Ég man sko eftir United!
Ætla sko aldeilis ekki að fara að afsaka mig varðandi fátíðar uppfærslur, kemur bara ekki til greina! Gæti alveg ef ég vildi farið að tína til alls konar ástæður og jafnvel lélegar afsakanir, bara hreinlega nenni því ekki. Ætla heldur ekki að lofa betrun og bótum því að maður á víst ekki að lofa einhverju sem maður getur svo ekki staðið við (tjah, eða nennir ekki)...
Það hefur blessunarlega lítið gerst síðustu tvær vikurnar, tjah, nema kannski að United hefur náð nýjum hæðum (lægðum) í meðalmennskunni. Hversu lélegt getur þetta orðið? Ætti kannski ekki að kvarta mjög mikið, lítið t.d. á Everton, enduðu í fjórða sæti deildarinnar síðasta vor og hvar eru þeir núna? Jú, gott ef þeir eru ekki í fallbaráttunni og vel það! United eru meira að segja fyrir ofan Arsenal sem verður að teljast sæmilegt því Arsenal hefur einmitt endað ofar síðastliðin tvö ár. Tjah, að vísu eru Arsenal jafnvel enn meira meðallið en United þessa dagana þannig að það er kannski rugl að fara að bera þetta tvennt saman...
United er sem stendur í sjöunda sæti í deildinni eftir 10 leiki og á þar með leik til góða á liðin í 3-5 sæti og getur með sigri í þeim leik komist upp fyrir þau öll. Þar fyrir ofan er svo spútnikliðið (hingað til allavega) Wigan. Í Chelsea eru svo 13 stig + leikur til góða. Eins og ég segi, maður ætti kannski ekki að kvarta of mikið, eða hvað...
Maður hlýtur að vera orðinn sáttur við það að United er ekki svona lið sem fer taplaust í gegnum tímabilið (enda hafa þeir aldrei gert það og munu ekki gera héðan af). Þetta kemur svona í skorpum yfirleitt, eru að spila bara svona la la framan af en koma svo sterkir á einhverjum tímapunkti og tapa ekki stigi marga leiki í röð (tjah, nema í fyrra). Og það getur að sjálfsögðu enn gerst á þessu tímabili, 5 sigrar, 3 jafntefli og 2 töp, ekki svo afleitt, eða hvað...
Það sem hinsvegar vantar er það sem hefur alltaf einkennt liðið, baráttan, áræðnin, leikgleðin. Maður sér ekki lengur 6-0 úrslit eins og voru tíð hér áður fyrr þegar liðið sótti bara og sótti þó þeir væru komnir yfir í leikjum. Núna komast þeir yfir og reyna að hanga á því. Leiðinlegur og varfærinn bolti er greinilega nýi stíllinn og mér líkar hann engan veginn...
En hvað er til ráða? Margir hafa talað um að það þurfi að taka upp budduna, aðrir hafa nefnt nýjan stjóra. Þegar ég horfði á leikinn á laugardaginn og staðan var orðin 3-0 fyrir Middlesbrough þá datt mér í hug hvort ekki hefði verið betra að nota bara liðið sem spilaði á móti Barnet um daginn. Ungir og frískir strákar sem vildu greinilega sanna sig og gerðu það svo um munaði þó svo andstæðingurinn hafi kannski verið fremur auðveld bráð. Er ekki bara málið að fara að hleypa þessum efnilegu og hungruðu strákum í aðalliðið og fara að láta gamla skarfa eins og Giggs og Scholes virkilega hafa fyrir því að vinna sér inn sæti í hópnum? Samkeppni hlýtur að vera af hinu góða fyrir alla.
Ég segi, ekki reka stjórann eða kaupa meira (jú, kannski einhvern fyrir Keane) og einbeita sér frekar að því að láta þá sem hafa viljann, skapið og löngunina um að spila þessa leiki. Gömlu mennirnir stóðu sig vel hér á árum áður en þeirra tími er sennilega bara liðinn...

4 Comments:
Bah. Held að málið sé að fá Cantona aftur. Og svo að bjarga aumingja Beckham frá Spáni. Hafa það sem markmið að hafa meðalaldur liðsins sem næstan aldri þjálfarans, því þá eru leikmennirnir örugglega að tala sama tungumál og hann.
Þessir menn eru bara að spá í launatékkanum sem er alltof feitur og svo næstu kókaín línu ...
"His name is Rio and he's sitting in the stands .." (nýr texti við lagið Rio e. Duran Duran)
Er "tjahhh" inn í dag ?
Vá hvað ég skil að þú nennir ekki að blogga ef færslurnar þínar eru alltaf svona langar.
Skrifa ummæli
<< Home