laugardagur, desember 15, 2007

9 dagar til jóla...

Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.


Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.


- Jóhannes úr Kötlum

Fórum í afmæli hjá Ástþóri Inga Runólfssyni í gær (fimm ára) sem væri ekki í frásögur færandi ef ekki væri fyrir það að ég fattaði á leiðinni upp á Solbakken að ég hafði gleymt að henda inn bloggfærslu í gær og þ.a.l. er tvöfaldur skammtur af gleði og jólasveinavísu í dag. Vona að fólk fyrirgefi mér gleymskuna að þessu sinni. Reyni að láta þetta ekki koma fyrir aftur...

Myndin hér til hliðar er mjög dæmigerð fyrir síðustu daga, ég í eldhúsinu að brasa eitthvað (á myndinni stend ég í ströngu við kæfugerð. Glöggir sjá að fyrir aftan mig á eldhúsborðinu standa rúgbrauðsbitar í röðum sem ég tók einmitt út úr ofninum í gærmorgun. Stend semsagt í ströngu þessa dagana við allskyns bakstur og skemmtilegheit á meðan ég hlusta á jólalög og borða piparkökur. Erum að tala um kósíheit par exelans!

Þessi mynd hinsvegar er mjög dæmigerð mynd af Þórunni sem situr sveitt við lærdóm alla daga milli þess sem hún gerir að sárum og saumar þau saman á Hillerød spítala. En er þetta ekki bara það sem koma skal og femínistar hafa barist fyrir? Karlmennina í eldhúsið og konurnar séu fyrirvinnan? Held allavega að ég myndi skora feitt hjá þeim ef þær sæju til mín... ;)

Baggalútsmenn standa sig svo sannarlega í stykkinu þessa dagana því í gær gáfu þeir út jólalagið 2007 sem heitir því skemmtilega nafni 'Jól á Kanarí'. Hvet fólk eindregið til að berja það eyrum. Arthúr var svo með skemmtilega strippu um 'mál málanna' síðustu daga (þ.e. Kirkjan vs. allir hinir). Og í framhaldi af því rakst ég svo á skemmilega grein þar sem bókinni/kvikmyndinni 'The Golden Compass' var stillt upp á móti Biblíunni. Talandi birnir eru auðvitað bara bull, en talandi snákar og asnar, það er auðvitað daglegt brauð... ;)

Og í lokin er rétt að benda á aðventustrippur Wulffmorgenthaler um albínóann Edmund sem gerir vaxlitateikningar af því sem á daga hans drífur. Sennilega eitt það allra súrasta sem ég hef séð. Japanir eru líka súrir og til marks um það bendi ég á þessa steik. Hvað dettur þeim eiginlega í hug næst?!? :D

fimmtudagur, desember 13, 2007

11 dagar til jóla...

Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.


- Jóhannes úr Kötlum

Þórunn henti sér í tvöfalda vakt á spítalanum í gær þannig að ég nýtti tækifærið og var frameftir í vinnunni í gær. Fór svo klukkan hálf níu og hitti Odd á Shamrock þar sem við horfðum á United vs. Roma. Ágætis leikur þrátt fyrir að lítið markvert hafi gerst, allavega gaman að sjá kjúklingana í United fara langleiðina með að vinna stórliðið Roma. Ákvað svo í morgun að vera bara heima með Þórunni. Við nýttum tækifærið og fórum saman í hádeginu og keyptum nokkrar jólagjafir auk þess sem ég keypti hráefni í kæfu og rúgbrauðsgerð. Í kvöld verður svo hent í rúgbrauð og á morgun í kæfu. Þannig að það er nokkuð ljóst hvað ég mun borða um helgina... ;)

Svo eiga víst bæði Björgvin og Ástþór Ingi afmæli í dag og óska ég þeim báðum innilega til hamingju með það. Hitti að vísu Björgvin áðan sem sagði mér að hann hefði fengið Wii í afmælisgjöf frá skvísunni. Og þar sem við erum að fara í afmæliskaffi þangað á eftir þá ef nokkuð ljóst að við munum grípa í einn leik eða svo (jafnvel fleiri)... :D

