föstudagur, febrúar 10, 2006

Í endann skyldi upphafið skoða...

Fyrir mér er föstudagur alltaf vikulok. Þegar vinnuvikan er búin (þó ég vinni stundum um helgar) þá er vikan formlega búin í mínum augum. Þannig að í dag eru vikulok. Þrátt fyrir fyrirsögnina ætla ég ekki að fara yfir atburði vikunnar, nenni því barasta ekki og efa það að nokkur hafi minnsta áhuga á í þokkabót ;)

En hvað er svo framundan í dag og um helgina (sem er þá formlegt upphaf nýrrar viku)? Grímur Jónsson, vinstri bakvörður, ætlar víst að kíkja hérna til mín á eftir en hann er staddur á landi osta og Lego ásamt fríðu föruneyti (og þá á ég ekki endilega við að þeir séu ýkja fagrir). Hann er kominn hingað ásamt fótboltaliðinu sem hann spilar með til að taka þátt í Icelandair Open mótinu sem fer nú fram í annað sinn og hefst í kvöld þegar dregið verður í riðla sem spilast svo á morgun. Vona bara að ég fái tækifæri til að tækla hann upp í stúku, ef ekki ég þá allavega Jonni... ;)

Annað kvöld verður svo hið árlega þorrablót Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn. Von er á múgi og margmenni og taumlausu djammi og drykkju. Semsagt, þétt dagskrá framundan, spurning hvort maður þurfi ekki bara að taka næstu viku í að jafna sig... :D

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Slydda

Þremur dögum eftir snjókomuna miklu þá er nánast allur snjórinn farinn. Og í þokkabót er komin þessi fína slydda með góðum vindi í ofanálag. Heppilega er veðrið að tryggja að maður fær ekki heimþrá, minnir mann allavega núna rækilega á hvernig veðrið er á Íslandi alla daga (líka á sumrin)... ;)

Fékk fínan glaðning um hádegisbilið þegar póstkonan hringdi bjöllunni hjá mér og afhenti mér pakka. Við nánari athugun var þar á ferð afmælisgjöf frá stóra bróðir með góðri hjálp frá amazon.co.uk. Í pakkanum var bókin Use of Weapons eftir Iain M. Banks og allt Firefly safnið (sem ég mæli eindregið með að allir reyni að verða sér úti um og glápi á). Kann ég bróður mínum ákaflega miklar þakkir fyrir sendinguna :D

Talandi um bækur. Hafði það loksins af að klára Ljónið, nornina og klæðaskápinn þannig að núna get ég horft á myndina. Bókin var svosem ágæt, hélt mér samt engan veginn við efnið (sem skýrir kannski hversu langan tíma tók að lesa hana). Ætli ég renni ekki myndinni í gegn um helgina bara.

miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Ísland, best í heimi!

Dauði og djöfull! Nú er mér hreinlega öllum lokið! Sylvíu Nótt hefur tekist að selja mér þá hugmynd að senda eigi hana sem framlag Íslands í Eurovision þetta árið...

Vil taka það skýrt fram að mér finnst Sylvía Nótt ákaflega lítið fyndin og enn minna skemmtileg. Það má eiginlega segja að hún sé svo lítið fyndin og skemmtileg að ef ég hefði val þá tæki ég eldhússdagsumræður fram yfir hana sem sjónvarpsefni hvaða dag sem er. En samt sem áður þó tókst henni að (eins og Idol dómararnir segja iðulega) selja mér þetta lag sitt. Lagið er ekki gott, langt í frá, en það er samt töluvert skárra en hitt draslið sem var líka í boði þetta árið. Og hvað er það sem virkar í Eurovision þessa dagana? Smellnir textar? Grípandi laglína? Gott lag? Nei, ekkert af þessu. Einfaldlega að gera eitthvað öðruvísi. Með því að senda Sylvíu Nótt þá er það allavega uppleggið. Til hamingju Ísland? Já, svei mér þá, hví ekki? :D

Og Íslendingar eru svo sannarlega vanir því að vera landi og þjóð til sóma hvar sem þeir koma á byggð ból í heiminum. Þessi náungi var t.d. afskaplega þjóðlegur hér í Danaveldi á dögunum. Ætli hann hafi ekki verið að kynna nýju hrútspungana á Þorrabökkunum frá Múlakaffi, hef heyrt að þeir séu hnossgæti hið mesta. Snerti ekki á pungunum sjálfur, hvorki hrúts né af öðrum skepnum... ;)

