föstudagur, apríl 28, 2006

Múffur?!?

Ekki tókst strætó að bail-a á mig tvo daga í röð því í dag kom hann bara samkvæmt áætlun og opnaði meira að segja hurðina fyrir mér. Var líka svo vinsamlegur að leyfa mér að sitja í alla leið niður í vinnu með einum skiptum þó. Að vísu gerði hann þetta ekki frítt því ég greiddi fyrir með einu klippi af 2 zone-a klippikortinu sem ég þurfti að kaupa á leiðinni út á stoppistöð. En þvílíkur lúxus sem þetta er, borga 11,5 DKK og er keyrður nánast upp að dyrum... :D

Við Jonni vorum plataðir af Ottó nashyrning (köllum yfirmanninn hjá Kraftvaerk þetta þar sem hann heitir Ottó og er danskur (var Ole Lund Kirkegaard ekki annars Dani?!?)) til að vera með stutta kynningu á því hvað við værum að gera dagsdaglega svo við værum ekki bara skrýtnu Íslendingarnir sem fengjum að sitja með hinu liðinu á skrifstofu. Fundum einhverja gamla kynningu fyrir Símann hf. og aðlöguðum hana fyrir þetta og tókum þessa kynningu svo með trompi, að sjálfsögðu.

Hentum okkur svo á stutta æfingu (sem varð svo næstum tveir tímar þegar til kom) þar sem vel var tekið á því á knattspyrnusviðinu að venju. Kom svo heim þar sem Þórunn var að henda í einn umgang af muffins með súkkulaðibitum, ekki að spyrja að myndarskapnum í þessari elsku! :D

Hvað er annars með þessa íslensku þýðingu á orðinu muffins í múffur? Er það þá eins og í lúffur eða í ætt við orðið skúffur?!? Allavega finnst mér þetta afskaplega léleg 'þýðing' svo ekki sé meira sagt... ;)

fimmtudagur, apríl 27, 2006

Glötuð tækifæri :(

Magnað hvað það getur farið í taugarnar á manni þegar maður nær ekki að vinna leiki í fótboltanum! Vorum semsagt að keppa í gær við Karoline FC (já, heita kvenmannsnafni, veit ekki af hverju) og þrátt fyrir mýmörg tækifæri þá endaði leikurinn með 2-2 jafntefli, afar óverðskuldað. En svona er þetta víst, ef maður nýtir ekki tækifærin þá vinnur maður ekki leiki... :(

Eftir leikinn fórum við nokkrir í liðinu á Shamrock (írskur pub rétt við Ráðhústorgið) til að horfa á Barcelona vs. AC Milan í seinni leik þeirra í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Engin mörk voru skoruð en þetta var samt hörku leikur sem lauk að endingu með 'sigri' Barcelona (unnu að vísu ekki leikinn en samanlagt úr tveimur leikjum) sem mæta því Arsenal í úrslitaleik 17. maí, Barcenal (eða Arselona innsk. Jonna) leikurinn, eins og ég kýs að kalla hann...

Metró tókst síðan að koma í veg fyrir að ég gæti tekið almenningssamgöngurnar í vinnuna. Ég ætlaði að vísu að taka strætó en þar sem metró var í ruglinu þá fylltust allir strætisvagnar og þegar vagninn kom að stoppistöðinni þar sem ég beið var hann svo troðinn að bílstjórinn opnaði ekki einu sinni hurðina heldur hleypti fólki bara út og keyrði svo áfram. Ég labbaði þá niður á metróstöð og sá að ekki nóg með að metró væri ekki í gangi (sem ég vissi ekki þá) þá var búið að loka stöðinni algjörlega, girðing og allt. Það eina sem mér datt í hug að gera var að labba aftur heim og grípa í fákinn og hjóla í vinnuna. 18 mínútum síðar var ég mættur við skrifborðið og var því sennilega mættur fyrr en ég hefði verið hefði ég tekið strætóinn til að byrja með, magnað... :D

miðvikudagur, apríl 26, 2006

Sitjandi á Vesterbrogade...

Tveir dagar, það var öll 'betrunin' mín í því að vera duglegri að henda inn færslum. En hvað um það, held bara ótrauður áfram og hef vit á því næst að lofa ekki upp í ermina á mér, betra að segja ekki neitt og geta þá verið 'latur' án þess að fá samviskubit eftirá... ;)

Ég hafði það af að hjóla í vinnuna í gær, merkilegt nokk! Og ekki nóg með það, komst að því að ég var ekki nema 17 mínútur að koma mér niðureftir og 18 mínútur til baka (mótvindur á heimleiðinni). Tímafrekast er að hjóla inn Vesterbrogade sjálfa þar sem það er svo mikið af ljósum á leiðinni, en 17 mínútur er töluvert minna en 35 mínúturnar sem tók mig að komast í vinnuna í dag með strætó...

Já, ég tók strætó í dag af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi var rigning og ég er afskaplega lítið hrifinn af því að hjóla í rigningu og í öðru lagi er ég að fara að keppa klukkan fimm og þarf því að fara beint héðan. Bara nennti ekki að dröslast með tvær töskur á hjólinu og að auki að hjóla alla leið upp í Ryparken og svo að hjóla heim eftir leikinn...