Rakst á sniðuga síðu í dag þar sem hægt er að þjálfa vélritunarhæfnina. Þið ykkar sem eruð ennþá í tveggja putta tækninni ættuð endilega að kíkja á þetta og æfa ykkur vel (70 orð á mínútu hérna, þarf lítið að æfa mig (og alls ekki hógvær heldur)). Svo rakst ég líka á ansi skemmtilega heimildamynd um Monty Python myndina 'Life of Brian' sem heitir 'The Secret Life of Brian'. Vissi nú ekki að þetta hafi valdið svona miklu fjaðrafoki á sínum tíma. En ætti kannski ekki að koma á óvart fyrst ekki má taka orðin 'kristilegt siðgæði' út úr námsskrá án þess að allt fari á háaloft hjá kirkjunni... ;)

miðvikudagur, desember 12, 2007

12 dagar til jóla...

Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
-þá varð þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
-það gekk nú ekki vel.


- Jóhannes úr Kötlum

Steingleymdi að setja skóinn út í gluggann í gærkvöldi, bölvað klúður! Er að vísu viss um að ég hefði hvort eð er borið lítið úr býtum, sennilega ekkert nema eigin táfýlu og kannski, ef til vill smá ryk. En þeir sem eiga góðar eiginkonur hafa eflaust fengið einhvern glaðning í morgun, mandarínu eða jafnvel súkkulaði. Það skal tekið fram að ef við miðum við þetta þá á Þórunn svo sannarlega ekki 'góðan' eiginmann... ;)

Þórunn er á fullu í próflestri + verknámi þessa dagana, eins og flestir ættu svosem að vita, ótrúlegur dugnaður í stúlkunni. Ég rakst svo í morgun á nýtt innlegg frá honum Arthúr, vini mínum. Er ljótt af mér að tengja þetta við Þórunni?!? :D

Las svo ansi merkilega frétt áðan. Jú, sjáið nú til, Jodie Foster var víst að koma út úr skápnum. Ég veit ekki með aðra en fyrir mér eru þetta sennilega mestu non-fréttir sem ég hef heyrt lengi. Ekki vegna þess að þetta sé ekki áhugavert slúður, nei, þvert á móti. Það sem stingur í stúf er hinsvegar það að ég hélt að þetta vissu barasta allir og það fyrir löngu síðan. Spurning hvort að það hafi gleymst að segja henni sjálfri frá þessu á sínum tíma... ;)

Og ef einhver er enn að vandræðast með að finna handa mér jólagjöf (eða eitthvað í skóinn í nótt) þá þigg ég alveg eina svona. Það eina sem vantar er leikherbergið með flatskjánum, lazy boy-num og leikjatölvunum. En ef fólk á annað borð hefur efni á að punga út fyrir þessu handa mér þá munar því nú sennilega lítið um það í viðbót... :D

þriðjudagur, desember 11, 2007

Sjaldan er klámvísa nógu oft kveðin

Lion with small penis must compensate with mighty roar

Rosalega er þessi dagur búinn að vera góður (það sem af er allavega). Mætti niður á Vestergade (fyrstur) í morgun og átti pantaðan tíma í klippingu klukkan níu. Fór fýluferð þangað því Robbi klippari er víst veikur í dag þannig að það var ekkert annað að gera en að fara aftur í vinnuna. Jonni kom rétt á eftir mér og við ákváðum í sameiningu að taka léttan hrekk á Runa sem hafði verið svo 'kærulaus' að skilja tölvuna sína eftir í vinnunni í gær. Ákváðum að stela góðri hugmynd sem við sáum á YouTube og hér er afraksturinn! Og hvaða lærdóm getur Runi svo dregið af þessu? Sennilega lítinn, en við Jonni skemmtum okkur allavega konunglega!! :D

Um ellefuleytið fékk ég svo tölvupóst frá Guðna nokkrum Má Henningssyni sem einhverjir ættu að þekkja frá Rás 2. Hann sendi mér semsagt tölvupóst til að tilkynna mér að ég hefði unnið aðalvinninginn í Led Zeppelin leik Rásar 2 og þar með safn af öllum diskum sveitarinnar. Erum að tala um tíu diska, getið ímyndað ykkur gleðina! Má mæta á skrifstofu Rásar 2 þann 21. til að sækja vinninginn. Led Zeppelin jól? Ég held það nú!

