Beefin' it up!
Skellti mér á handboltaæfingu í gær með IF Guðrúnu, mannskapnum þar til mikillar gleði. Kom í ljós að ég hafði engu gleymt, sem er kannski ekki skrýtið því við spiluðum fótbolta allan tímann! Eitt sem mér finnst alltaf jafn gaman við að mæta í handboltann. Þar er ég alltaf með þeim yngstu á svæðinu þannig að þegar það var skipt í ungir vs. gamlir þá var ég automatically ungur, þurfti ekki einu sinni að kanna það :D Verst að þannig er það alls ekki í fótboltanum... :(
Framvegis (þ.e. fram á sumar) verður semsagt handbolti á fimmtudögum og fótbolti á sunnudögum. Mánudaga og föstudaga eru handalyftur, miðvikudaga fótalyftur og afgangsdagana (þriðjudaga og laugardaga) verður svo reynt að hlaupa/hjóla. Markmiðið er semsagt að losna við x mörg kíló á þessum 5-6 mánuðum fram á sumar og komast þá niður í þyngd sem er þá allavega nær kjörþyngdinni en sú þyngd sem ég er í dag. Eiginlega rugl þegar bróðir minn er næstum 10 kg léttari en ég, get ekki endalaust haldið því fram að ég sé bara svona stórbeinóttur ;)
Fékk svo að vita í gær að við hjónin verðum án sjónvarps í lágmark átta daga í viðbót. Danir og þjónustulund, tvö orð sem fara engan veginn saman...
Mæli með: O með Damien Rice, fín föstudagstónlist þar á ferð, mellow og þægileg...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home