þriðjudagur, febrúar 07, 2006

Slabbur og slappur

Eftir rúmlega 10 tíma stanslausa snjókomu í gær hlýnaði og snjókoman varð að þessari fínu rigningu. Og hvað gerist þegar það fer að rigna í kjölfarið á mikilli snjókomu? Jú, maður fær hið stórskemmtilega fyrirbæri 'slabb'! Hafi verið erfitt að hjóla í snjónum þá er það enn verra þegar hann er orðinn gegnblautur og orðinn að polli í föstu formi. Og það sem gerist líka er að það getur verið beinlínis hættulegt að vera á ferli, sérstaklega þar sem eru stórir bollar og mikil bílaumferð. Þetta fékk Þórunn einmitt að upplifa í gær þegar einhver 'tillitsamur' ökumaður ákvað að færa einn miðlungsstóran poll af götunni yfir á gangstéttina, nákvæmlega þar sem Þórunn stóð! Enginn er verri þótt vökni í gegn... :D

Er annars eitthvað hálf tjásulegur, vaknaði í gær með einhver ónot í hálsinum sem eru viðvarandi í dag. Er búinn að drekka ca. baðkarsfylli af tei og það virðist hjálpa að einhverju leyti. Ákvað allavega að láta þetta ekki aftra mér frá því að fara í salsa í gær sem var stórskemmtilegt. Ótrúlegt hvað það er mikill munur á milli námskeiða því núna er þetta bara drullu erfitt og eins gott að við hjónin erum dugleg að æfa okkur heima fyrir hvern tíma. Eftir svona 2-3 námskeið í viðbót held ég að við séum tilbúinn í að taka salsaheiminn með trompi. Allavega nokkuð ljóst hverjir verða Íslandsmeistarar í salsa árið 2008! :D

mánudagur, febrúar 06, 2006

Ný ísöld?!?

Ég vaknaði fyrir um átta klukkutímum síðan og það hefur snjóað látlaust allan tímann. Veit að vísu ekki hvenær snjókoman byrjaði en þetta er altént harla óvenjulegt hér í landi bjórs og svínakjöts. Þórunn var rúmlega klukkutíma að koma sér í skólann, vegalengd sem er ca. 8 kílómetrar á korti (í loftlínu þó) sökum umferðaröngþveitis og illa útbúinna bíla danskra. En kannski er þessi snjóbylur (ef svo má kalla) bara hið besta mál þegar öllu er á botninn hvolft...

Það hefur varla farið framhjá neinum að múslimar um víða veröld eru eitthvað svekktir og sárir yfir framferði Dana (þegar ég segi Dana þá meina ég auðvitað bara Jyllandsposten þó múslimar eigi við alla Dani). Skemmdarverk og hótanir hafa flogið og í gærkvöldi var tilkynnt að yfirvofandi væru hryðjuverk í Danmörku. En ég held að þeim hafi sennilega verið frestað um sinn, vegna veðurs! Ég held hreinlega að múslimarnir leggi ekki í að fara út í þessu veðri, allavega ekki í skjóllitlum kuflum sem blæs í þokkabót upp undir. Það mætti kannski segja að þeir hafi ekki 'hreðjar' í að taka til sinna ráða. Kuldinn getur haft 'stór'felldar afleiðingar en getur líka gert lítið enn minna og smærra... ;)

sunnudagur, febrúar 05, 2006

Fótbolti og afmæliskaffi

Alltaf tekst nú þessum blessuðu sunnudögum að vera dagar leti, skemmtilegheita og óhófs. Að vísu var ekki mikið um leti í fótboltanum í morgun en að vísu lét árangur erfiðisins á sér standa. Held að liðið sem ég var í hafi ekki unnið einn einasta leik og þó voru þeir spilaðir ófáir. Eigum við ekki bara að segja að meðspilararnir hafi verið svona slappir, allavega er á hreinu að ég er ekki svona lélegur sjálfur... ;)

Í gær tókum við hjónin okkur svo til og bökuðum bæði kökur og brauð og buðum múg og margmenni til afmæliskaffis í dag klukkan fjögur. Greinilegt að tekið var vel í boðið því einungis einn afboðaði sig og gæddu gestir sér á alls kyns kræsingum og gúmmelaði. Heiðrún kom meira að segja með eina köku í viðbót þannig að nóg var af veitingunum í þokkabót. Það fer sko enginn svangur úr boði í Bremensgade 17, það er nokkuð ljóst! :D