Annars vorum við hjónin (og þá meina ég auðvitað bara Þórunni) að fegra umhverfi okkar með því að kaupa blómaker og setja á svalirnar. Núna erum semsagt komin með fallegustu svalirnar á Bremensgade og gott ef aðrir hafi ekki bara farið á stjá í sömu efnum í kjölfarið. Nú vantar bara góða veðrið þannig að maður geti farið að borða morgunmatinn úti í blómahafinu! :D

mánudagur, apríl 24, 2006

SNAFU

Vaknaði ferlega þreyttur og tuskulegur í morgun. Sennilega var ástæðan sú að ég hélt að ég væri að vakna klukkan hálf níu en í raun var ég að vakna klukkan hálf átta! Vil því meina að ég hafi farið á mis við klukkutíma svefn, sérstaklega í ljósi þess að Þórunn 'rak' mig á fætur, hefði vel getað þegið þennan klukkutíma í viðbót í góðum fíling undir sænginni. Ke cera cera...

Við Jonni hentum okkur á Vesterbrogade í morgun við mikinn fögnuð allra hlutaðeigandi (þ.e. míns og Jonna). Held að þetta verði bara helvíti fínt, stutt að koma sér þangað (Jonni er ekki nema 12 mín að hjóla að heiman) og fín aðstaða í boði. Spurning hvort ég dragi fram nöðruna og reyni að hjóla í fyrramálið, tek stöðuna á því þegar þar að kemur en verkurinn sem ég er með í mjöðminni núna segir mér samt að það sé von á rigningu í nótt og á morgun... ;)

Við hjónin fórum svo í dans áðan eftir tveggja vikna páskafrí. Lærðum tvö ný og eldheit spor sem eru sennilega jafn flókin að útskýra og þau eru í framkvæmd (þannig að ég sleppi bara útskýringunni). Að sjálfsögðu vorum við eldsnögg að negla þessi spor og hefðum sennilega getað kennt hinum þetta í kjölfarið. Annars var hún Stine (salsa kennarinn) að bjóða okkur (þ.e. öllum mánudagshópnum) að vera með í gerð kennslumyndbands í salsa. Gæti verið nokkuð skemmtilegt ef af verður, fínt að geta gluggað í þetta í ellinni og sagt við sjálfan sig: "Vá, hvað ég var geðveikt góður í salsa í den..."

sunnudagur, apríl 23, 2006

Slappur...

Mér þykir fátt leiðinlegra en að lesa blogg hjá öðrum þar sem þeir eru sífellt að lofa bótum og betrun varðandi tíðni pósta og þess háttar. Samt ætla ég að gera nákvæmlega sama hlutinn hér og nú, ég hef verið ferlega slappur við þetta undanfarið og nú skal sko aldeilis taka til í kofanum og moka út innihaldslausri vitleysunni sem aldrei fyrr og hananú!

Það varð víst ekkert úr því að við Jonni færum á Vesterbrogade á föstudaginn því faðir barnfóstrunnar hans Guðjóns Inga tók víst upp á því að deyja á fimmtudag og Jonni þurfti því að vera heima með kútinn daginn eftir (og sennilega á morgun líka en það kemur í ljós). Ég var því bara heima að vinna (hefði nú samt getað farið en er aumingi) og fór svo í ræktina með Þórunni um kvöldið og á eftir hentum við kjúlla í wok pönnuna og göldruðum fram Chop Suey að austurlenskum sið. Að vísu gerðum við smá mistök og notuðum kartöflumjöl í staðinn fyrir sósuþykki en það var allt í góðu, sósan var bara helst til þunn...

Fór svo í gær um hádegið til Jonna (sem var einn heima með kútinn, Erla á Solbakken að læra) og horfði með honum á Arsenal vs. Tottenham. Fínn leikur (að vísu var mér skítsama, tvö lið sem ég ber enga virðingu fyrir) sem endaði að lokum 1-1. Þegar ég kom heim dró Þórunn mig beint út í göngutúr niður á strönd og svo var stefnan sett á grænmetissala til að kaupa baunaspírur, hrísgrjónanúðlur og salthnetur. Að sjálfsögðu var þetta ekki allt til (baunaspírurnar eitthvað að svíkja okkur) og við örkuðum því í næsta grænmetissala (heppilega er nóg af þeim). Þar voru hvorki til baunaspírur né hrísgrjónanúðlur þannig að ég bauðst til að skokka niður Holmbladsgade og finna þetta einhvers staðar þar. Skemmst er frá að segja að ég endaði með að hlaupa alla leið niður á Amagerbrogade (ca. 1 km hvor leið) þar sem ég loksins fann allt sem okkur vantaði. Að sjálfsögðu skokkaði ég svo til baka líka fyrst ég var byrjaður...

Í morgun var svo vaknað fyrir allar aldir því klukkan 10:45 var á dagskrá fyrsti leikur sumarsins í deildinni hjá okkur. Andstæðingarnir í dag voru hið dansk-skoska lið Cph. Celtic sem eru skemmtileg blanda af Englendingum og Dönum, fótboltinn sem þeir spila er því miður ekki eins skemmtilegur. Vallaraðstæður voru ekki að hjálpa okkar skemmtilega og léttleikandi liði og það fór svo að lokum að þeirra leiðinlegi 'kick-and-run' bolti bar meiri árangur en okkar 'try-and-fail' og þeir fóru með sigur af hólmi (verðskuldað) 2-0. Eigum við ekki bara að segja að fall sé fararheill...?