laugardagur, janúar 28, 2006

Laugardagur til leti...

Dagurinn í gær var án nokkurs vafa besti dagur ársins hingað til! Hætti að vinna upp úr hádegi, fór og lét klippa mig (veitti víst ekki af) og fór svo og spókaði mig um bæinn með Þórunni. Að vísu var dagurinn ekki svo ýkja góður fyrir veskið en við látum það liggja á milli hluta. Ég fékk meira að segja snemmbúna afmælisgjöf því Þórunn keypti handa mér skyrtu, bindi og jakka (sem ég fékk að vísu að máta fyrst), ekkert að því, er eiginlega öðrum til eftirbreytni (hint, hint) og framvegis vil ég fá afmælisgjafir bara fljótlega eftir jól...

Fórum svo og fengum okkur Cobb salat á Hard Rock (er nú ekki mikill salat maður en er hinsvegar alveg vitlaus í beikon þannig að þetta slide-ar alveg). Ef að hafa sporðrennt salatinu fórum við svo á O'Learys og horfðum á Ísland vs. Danmörk í handbolta. Með smá heppni hefði Ísland getað stolið sigrinum en eftir á að líta voru þetta sennilega bestu úrslitin fyrir Íslendinga því þeir geta núna farið áhyggjulausir í leikinn við Ungverja á meðan bæði Danir og Serbar þurfa að vinna innbyrðis leik þeirra. Ekki amalegt það...

Í dag er svo von á gestum í kvöldmat þannig að við ætlum að þrífa íbúðina hátt og lágt og henda okkur svo í eldamennsku. Nautasteik og meðlæti, er hægt að biðja um það betra? :D

föstudagur, janúar 27, 2006

Föstudagur til frelsis...

Jæja, nú skuldar IKEA mér þrjá tíma af mínu lífi og það án þess að ég hafi farið þar inn! Að vísu er það eiginilega Sigríður mágkona sem skuldar mér þess þrjá tíma (að vísu gaf hún mér að éta í staðinn). Við hjónin fórum semsagt í gær (Þórunn fór að vísu með henni í IKEA) og hjálpuðum henni að setja saman forláta rúm sem hún keypti sér fyrr um daginn. Það var semsagt ekki einfalt verk og það var eiginlega eins gott að við vorum þrjú saman í þessu. En þetta hafðist að lokum og Sigríður getur núna sofið vært í nýju kojunni sinni. Hátt hreykir Sigríður sér...

Sigríður hafði svo verið forsjál og eldað lasagna til að fóðra 'samsetjarana'. Að vísu var þetta grænmetislasagna sem var nú barasta ágætt, en ég segi bara eins og Joey vinur minn, meat = GOOOOOOD!

Ísland vann svo fyrsta leik sinn í riðlakeppninni á EM í gær, gaman af því. Það er svo óskandi að þeir berji hressilega á Dönunum í kvöld, 14-2!

Tómt rugl: hér

fimmtudagur, janúar 26, 2006

Fimmtudagur til fótar (og handar)...

Í gærkvöldi var fyrsta kvöldið á árinu sem ég hætti að vinna snemma (klukkan sjö) og settist fyrir framan sjónvarpið og glápti á það það sem eftir lifði kvöldsins! Og það sem meira var, ég var að glápa á fótbolta! Gleði, gleði, gleði alla tíð! Sá United vinna granna sína í Blackburn 2-1 og komast þar með í úrslitaleik deildarbikarsins. Ekki amalegt kvöld þar á ferð!

Í dag byrjar svo EM í handbolta. Við (Íslendingar sem búa í Danmörku) hugsuðum okkur gott til glóðarinnar þar sem Ísland og Danmörk eru saman í riðli að við gætum séð alla leiki Íslands í riðlinum. En það er nú aldeilis ekki! Við getum séð einn leik og það er einmitt leikurinn við Dani á morgun. En það er þó ekki svo að Danirnir sýni bara dönsku leikina, nei, nei, því þeir sýna líka alla þýsku leikina líka!?!?! Hvað er í gangi??? Vita þeir ekki að það búa ca. 10.000 Íslendingar í Danmörku (gætu þó mögulega verið fleiri Þjóðverjar) sem þrá ekkert heitara en að geta horft á þessa leiki?!?!? Þjóðverjarnir geta þó allavega náð þýsku stöðvunum hér í Danmörku. Vér mótmælum allir!

Og að allt öðru: Endalaust rugl!

miðvikudagur, janúar 25, 2006

Miðvikudagur til matar...

