Þriðjudagur til þorra
Þorrinn er víst byrjaður og það þýðir bara eitt, afmælið mitt er á næstu grösum! Heppilega er ég ekki enn orðinn 'the big three O' en með hverju árinu sem líður styttist óneitanlega í þetta. Ekki það að ég sé eitthvað hræddur við að verða gamall eða eitthvað, finnst meira að segja bara töff að vera kominn með nokkur grá í vangann (Þórunn er líka alveg að fíla það)... ;)
Talandi um þorrann, við hjónin ætlum að skella okkur á þorrablót Íslendingafélagsins hérna úti í Köben og bjóða Sigríði mágkonu með líka (þurfum að koma henni út einhvern veginn, úrvalið verður sennilega fínt á staðnum). Það er búist við rífandi stemmningu, slagsmálum og svo málaferlum í kjölfarið. Undanfarin ár hefur vart verið haldið þorrablót öðruvísi en að það komist á einhvern hátt í fréttirnar hjá Dönunum. Góð landkynning þar á ferð... :D
Í eyrunum: Curtain Call m. Eminem, kemur mér alltaf í gott skap.
Í augunum: Beauty & The Geek, ofurnördar og fyrirsætur, er hægt að biðja um það betra!
Á náttborðinu: Ljónið, nornin og klæðaskápurinn, ennþá... (slow reader)

4 Comments:
Það er nú eins gott að þessi karlmannskostur fyrir systur mína sé íslenskur! og hana nú...
Held að það sé enginn hætta á öðru, held að Danir myndu ekki láta sjá sig dauða á íslensku þorrablóti... ;)
tja ég er nú hálfur dani og ég ætla að vera þarna dauður eða lifandi!
Ég er hommi.
Skrifa ummæli
<< Home