351 dagur til jóla...
Jæja, þá eru jólin víst formlega að baki og grákaldur veruleikinn tekur við (ákvað að vera pínu skáldlegur, ekkert grákalt við minn veruleika samt). En það er hægt að hugga sig við það að nú eru ekki nema 103 dagar í sumar (samkvæmt íslensku dagatali)... ;)
Þórunn tók niður jólaskrautið og ég tók niður seríuna af svölunum. Við hentum okkur líka í post-jólahreingerningu þar sem Þórunn þurrkaði af og ég ryksugaði. Verkaskiptingin er sko aldeilis til fyrirmyndar á okkar heimili! Hentar mér ágætlega, jólaseríur og ryksugun er sennilega það karlmannlegasta af þessum heimilisstörfum, veitir ekki af að reyna að ýta undir minn eigin karlmannleika... :D
Lærði í gær að búa til 'rúllettur' sem er frábær leið til að nýta fiskur-og-kartöflur afganga. Öllu draslinu hent í matvinnsluvél, bæta við hveiti, lyftidufti, eggjum og mjólk, steikja svo á pönnu í litlum klöttum (eiga samt ekki að vera mjög flatir, mínir voru víst heldur flatneskjulegir) og bera fram með kartöflum og grænmeti! Klassamáltíð á no-time og afbragðsgott að auki! Alltaf er maður nú að læra eitthvað nýtt...

5 Comments:
aahahhh ... Ala mamma ?
Hvað annað? ;)
damn ég væri til í soleiðis núna! Laddi, whip me up a batch!
Riggar þessu bara til sjálfur ;)
Er búinn að gefa þér innihaldslýsingu, ættir að geta fundið út úr þessu. Annars er ég að kjammsa á afgöngum núna, gæti geymt eins og einn klatta fyrir þig :D
Tengdó verður nú ánægð með þetta, maður lifandi!
Skrifa ummæli
<< Home