Gjörspilltur!
Jæja, nú er það búið! Ég flýg hreinlega ekki aftur nema það sé í Saga Class sætum (eða sambærilegu)!!!
Það er nokkuð ljóst að það borgar sig að mæta snemma, tjah, og líka að fljúga þegar það eru margir sem vilja fljúga því að vélin í dag var stappfull og þ.a.l. þurfti að nýta allt Saga Class plássið fyrir 'almúgann'. Við, sem mættum mjög snemma í innritun, fengum semsagt sæti í fjórðu sætaröð þar sem eru bara fjögur sæti en ekki sex í hverri röð og að auki sérdeilis gott leggjarými. Semsagt ein allra besta flugferð sem ég hef farið í og við hjónin höfum ákveðið í kjölfarið að fækka Íslandsferðum um helming (til að sporna gegn auknum kostnaði) og fara héreftir aðeins í lúxusinn sem Saga Class býður upp á ;)

3 Comments:
Heyrðu! ég er nú ekki ánægð með þetta... saga class, eða að koma til Íslands og hita mig ? MÉR FINNST ÞETTA SEINNA NÚ MERKILEGRA! huhhh
Jöss, fækka ferðum um helming segirðu. Þannig að þið komið þá bara 10-12 sinnum til Íslands á ári hér eftir :)
já það hefðu nú einhverjir lúffað fyrir vini sínum sem sat 3 röðum aftar með konu, 18 mánaða gamalt barn og tvö þröng sæti ...
Skrifa ummæli
<< Home