...og enn tórir hann!
Er semsagt ekki enn farinn að sofa síðan ég henti inn færslunni í gær (rétt slapp fyrir miðnættið). Erum að reyna að klára verkefni í vinnunni og þá verður stundum að taka sig til og taka nótt dauðans til að það hafist...
Nóttin í nótt var sérdeilis skemmtileg því það klikkaði bókstaflega allt sem klikkað gat (líka ég, er orðinn frekar klikkaður á þessu öllu saman). Server-inn fór ekki í gang, þegar hann fór loksins í gang þá virkaði ekki eitthvað á honum og bla bla bla bla bla. Hefði svosem getað sagt mér þetta sjálfur strax í upphafi, þú gerir engin kraftaverk föstudaginn þrettánda...
Þetta ástand dygði nú sennilega til að æra óstöðugan en heppilega er ég með þeim stöðugri í bransanum og segi bara: "Áfram með smjérið, upp með fjérið, það er alveg kjérið!" (ætla samt að fara að sofa bráðlega)...
Hvenær ætli gamla góða flámælið komist aftur í tísku?

1 Comments:
kannski áramótaheitið hefði í staðinn átt að vera: "ekki að gera allt á síðustu stundu..."
pæling.
Skrifa ummæli
<< Home