Maður lifandi hvað það snjóar mikið núna! Það hreinlega kyngir niður snjónum hérna fyrir utan gluggann hjá mér! Við Jonni vorum að grínast með að maður ætti bara að henda sér á skíði. Taka eina salíbunu niður Himmelbjerget, hauuuuuuuu! :D

Fyndið með Dani og snjó samt, það virðist alltaf koma þeim jafn mikið á óvart að það sé til fyrirbæri sem heitir snjór sem getur komið á veturna og sett allt úr skorðum. Þeir eru alltaf jafn lítið viðbúnir! Það er pottþétt að í dag fer hreinlega allt úr skorðum, lestarnar, strætó, dýragarðurinn, bankar og elliheimili. Ef það er eitthvað eitt sem maður á að gera á snjódegi í Kaupmannahöfn, þá er það einfaldlega að gera nákvæmlega ekki neitt ;)

Úti: Snjókoma dauðans
Inni: Hlýtt og notalegt
Framundan: Meiri vinna
Status: Quo
Jethro: Tull

þriðjudagur, janúar 24, 2006

Þriðjudagur til þorra

Þorrinn er víst byrjaður og það þýðir bara eitt, afmælið mitt er á næstu grösum! Heppilega er ég ekki enn orðinn 'the big three O' en með hverju árinu sem líður styttist óneitanlega í þetta. Ekki það að ég sé eitthvað hræddur við að verða gamall eða eitthvað, finnst meira að segja bara töff að vera kominn með nokkur grá í vangann (Þórunn er líka alveg að fíla það)... ;)

Talandi um þorrann, við hjónin ætlum að skella okkur á þorrablót Íslendingafélagsins hérna úti í Köben og bjóða Sigríði mágkonu með líka (þurfum að koma henni út einhvern veginn, úrvalið verður sennilega fínt á staðnum). Það er búist við rífandi stemmningu, slagsmálum og svo málaferlum í kjölfarið. Undanfarin ár hefur vart verið haldið þorrablót öðruvísi en að það komist á einhvern hátt í fréttirnar hjá Dönunum. Góð landkynning þar á ferð... :D

Í eyrunum: Curtain Call m. Eminem, kemur mér alltaf í gott skap.
Í augunum: Beauty & The Geek, ofurnördar og fyrirsætur, er hægt að biðja um það betra!
Á náttborðinu: Ljónið, nornin og klæðaskápurinn, ennþá... (slow reader)

mánudagur, janúar 23, 2006

Mánudagur til (m)aura

Helgin að baki og því miður var hún ekki alveg eins róleg og ég hafði vonast til. Vinna, vinna og aftur vinna. Var að telja þetta saman og er farinn að vinna eins og meðal unglæknir í hverri viku. Munurinn er hinsvegar sá að þeir eru með 80 tíma viðveru í hverri viku, með svefni inniföldum (ætti kannski að skipta um starfssvið).

En við hjónin fórum þó í matarboð bæði kvöldin þannig að þetta var ekki alveg glatað. Og spiluðum líka fullt, bæði Trivial Pursuit (tapaði, aldrei þessu vant (var með Þórunni í liði, dró mig greinilega eitthvað niður)) og Catan (Settlers). Er að verða nokkuð nettur í Catan, náði allavega að vinna einu sinni (sem segir kannski ekkert um færni mína).

Gleymdi í gær að segja frá stórskemmtilegu atviki sem átti sér stað á föstudagskvöldið. Sá svo mér til mikillar gleði að Jonni (sem var 'arkítektinn' á bak við snilldina) er barasta búinn að lýsa þessu sjálfur. Getið notið þeirra frásagnar á síðunni hans.

Þórunn fór svo aftur í skólann í dag, henni til mikillar 'gleði'. Var greinilega ekki að nenna því. Heppilega byrjar kennsla ekki fyrr en í næstu viku en hún þarf að skrifa einhverja ritgerð sem hún er að safna heimildum í núna.

Og United unnu svo Liverpool í gær, gleði, gleði, gleði! Það væri þó aldrei að gamli risinn væri að ranka úr rotinu og færi að gera eitthvað af viti á knattspyrnuvellinum...

sunnudagur, janúar 22, 2006

Áfram Man Utd!

Góðan daginn hvað maður er búinn að troða í sig um helgina! Hjálpar ekki til að okkur hjónunum var boðið í mat í gærkvöldi og á föstudagskvöld. Fórum í rjúkandi lasagna hjá Jonna og Erlu fyrra kvöldið og svo í beef Wellington hjá Hönnu Gunnu og Ómari í gær. Maður lifandi hvað ég er ennþá saddur! Ætli maður hendi sér ekki bara í fisk og kartöflur í kvöld, eitthvað einfalt og fitulítið bara...

Keyrði bíl í Kaupmannahöfn í fyrsta skipti um helgina (þ.e. lengra en 100 metra). Runi og Heiðrún (sem voru með okkur hjá Jonna og Erlu) lánuðu okkur bílinn svo við kæmumst heim (engir leigubílar og allt á kafi í snjó). Lentum í smá ógöngum við að finna réttu leiðina en það hafðist auðvitað fyrir rest, maður er nú farinn að rata slatta eftir næstum þrjú ár í fyrrum höfuðstað Íslendinga, skárra væri það nú... ;)

Á eftir er svo stórleikur í enska boltanum, United vs. Liverpool. Ætlaði að henda mér með 'the boys' að horfa á leikinn en þarf víst að vinna meira. Vona að United hafi þetta án mín... :'(

Sona si Latine loqueris!