Klukk-ed in the head!
Dauði og djöfull! Eitthvað klukk æði hefur víst gripið landann og ég fæ að sjálfsögðu að finna fyrir því. Jonni félagi hefur víst 'klukkað' mig og það þýðir þá að ég þarf að smella inn einni færslu þar sem ég tel upp fimm hluti um sjálfan mig. Algjör anus því að sjálfsögðu dettur mér ekkert í hug þegar ég þarf á því að halda. En að góðra skáta sið þá tekur maður auðvitað þátt í leiknum og gerir sitt besta.
- Ég er einn af þeim sem er alltaf að tengja allt við tölur og reyna að búa til mynstur út úr öllu. T.d. tel ég alltaf stafina í undirtextanum (subtitles þ.e.) í sjónvarpinu og reyni að raða þeim saman í jafn stóra hópa eða búa til einhver önnur mynstur (freaky, I know)...
- Þegar ég er að keyra þá þarf hljóðstyrkurinn (volume þ.e.) á útvarpinu alltaf að vera stilltur á prímtölu (2, 3, 5, 7 o.s.frv.) eða á tölu sem er heilt margfeldi af 3 (3, 6, 9, 12 o.s.frv.)...
- Ég les alltaf á klósettinu þegar ég er að gera eitthvað meira en númer eitt, alltaf! Stundum tek ég meira að segja tölvuna með til að horfa á eitthvað á meðan...
- Ég hef séð Ford Fairlane allavega svona skrilljón sinnum (verður betri við hvert nýtt áhorf)...
- Mér hefur tekist, á einhvern óskiljanlegan hátt, að slá golfkúlu í eigin auga...
Það er víst hluti af þessum 'klukk' leik að 'klukka' áfram og því ætla ég að nýta tækifærið og 'klukka' mágkonur mínar, þær Sólveigu (sá að vísu að hún er búin, fær bara að gera þetta aftur) og Sigríði (hún fær þá tækifæri til að byrja að blogga, segir sjálf að henni leiðist og vanti eitthvað að gera), og að sjálfsögðu sleppur B-Man ekki við þetta heldur!

3 Comments:
Þú ert nú undraverður, veistu það? Að slá golfkúlu í eigið auga! Maður þarf nú að vera eitthvað sérstakur til þess að gera það ... nei segi svona ;) En já takk fyrir klukkið, ætli maður verði bara ekki að gera þetta aftur !
Já.. þá er ég búin að gera þetta kluk dæmi í annað skiptið! hefni mín nú einhvern veginn á þér seinna! segi nú bara... ´I don´t like it´. En ég býst sko pottþétt við jólagjöf núna.
grrrr ,,, tókst loksins að koma þessum 5 staðreyndum um sjálfan mig á bloggið ... þú verður tekinn í gegn fyrir þetta!
Skrifa ummæli
<< Home