hinum 'stórgóða' þætti um íslenska piparsveininn eftir að Björgvin félagi benti mér á að Danir væru nú aldeilis ekki barnanna bestir þegar kemur að slíku afþreyingarefni í dönsku sjónvarpi. 'Snilldar'þættir eins og Danmarks værste bilist (beyond crap) og Danmarks værste handyman (hvað er það nú?!?!?) skrapa nú sennilega botninn í þessu (hef blessunarlega ekki horft á þá lengur en þarf til að sjá hversu slæmir þeir eru) en þar skammt undan er þáttur á borð við Vild med dans sem er uppáhald konunnar en það er bara því hún elskar að sjá fólk dansa. Sko, þátturinn gengur út á það að teknir eru einhverjir einstaklingar úr dönsku þjóðfélagi, leikarar, stjórnmálamenn, rónar eða einhverjir iðjuleysingjar og þeir paraðir saman með einhverjum atvinnudansara. Svo tekur dansarinn sig til og kennir þessum einstaklingi að dansa á einhverjum x-tíma (vika held ég) og svo dansa þau saman í beinni, öllum (og þá á ég einvörðungu við konur) til mikillar skemmtunar. Auðvitað fær maður að sjá þau æfa sig og svona líka til þess að það sé einhver spenningur í þessu. Það sem ég skil ekki er, hvað er svona skemmtilegt við þetta?!? Er málið bara það að sumt fólk (og þá á ég einvörðungu við konur) bara hreinlega elskar að sjá dans í sjónvarpi, alveg sama hversu slæmur hann er?!?

Annar svipað slæmur er þátturinn Danmarks klogeste barn. Er ekki eitthvað rangt við það að leita að gáfaðasta barni Danmerkur?!? Er ekki nóg að þessum einstaklingi sé strítt í skólanum fyrir að vera 'klár' svo það sé nú ekki farið að auglýsa það um allt landið. Það er í rauninni verið að gefa skotleyfi á vesalings barnið (já og auðvitað hina sem unnu ekki því þau væru varla í þættinum nema þau væru bókaormar líka). Þó að ég sé mikill Trivial (eins og í Pursuit) maður þá er það enginn mælikvarði á klókleika að vera fljótur (og góður) í að svara spurningum. Bókvitið verður svo sannarlega ekki í askana látið...

Síðastur og jafnvel sístur í þessari upptalningu er þátturinn Plastic Fantastic sem er þó ekki danskur heldur sænskur. Þar fær maður að fylgjast með lífi og starfi nokkurra lýtalækna á einkastofu þeirra í Malmö. Að sjálfsögðu er fylgst með misgáfulegum lýtaaðgerðum á fólki þar sem verið er að stækka (eða minnka) brjóst og varir og nef og allt hvaðeina. Fitusog og andlitsstrekking og jafnvel botox. Allt gott og blessað með það. Nema hvað að af einhverri ástæðu þá virðast framleiðendurnir halda það að maður hafi einhvern áhuga á daglegu lífi læknanna. Maður fær að sjá þegar yfirlæknirinn fer með syni sínum (sem vinnur nota bene ekki á stofunni og kemur þáttunum því ekkert við) á ráðstefnu í New York þar sem hann fer út að borða með kollegum sínum þar (ásamt syninum sem á jafnvel minna heima þar en í þættinum). Það hefði kannski verið möguleiki að gefa þessum auma þætti prik ef þeir hefðu nú asnast til að sýna einhverjar flottar gærur í honum en þær (rétt eins og stöllur þeirra í íslenska piparsveininum) hafa vit á því að láta ekki sjá sig dauðar nærri nokkru sem tengist þessum þætti.

Ég held meira að segja að ég hafi með þessari upptalningu náð að sannfæra mig um það að íslenski piparsveinninn er sennilega besta sjónvarpsefni sem framleitt hefur verið á Íslandi og jafnvel víðar (allavega í Danmörku)! ;)

Íslenskur piparsveinn...

Ah, ef ekki væri fyrir 'töfra' internetsins þá gæti ég ekki verið að njóta þess að horfa á Leitina á Skjá einum í stofunni heima í Köben. Gallinn er bara að þetta er svo vont sjónvarpsefni að það er jafnvel spurning um að fara að horfa á útvarp frekar en þennan óbjóð! Hvar eru allar flottu íslensku dömurnar?!?!? Eru þær allar fráteknar eða einfaldlega ekki nógu desperate til að taka þátt í þessu? En kannski er ég ósanngjarn, það er að sjálfsögðu hægt að sparstla þessar gærur til þannig að þær verði boðlegar, allavega fyrir einhvern á þriðja eða fjórða glasi ;)

Að sjálfsögðu ætla ég samt að horfa á fleiri þætti, því eins og allir aðrir unnendur veruleikaþátta (þátta sem þó eru mjög slæmir) þá verð ég alltaf að sjá hvað gerist næst! Ég tala nú ekki um ef það er nú hægt að fríkka upp á kellurnar og maður fer að sjá eitthvað hold (eins og gerist iðulega í skandínavísku útgáfunum af sama þætti)! Er bara hræddur um að íslenskar stelpur séu farnar að verða of miklar teprur til að verða að ósk minni :( Prove me wrong, girls, prove me wrong...

Og annað, hvað er Páll Ágúst frændi minn að gera í þessu?!?!?!?