Enn og aftur voru svo feministar að tapa sér í ruglinu. Eftir að hafa lesið þessa frétt er nokkuð ljóst að málstað þeirra er ekki hægt að taka öðruvísi en sem góðu gríni, vona allavega þeirra vegna að þeim sé ekki alvara. Hvað er næst, ráðast á Seðlabankann fyrir að prenta seðla sem mögulega gætu verið notaðir til að kaupa klámefni?!? Eða kannski launagreiðendur, þurfa nú svo sannarlega að passa uppá að launin sem þeir greiða launþegum sínum séu nú ekki notuð í einhverja vitleysu, sérstaklega ekki til að kaupa eitthvað sem gæti mögulega verið tengt við klám... ;)

Annars lentu Microsoft í einhverjum vandræðum með rafræna jólasveininn sinn sem var víst eitthvað klámfenginn við blessuð börnin. Það gengur auðvitað ekki! En kannski ekki við öðru að búast frá fyrirtækinu sem bauð heiminum upp á snilld á borð við kúkaklessuna Zune, óþolandi talandi bréfaklemmuna að ógleymdum honum Bob sem enn er hægt að hlæja að (og þá að Microsoft í leiðinni auðvitað)...

Og enn og aftur ná Bandaríkjamenn að koma á óvart. Núna er semsagt ekki leyfilegt að blóta heima hjá sér lengur, sérstaklega ekki ef blótið beinist að klósettskálinni þinni. Bilað lið. Ætli þessi sem kærði fara ekki fram á skaðabætur, 2 milljónir fyrir 'andlegan skaða'...

Og í lokin er fínt að hlæja aðeins að þessu. Myndi sennilega líka æla ef ég þyrfti að borða kæstan hákarl, sérstaklega þar sem ég þoli ekki einu sinni fýluna af skötunni á þorláksmessu... ;)

mánudagur, desember 10, 2007

Tíundi í ...æ, hverjum er svosem ekki sama...

Ætli það sé ekki best að byrja á föstudeginum sem byrjaði nú bara eins og hver annar föstudagur, þ.e. vinna niðri á Vestergade. En klukkan fjögur var sett í julefrokost gírinn þar sem búið var að ákveða að lyfta sér upp þann dag með Dönunum á staðnum. Þeir voru búnir að panta fullt af mat og kaupa fullt af drykkjarvörum og við vorum niðurfrá í góðum gír í að ganga miðnætti. Einhver hafði líka reddað Wii þannig að við vorum þarna í wii-fandi stemmningu, spilandi fótbolta, tennis og box ásamt góðum mat og drykk, fín gleði!

Laugardagurinn rann upp með ágætis veðri og við hjónin nýttum tækifærið og sváfum út og fórum svo um hádegið niður í bæ og keyptum nokkrar jólagjafir handa gamla liðinu. Fórum svo heim og hentum okkur í betri fötin og héldum í Tívolí þar sem við áttum pantað borð á Gröften með Jonna og Erlu og Runa og Heiðrúnu. Sátum þar í góðu yfirlæti langt fram eftir kvöldi og svo gott var yfirlætið að við náðum ekki einu sinni að skoða skreytingarnar í Tívolí því okkur var smalað út áður en okkur tókst að bera dýrðina augum. En það kom svosem ekki að sök, þetta er hvort eð er alltaf eins á hverju ári... ;)

Í gær fórum við svo og hittum afa og Erlu og borðuðum með þeim hádegismat á hótelinu sem þau gistu á. Kallinn varð víst 85 ára á laugardag og langaði endilega að hitta okkur (eðlilega) og bauð okkur þess vegna í hádegismat ásamt tengdadóttur og barnabörnum Erlu. Þórunn henti sér svo í lærdóm þegar heim var komið en ég skundaði af stað upp í Ryparken þar sem við áttum leik við grybburnar í Gribben. Átti allt í lagi leik, skoraði eitt mark úr tveimur tækifærum. Lét þó taka mig nokkuð illilega í vörninni í tvígang (klaufalega) en það gleymist sennilega fljótt því við unnum leikinn 33-29 eftir harðan og spennandi leik sem hefði allt eins getað tapast...

Í dag eru svo víst 10 dagar þangað til við förum til Íslands þannig að núna er hægt að byrja að hlakka til...