to be continued...
Hvað er það sem fær fólk (og þá á ég við leikara, leikstjóra, framleiðendur og jafnvel kvikmyndaver) til þess að gera framhaldsmyndir af annars ágætum myndum?!? Ekki svo að skilja að allar framhaldsmyndir séu slæmar, svo sannarlega ekki! Það eru til framhaldsmyndir sem eru jafngóðar ef ekki hreinlega bara betri en forverinn. Má þar nefna Empire Strikes Back (besta myndin í seríunni), Aliens, Lord of the Rings: The Two Towers (er að vísu bara einn þriðji af einni langri mynd en fær að fljóta með) eða Evil Dead II (sem var að vísu bara endurgerð á þeirri fyrstu en er samt algjör snilld). Svo var nú Rocky II (og jafnvel III og IV) ekki svo slæm heldur (allavega þegar ég var minni og gerði ekki allt of miklar kröfur)...
En því miður þá er líka til afskaplega mikið af vondum framhaldsmyndum. Af hverju var t.d. verið að gera Weekend at Bernie's II?!? Eða jafnvel Grease 2?!? Hvað voru menn eiginlega að hugsa þar (eða var það kannski tilfellið, að það var engin hugsun á bak við það)??? Í sumum tilvikum er jafnvel gengið enn lengra en bara að gera eina framhaldsmynd eins og dæmin sýna með Police Academy sem var (síðast þegar ég vissi allavega) með hvorki fleiri né færri en sjö framhaldsmyndir, hver annarri verri!!!
Það sem er verst í þessu öllu saman er að vond framhaldsmynd er ekki bara vond fyrir hana sjálfa. Ó, nei! Hún nefnilega hefur neikvæð áhrif á forverann líka. Besta dæmið (eða kannski bara það sem kom fyrst upp í hugann) er t.d. Matrix. Fyrsta myndin var rosaleg! Frumleg (þó hugmyndin hafi verið stolin) og spennandi og flottar brellur ofan á flottan söguþráð. Svo kom framhald (Matrix Reloaded) sem var svona á mörkunum en slide-aði þó því að manni var lofað svakalegum endi á öllu klabbinu. En hvað gerðist? Út kom Matrix Revolutions og eiginlega eyðilagði allt sem á undan hafði komið. Allir mögulegir 'söguþráðarsnúningar' (plot-twist þ.e.) sem maður hafði séð fyrir sér voru jarðaðir og þessi flotta hugmynd varð að lélegri hasarmynd. Það eina sem hefði getað gert þetta verra væri ef þeir hefðu fengið Arnold eða Sly í þetta í lokin svona til að toppa þetta algjörlega. Fyrir vikið þá legg ég það ekki á mig lengur að horfa á fyrstu myndina, einfaldlega vegna þess að framhaldsmyndirnar hafa algjörlega eyðilagt alla stemmningu sem nokkurn tímann varð til eftir að hún kom fyrst út...
Svo er líka til annað. Það er þegar teknar eru vondar myndir og gert af þeim framhald. Var fólk ekki búið að þjást nóg yfir fyrri myndinni? Af hverju er t.d. verið að gera framhald af Road House og Hollow Man?!? Er eitthvað hægt að bæta við þessar afskaplega slöppu myndir sem réttlætir að gert sé framhald af þeim (sem verða jafnvel enn verri)??? Í þessum tilvikum geta kvikmyndaverin ekki einu sinni skýlt sér á bak við það hversu mikið forverarnir tóku inn í miðasölu...
Hér eftir ætla ég að forðast framhaldsmyndir eins og heitan eldinn, nema auðvitað þær sem uppfylla ákveðin skilyrði:
- Séu gerðar eftir bók sem er framhald af annarri bók sem gerð var góð mynd eftir og framhaldsbókin er jafn góð eða betri en forverinn (fat chance...)
- Kevin Smith kemur á einhvern hátt nálægt gerð þeirra
- Jar-Jar Binks sé ekki með
- Enginn í leikarahópnum sé Svíi
- Að forverinn sé það góð mynd og það full af góðum hugmyndum að möguleiki sé á að framhaldið verði gott án þess þó að endurgera bara forverann (ekki líklegt...)
- Eftirfarandi leikarar séu ekki í henni:
- Sandra Bullock
Ég ætla því að bíða spenntur eftir The Passion of the Clerks sem verður án efa mikið meistarastykki. Ef ekki, nú þá get ég alveg eins hent áritaða Clerks DVD-inum mínum...

1 Comments:
eitt í þessu er líka þegar verið er að endurhugsa/ útfæra eldri myndir, eitt mjög gott dæmi um þetta er nýja batman myndin, sem nær að slíta sig algjörlega frá fyrri batman-myndum og virkar eins og upphaf á nýju "franchise" (þó hún sé í raun Batman nr. 5 ). það verður athyglisvert að sjá hvort Bryan Singer takist að gera það sama við Superman á næsta ári... svo auðvitað geta svona endurímyndanir klikkað, t.d. Planet of the Apes sem Tim Burton sendi frá sér um árið...
Skrifa ummæli
<< Home