laugardagur, nóvember 04, 2006

Laugardagsfár

Treysti mér loksins núna til að henda inn færslu til að tala um leikinn 'góða' á miðvikudag. Borgaði morðfjár fyrir miðann til þess eins að sjá United spila sinn versta leik á tímabilinu og tapa fyrir slöppu liði FCK. Mér finnst ég beinlínis hafa verið rændur! En að öllu gamni slepptu þá var þetta nú bara hin besta skemmtun þrátt fyrir úrslitin, ég allavega skemmti mér konunglega og gat ekki annað en samglaðst með þeim fjölmörgu Dönum sem sátu í kringum mig sem gjörsamlega misstu sig þegar FCK skoraði og svo aftur þegar flautað var til leiksloka. Að sjálfsögðu hefði ég viljað sjá sigur minna manna en á heildina litið var þetta vel þess virði, þrátt fyrir allt... :D

En þó verð ég að koma inn á kuldann! Ég var orðinn gjörsamlega tilfinningalaus í tánum í leikslok og fékk ekki tilfinninguna aftur fyrr en eftir að ég var kominn heim. Danirnir höfðu vit á því að taka mér sér snafsa til að ylja sér, hefði sjálfur átt að brjóta odd af oflæti mínu og fá mér eins og einn kaffibolla eða svo, betra að pína ofan í sig viðbjóð en að missa tærnar vegna kals. Það hefur nefnilega verið sannkölluð ísaldarstemmning hérna síðustu daga og ullarnærfötin notuð óspart. Í dag er þó hitinn kominn aftur í sitt 'eðlilega' horf þannig að kannski er hægt að hvíla ullina um sinn...

Fórum í gær í tvöfalt afmæli hjá Bruno (29 ára) og Helgu Maríu (1 árs) þar sem okkur var boðið í glæsilegan þriggja rétta dinner með afmælisköku og det hele. Sátum og spjölluðum fram yfir miðnætti í góðum félagsskap afmælisbarnanna auk Ragnhildar og Guggu. Björgvin lét sig þó vanta í þetta skiptið, hann var víst að kynnast nýja jólabjórnum frá Tuborg sem var 'frumsýndur' í gærkvöldi klukkan 20:59 að staðartíma. Ef ég þekki Björgvin rétt þá eru þeir núna sennilega orðnir eins og bræður... ;)

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Það er komin vetrartíð...

Já, gott fólk, þið lásuð rétt, það er kominn vetur hér í borginni við sundin! Þessa stundina er hitinn við frostmark og fyrr í dag snjóaði (ekki grimmt þó en snjór engu að síður). Það var auðvitað dæmigert að veturinn í Kaupmannahöfn kæmi um leið og skipt var yfir í vetrartíma (sem gerðist einmitt aðfararnótt sunnudags). Þannig að nú er ekkert sem heitir, nú þarf að taka fram kuldagallann, lambhúshettuna og ullarvettlingana og festa á sig þrúgurnar áður en haldið er af stað út í 'óveðrið'...

Fyndið með þennan vetrartíma. Mér reiknast til að við hjónin höfum upplifað þessa breytingu fjórum sinnum (þ.e. skipti frá sumartíma yfir í vetrartíma) og þrisvar sinnum höfum við upplifað breytingu til baka. Þeir sem eru glöggir í tölum sjá að við erum því þessa stundina í plús og eigum því inni einn góðan klukkutíma af lífi okkar einhversstaðar. Verst að maður getur ekki innheimt hann t.d. eftir að hafa horft á lélega bíómynd eða jafnvel leikinn sem ég spilaði á laugardag. Hefði það nú ekki verið tilvalið?!? ;)

Og í kvöld er svo gleðin sem beðið hefur verið eftir með öndina í hálsinum. Ég, gott fólk, er á leiðinni á Parken til að berja augum (og kannski einhverja stuðningsmenn líka, maður getur ekki verið minni bulla en hinir) stórliðið Manchester United þar sem þeir spila við FC Köbenhavn. Ekki er nokkur vafi á að þetta verður hin besta skemmtun, vona bara að ég komi til með að sjá eitthvað á völlinn út úr lambhúshettunni. Ætli verðirnir stoppi mig ekki af við innganginn, ekki myndi ég sjálfur hleypa inn vitleysingi á þrúgum...

þriðjudagur, október 31, 2006

Allraheilagramessa

Í dag er víst Allraheilagramessa sem er sennilega betur þekkt hjá flestum sem Halloween. Þeir sem hafa áhuga og nennu til geta klætt sig í búning og farið að sníkja nammi, sjálfur er ég kominn í minn 'búning', letibuxur og stuttermabol. Er eiginlega viss um að ég myndi ná að hala inn slatta af nammi á þennan búning, allavega er hann frekar scary á að líta... ;)

Tengdamamma var hérna hjá okkur í síðustu viku og kvaddi okkur í gær. Var í svona afslöppunarferð, eins og það er kallað, og tíminn var vel nýttur til að gera lítið sem ekki neitt, horfa á Önnu í Grænuhlíð (ekki ég þó) og rápa í búðir (sem ég gerði ekki heldur). Fórum líka með henni og Sigríði í Glyptoteket og skoðuðum listaverk, ákaflega menningarlegt...

Á laugardag var svo leikur í handboltanum. Eins og áður hefur komið fram þá er ég, það sem menn myndu kalla, varamaður og er ekkert ósáttur við það hlutskipti mitt. Mitt hlutverk er að koma inná þegar byrjunarliðsmennirnir eru þreyttir eða meiðast og reyna að gera sem minnstan skaða inni á vellinum. Í þessum leik þá var ég búinn að taka mína venjulegu stöðu á bekknum og allt stefndi í rólegan leik (fyrir mig þ.e.) þegar Ómar hornamaður tók upp á því að meiðast strax á 10. mínútu. Þar sem ég telst vera hornamaður þá var ekkert annað í stöðunni en að ég leysti hann af sem ég gerði svo allan leikinn með örlítilli hvíld í seinni hálfleik. Ég hafði það af að skora tvö mörk og hafði til þess tvær tilraunir þannig að nýtingin í leiknum taldist vera 100% hjá mér. Auk þess átti ég einn varinn bolta. Því er óhætt að segja að ég hafi bara staðið mig framar björtustu vonum, það væri þó óskandi að liðinu í heild sinni hefði gengið eins vel. Við töpuðum semsagt með 19 marka mun, 36-17, í leik þar sem við áttum í rauninni aldrei nokkurn einasta möguleika. En ég stóð mig samt ágætlega, þrátt fyrir allt... :)

Í kvöld er svo fyrsta innifótboltaæfingin og á morgun er hinn margfrægi leikur FCK á móti United á Parken. Það er því óhætt að segja að vikan framundan sé spennandi! Trick or treat?!?